Æskan - 01.02.1971, Blaðsíða 3
Lítil aðstoð til sjálfshjálpar
fyrir foreldra
£—yitthvert mesta hættusvæðiS fyrir börnin eru göt-
urnar. Snemma þarf að byrja á því, jafnvel frá
"•WHSfc fjögurra ára aldri, að kenna börnum umferðar-
reglur. Gott er að gera þá fræðslu að leik,
þannig að börnin verði svo viss ( reglunum, að þau geti
jafnvel kennt foreldrunum, leitt þau yfir götuna eða fylgt
þeim á reiðhjóli upp ( sveit.
Bezta ráðið tii að kenna börnum öryggi í umferðinni er
að lofa þeim að ráða ferðinni og þera ábyrgðina — undir
eftirliti.
Við það æfast þau I margs konar nauðsynlegum við-
brögðum, en ekki er þó hægt að treysta hæfni þeirra í
urnferðinni, fyrr en þau hafa náð 10 til 12 ára aldri, segja
barnasálfræðingarnir. Það er fyrst þá, sem hugsunin ræð-
ur því, hvað þau gera.
Jafnmikilvægt og það er að kenna börnum að ganga
yfir götu virðist mér það vera, að þau læri snemma að
synda. Þau geta byrjað að læra sund tveggja til þriggja
ára gömul, og þegar þau eldast og æfast, á að láta þau
fara út [ [ öllum fötunum. Þá sést, hvernig þeim gengur,
ef Þau skyldu detta I vatn alklædd. Þau verða þá að vita,
hvernig það er að vera ofan [ vatni í fötunum, ef til vill
' vetrargalla, því að komið getur fyrir, að þau þurfi að
hjarga sér — eða öðrum — síðar, við þær aðstæður.
VariS ykkur á smátjörnum [ blómagörðum. Betra er að
le99ja yfir þær hænsnanet, meðan börnin eru Iftil. Látið
htil börn, undir skólaaldri, ekki vera ein og eftirlitslaus [
baðkerinu.
Nú er víst bezt að hætta, þv[ að ekki er tilgangurinn að
hræða foreldrana of mikið með því að benda á allt, sem
komið getur fyrir. Ég vil aðeins benda á, með dæmum,
hvernig gæzla barna þarf að verða manni eiginleg, svo að
menn næstum ósjálfrátt hagi sér eins og nauðsynlegt er
t'1 þess að tryggja öryggi barnanna. Það má þó ekki ganga
út ( öfgar, svo að það aftri fólki frá því að lifa eðlilegu lífi.
Foreldrar þurfa að koma sér saman um, hvaða öryggis-
ráðstafanir séu nauðsynlegar. Þá er líka nauðsynlegt fyrir
hjónabandið, að þau standi saman, einnig á þessu sviði,
og ásaki ekki hvort annað, ef slys skyldi samt sem áður
koma fyrir.
Hjálp í viðlögum
Oftast er hægt að bæta úr smáóhöppum með huggun
og kossi, kannski með svolitlu joði og heftiplástri til
skrauts!
En ef alvara er á ferðum, er nauðsynlegt að vera snar-
ráður — og auk þess kunna eitthvað fyrir sér í hjálp [
viðlögum. Það getur haft mikla þýðingu og jafnvel bjargað
mannslífi.
Þess vegna ráðlegg ég fullorðnu fólki almennt — og sér
í lagi foreldrum — að fara á námskeið í hjálp [ viðlögum.
Þau þyrftu að vera miklu oftar en þau eru. En betra en
ekki er þó, að fólk eigi bækur um þessi efni og reyni að'
læra af þeim. Ráðlegt er að hafa slíka bók ávallt við
3