Æskan - 01.11.1960, Side 30
Fótvissar
fjallakindur í
klettum í Disneylandi.
ER EKKI Disneyland bara fyrir
börn? spurði ég verkfræðinginn,
(3^9 sem fylgdi mér þangað dag einn
í júnímánuði síðastliðnum. jú,
svaraði hann og hló, — fyrir börn á
aldrinum 6 til 60 ára!
Úr bílnum sé ég, að við nálgumst
fjall með smáfönnum efst, og mér
virðist ég hafa séð þetta fjall áður,
— það getur auðvitað ekki verið, því
að aldrei hef ég komið til Anaheim
í Kaliforníu áður. Ég hlýt að hafa
séð það á mynd, hugsa ég með mér.
Við komum á svæði, sem er eins og
steinsteypt eyðimörk. Þetta er bif-
reiðastæðið fyrir utan aðalinngang-
inn í Disneyland. Við kaupum okkur
Birgir Tl
DISNE
-^ ★ ★ ★ ★ ★ ★
aðgöngumiða og göngum inn um
hliðið. Nú sé ég að fjallið, sem ég
hafði séð úr bílnum, er ekki neitt
venjulegt fjall. Það er eftirlíking af
Matterhorn-tindinum í Alpafjöllum.
Þegar staðnæmst er við fjallið á
ákveðnum stað heyrist veðurhljóð
uppi við tindinn.
Þið hafið áreiðanlega öll heyrt tal-
að um Walt Disney, sem er höfund-
ur fjölda teiknimynda, meðal annars
myndanna um Mikka mús. Fyrir
nokkrum árum ákvað hann að láta
gera í Kaliforníu skemmtigarð, þar
sem skilyrði væru fyrir fjölbreyttar
skemmtanir fyrir börn og unglinga.
En jafnframt átti Disneyland að vera
sýnishorn af ýmsu úr amerísku lands-
lagi og þjóðlífi að fornu og nýju.
Þar eru dregnir um strætin fornfáleg-
ir hestvagnar og skrautkerrur. Stræt-
isvagnar, eins og þeir tíðkuðust fyrir