Æskan - 01.02.1971, Síða 11
Þegar Kodadad var heill orðinn, kom þeim saman um,
að þau þrjú skyldu halda til höfuðborgarinnar og reyna að
koma fram hefndum. Þegar þangað kom, varð það að
ráði, að læknirinn skyldi fara einn inn í borgina og freista
þess-að ná tali af Pireuse, móður Kodadads. Með því að
beita kænsku sinni náði hann tali af drottningu, en þar
sem læknirinn grunaði prinsana vondu um að liggja á
hleri, sagði hann drottningunni, að sonur hennar, Koda-
dad, væri dáinn, en kona hans lifandi og vildi ná fundi
hennar. Pireuse grét son sinn lengi, en er hún hafði náð
sér, bað hún lækninn að fylgja tengdadóttur sinni á sinn
fund. Rétt i sama mund kom konungur inn og spurði, hví
drottning væri svo útgrátin. Fékk hann þá að heyra tíðindin
og varð sem nærri má geta mjög reiður þessum tveimur
yngri sonum sínum. Hann hrópaði tii lífvarðaforingja síns
og skipaði honum að hneppa kóngssynina tvo í fangelsi,
þeir hefðu unnið til lifsláts með því að drepa elzta son
hans. Prinsarnir vondu voru nú gripnir og færðir í fangelsis-
turninn, en hins vegar var eiginkona Kodadads sótt, enda
var hún nú orðin prinsessa í höfuðborginni.
Allir borgarbúar urðu mjög sorgbitnir, þegar þeir heyrðu
þessar fréttir, og var sorgarhátíð undirbúin og fór hún fram
skömmu síðar. Sáu allir, að gamli kóngurinn og drottning
hans bárust lítt af sökum sorgar yfir sonarmissinum.
Niu dögum síðar átti aftaka prinsanna að fara fram, en
einmitt sama dag komu fréttir af því, að mikill fjandmanna-
her nálgaðist úr austurátt. Aftökunni var þá frestað, en
hermenn allir kvaddir til vopna. Stuttu síðar hófst orrusta
mikil, sem stóð yfir alla nóttina, en er dagaði mátti sjá,
a5 her konungs fór mjög halloka og lá við algerum flótta.
En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Nú heyrðust
dunur frá þúsundum hestahófa, sem nálguðust. Mikill og
vel búinn skari hermanna nálgaðist úr vestri. Þessi ókunni
her steypti sér eins og gammur á bráð yfir fjendur kon-
ungs og skipti þá skjótt um og flýðu fjandmennirnir sem
mest þeir máttu, þótt þreyttir væru og sárir eftir bardaga
næturinnar.
En mest var þó gleði gamla konungsins yfir því, að sá,
sem stýrði þessum frelsandi her úr vestri, var enginn
annar en sonur hans Kodadad, sem allir héldu að væri
dáinn.
..Komdu, faðir minn!“ hrópaði Kodadad. „Við skulum
hýta okkur heim i borgina til þess að hitta konuna mína
fögru."
Slegið var upp mikilli sigur- og gleðihátíð, og borgarbúar
dönsuðu út um öll stræti. Kodadad sagði föður sinum
írá því, að hann hefði fengið fregnir af því, að fursti nokk-
ur væri á leiðinni til höfuðborgarinnar með her. Hann
hefði því safnað saman þessum hermönnum í nágranna-
héruðunum og þeir síðan þeyst til borgarinnar á hestum
sinum. „En hvar eru þeir bræður mínir?" spurði hann svo.
„Þeir eiga að deyja á morgun!" hrópaði konungurinn.
„Nei, faðir minn, lofum þeim að lifa. Mundu, að í æðum
Þeirra rennur sama blóð og okkar, og svo gleymum við
öllu því slæma, sem þeir hafa gert okkur.
Konungurinn táraðist, þegar hann heyrði son sinn mæla
svo. Síðan mælti hann svo fyrir, að Kodadad skyldi verða
konungur eftir sinn dag, og hinir tveir prinsarnir skyldu
látnir lausir. Kodadad flýtti sér þá upp í fangelsisturninn
°g opnaði dyrnar fyrir bræðrum sínum.
ý En úti fyrir dansaði fólkið af gleði svo langt upp eftir
götunni sem augað eygði. Þjóðin vissi, að eftir lát gamla
konungsins mundi hún fá konung, sem ekki einungis yrði
voldugur, heldur einnig það, sem var miklu, miklu betra:
hann yrði einnig hygginn, göfuglyndur og góðhjartaður.
Endir.
Afmælísbörn
ÆSKUNNAR
í marz 1971
Þá höldum við áfram með afmaelisdagabörnin. Nú er
röðin komin að þeim, sem eiga afmæli í marz. Öll þau
þörn, sem eru lesendur ÆSKUNNAR og eru 10 ára og
yngri og eiga afmælisdaga í marz 1971, geta sent ÆSK-
UNNI nöfn sín, ásamt fæðingardegi, fæðingarári og heim-
ilisfangi til blaðsins fyrir 25. marz næstkomandi.
Úr þeim nöfnum, sem berast, verða svo dregin út 10
nöfn, sem hfjóta bækur i afmælisgjöf frá ÆSKUNNI.
Nú verður það spurningin, hve margir lesendur ÆSK-
UNNAR eiga afmæli í marz, og hverjir af þeim verða hinir
heppnu i þet'ta skiptið og hljóta afmælisbækur ÆSKUNNAR.
í næsta blaði kemur svo röðin að þeim börnum, sem
eiga afmæfi í apríl.
11