Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1966, Qupperneq 14

Æskan - 01.07.1966, Qupperneq 14
HILDUR INGA: Sumarœvintýri D ANN A Þetta þýðir ekkert fyrir mig, hugsaði Danni, það er langbezt að vinda upp færið og setjast upp á bakkann og horfa á Geirmund, það er þó alltaf meira gaman en að hanga svona og láta fiskana storka sér. Danni var að því kominn að gera alvöru úr þessu, þegar kippt var í færið og spriklandi fiskur endasentist í vatninu; allt mók rauk út í veður og vind. Danni vatt færið inn á hjólið; á andliti hans mátti sjá bæði áhuga og veiðigleði. Geirmundur kom til hans. „Þarna fékkstu feikna silung,“ sagði hann. „Passaðu að draga nú jafnt og rólega, svo að þú missir hann ekki.“ Danni vandaði sig eins og hann gat, og innan stundar hélt hann á stórri, spikfeitri bleikju. „Húrral Þetta er fyrsti silungurinn, sem ég veiði um ævina,“ sagði hann glaður. „Já, og ég spái, að margir muni á eftir koma,“ sagði Geirmundur. Þeir renndu aftur, en nú virtist löxunum þykja nóg komið, þeir litu ekki við beitunni, og þegar Sólrún og Elsa komu með hádegismatinn, hafði enginn fiskur bætzt við á bakkann. Sólrún breiddi dúk á jörðina og lagði á hann diska og hnífapör fyrir fjóra. „Við Elsa ætlum að borða hérna ykkur til samlætis,“ sagði hún glaðlega. Þau settust öll að snæðingi og röbbuðu saman um alla heima og geima. Þegar þau höfðu lokið við að borða, tók Sólrún saman matarílátin, börnin lilupu niður að ánni, en Geirmund- ur hallaði sér aftur á bak í grasið, teygði úr sér og horfði á Sólrúnu, þar sem hún kraup og raðaði ílátunum niður í stóra tösku, braut dúkinn saman og lagði hann ofan á ílátin, honum duldist ekki, að þessi fallega, góða kona átti æ ríkari ítök í huga hans, hann hafði einnig veitt því athygli, hvernig Elsa blómgaðist við móðurlega um- hyggju Sólrúnar. Eftir að Sólrún og Elsa voru farnar heim, héldu veiðimennirnir upp með ánni. „Það er líklega helzt að reyna upp við Illagilsfoss, þar hef ég oft fengið hann til að taka,“ sagði Geirmundui- Þeir fóru hægt og renndu við og við í girnilegusru hyljina, en er þeir komu upp að Illagilsfossi, hafði ekkert bætzt við veiði þeirra. A . “ „Þetta ætlar að verða rýr dagur hjá okkur, Danni nunn, sagði Geirmundur. „Ætli það sé ekki mér að kenna, kannske er ég reglu' leg fiskifæla," sagði Danni dauflega. Geirmundur hló. „Nei, nei, væni minn. Það er áreiðaU' lega ekki þér að kenna, laxinn er óttalega dyntóttur, anU' an daginn er hann óður að taka en hinn daginn er hanu fúll og lítur ekki við beitunni, það er bara það, Dauu1 minn, en nú skulum við reyna hér.“ Þeir renndu báðir og biðu, góð stund leið — DanUa hálfleiddist tregðan í fiskunum; hann horfði í kringul11 sig — þarna voru Flatirnar, rennsléttar grundir, það vaí líkast því sem einhver hefði breitt út geysistórt hvanU' grænt flosteppi; það var ekki amalegt fyrir blessaða1 skepnurnar að bíta þarna, þær undu sér líka vel, þarna uppi undir brekkunni á barmi Illagils hafði náttu1 lega staðið tjaldið þeirra Veigu og Eggerts, þegar þaU voru hér að heyja. Aumingja Veiga; það var ekki undal legt, þótt hún rölti hér fram eftir. Stöngin kipptist til 1 höndum Danna, hún sveigðist í boga og línan spannst 266

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.