Æskan - 01.07.1966, Qupperneq 41
I4VAÐ ER
INNKAUPA5AMBAND FRIMERKJASAFNARA.
þaöer ítofnaö af þremur áh uga-
jömum ^öfnurum í þeim tilgangi
An qera fnmet'kjasöfhui'um kleift aö
Mt/ fafrimerki i jofníinjemodyrasfc
frímei'kjajafnarar geti ger
Ali endur a&frímerkjum jemge'
FaJ í jöfn unariandi eðamotifi
til aö tr/ggja ^emoruggaít
aÖekkertgetifariÖiVamhjá nonum
efla frímerkjaföfnun meðal
AP almenningí eflír föngum •
FrimerUjaíafnarar.snuiðykkyr
komiðaðVesturgöfculM milli kl.5[5 oq .
virkadaga ogkynniðykkur Jtarfsemi okkar.
INNKAUPASAMBAND FRIMERKJASAFNARA
VESTURGÖTU 14 - REYKJAVÍK
HVERNIG stendur á lit hluta? Flest-
if munu kannast við það, að litur
hluta fer nokkuð eftir því ljósi, sem
þeir eru í. Kona, sem kaupir sér kjól
að kvöldi, á það á hættu, að hann fái
a sig allt annan blæ í dagsbirtu. Hvít-
ur pappír er livítur í dagsbirtu, í
fauðu ljósi sýnist hann rauður, í
graenu ljósi grænn o. s. frv. Hvernig
stendur á þessu? Hvíti pappírinn er
Uvítur vegna þess, að hann endur-
kastar öllum hlutum sólarljóssins
jafnt. Sé hann settur í rautt ljós, end-
urkastar hann því, en fær þá ekki
annað ljós til að endurkasta og er því
rauður. Rauður kjóll er rauður vegna
þess, að hann — eða réttar sagt litar-
efnið í honum — drekkur í sig aðra
Iki sólarljóssins en þann rauða. Rauði
kturinn endurkastast til augans. Jurt-
lr eru grænar vegna þess, að blað-
Sraenan drekkur í sig alla liti sólar-
ljóssins nema þann græna. Blaðgræn-
an er samsett úr smáum kornum, og
hún myndast einmitt fyrir áhrif sólar-
ljóssins. Því eru jurtir, sem vaxa í
myrkri, bleikgular. Á haustin eyðist
þetta efni og gróðurinn fölnar. Sé
græn jurt lýst með ljósi, sem einungis
inniheldur rauðan lit, endurkastar
hún engu ljósi og sýnist því svört.
Þannig fer litur hluta eftir því ljósi,
sem á þá fellur. Ástæðan til þess, að
dökkblá föt sýnast svört í rafljósi, er
sú, að í rafljósi er minna af bláum
geislum en í sólarljósi. Einkennilegt
er að skoða hluti í gulu natríumljósi,
sams konar ljósi og nú er farið að
nota víða til götulýsingar. Þetta gula
ljós er alveg hreint, þ. e. a. s. það er
allt sömu öldulengdar. Sé maður í her-
bergi, sem lýst er með natríumlampa
og engu öðru, er allt annaðhvort gult
eða svart, aðrir litir sjást ekki.