Æskan - 01.02.1971, Page 16
Þau komu til Brighton rétt fyrir kl. 15 og gengu sem leið lá
niður að ströndinni. Það var gola við ströndina og fjöldamargt
fólk í sandinum og fjörunni. Það flatmagaði þarna og naut sólar
og blíðu, en seglbátar sigldu fyrir landi. Flutningaskip sigldu
hjá. Það var dálítill álandsvindur, og það var fleira en mann-
fólkið, sem lék sér þarna, því Bretar taka gjarnan hundinn með
sér á ströndina, og þeir busluðu þarna í sjónum og létu öllum
illum látum. Brighton er eins og allir vita mikil baðlífsborg. Með-
fram ströndinni gnæfa fjöldamörg hótel, og nú er nýlega búið
að byggja hús, sem býður upp á aðstöðu fyrir dans, skautahlaup
og keiluspil. Hér búa heldur fáir á veturna en þvi fleiri á sumrin,
og íbúatala staðarins tvöfaldast yfir sumarmánuðina.
En það voru fleiri en sóldýrkendur, sem hingað lögðu leið
sína. Úti á löngum bryggjum, sem ganga fram í sjóinn, stóðu
fiskimenn og renndu fyrir kola og annan góðfisk. Mikil skipaum-
ferð var á Ermarsundi þennan dag. Flutningaskip, farþegaskip og
lystibátar sigldu fyrir landi, og þetta sást ennþá betur, þegar þau
höfðu dvalið á ströndinni nokkra stund og horft út á sólskyggðan
sjóinn. Sveinn hafði verið svo forsjáll að vera í sundskýlu og
dreif sig strax í sólbað. Þær Sóley og Valhildur ákváðu að fara
upp fyrir ströndina og kaupa sér sundföt i búð, sem þær höfðu
séð á leiðinni niður eftir. Þetta gekk vel, og Grímur leiðbeindi
þeim við kaupin. Á ströndinni kenndi margra grasa. Þarna var
orlofsfólk sýnilega í miklum meirihluta, en innan um voru hópar
af hippum, sem lítið virtust hafa fyrir stafni annað en að láta
hverjum degi nægja sfna þjáningu og láta tímann líða. Sumir
spiluðu á gítar, aðrir móktu en einn lék á blokkflautu. Úti við
hafsbrún sáust margar seglskútur á ferð. Þetta leiddi hugann að
þeim gömlu dögum, þegar Ermarsund var þakið seglskipum, sem
sigldu milli Englands og Frakklands og fram og aftur og norður
og suður. Hafrænan var áleitin og það var aðfall, og brátt varð
þeim ekki lengur vært á ströndinni þrátt fyrir það að sólin skini
af heiðum himni. Þau tóku sig upp og gengu upp í bæinn. Þau
ætluðu að skoða sýningu gamalla bíla, sem Brighton er fræg
fyrir, en hún var því miður lokuð. í staðinn fengu þau sér ham-
borgara og mjólkurhristing.
Brátt var viðdvölin í þessari borg á enda. Þau óku á járn-
brautarstöðina og nákvæmlega á fyrirfram ákveðinni mínútu ók
lestin út af stöðinni áleiðis til Lundúna. Um kvöldið, eftir hæfi-
lega hvíld á hótelinu, snæddu stúlkurnar kvöldverð í Angus
Steak House á Park Lane. Þetta var góður matur, enda matar-
lystin í lagi eftir miklar göngur og amstur dagsins. Þær gengu
snemma tii náða þetta kvöld, því að daginn eftir átti að fara í
búðir. Veðurstofan spáði góðu veðri, en í blaðinu London Times
sáu þær, að rignt hafði f Reykjavik.
Grímur vakti mannskapinn fyrir allar aldir morguninn eftir.
Eftir morgunverð var haldið á Glouster neðanjarðarbrautina, það-
an til Victoria neðanjarðarstöðvarinnar, þar sem skipt var um
lest og ekið með nýju Viktoríubrautinni upp á Oxford Circus.
Þau fóru í ýmsar verzlanir og gerðu heilmikil innkaup, sem of
langt yrði hér upp að telja og kemur ekki heldur beinlínis ferða-
sögunni við. Klukkan var að verða ellefu, þegar Sveinn sagði, að
nú skyldu þau gera hlé á innkaupum og halda til Buckingham
Palace, bústaðar drottningarinnar, en þar fara fram varðmanna-
skipti um þetta leyti dags. Þau náðu I bil uppi við Marble Arch
og óku sem leið lá til drottningarhallarinnar. Þar ga'f nú heldur
á að líta. Mikill mannfjöidi hafði safnazt saman bæði uppi á
minnismerkinu gegnt höllinni, svo og niður við girðinguna. Girð-
ingin, sem er ákaflega rammbyggileg og allt að tveggja mann-
hæða há, er úr svörtum járnrimlum en bronsuðum að ofan, og
þar gefur að líta bæði ríkisepli og annað skraut. Veðrið var dá-
samlegt, næstum 30 stiga hiti og sólskin. J_ögreglulið var fjöl-
mennt fyrir utan höllina, bæði gangandi iögregluþjónar og a
hestbaki. Klukkan varð 11 og ekki bólaði á varðrnönnunum-
Hitinn óx og mannfjöldinn einnig, en varðmennirnir, sem stóðu
við höllina, bærðu ekki á sér frekar en þeir væru gerðir úr
vaxi. Úti 'við Viktoríuminnismerkið var mun svalara og betra að
vera. Slys og óhöpp verða alls staðar, þar sem svo margt fólk
er samankomið, en nú heyrðist I lúðrasveitinni, sem brátt kom
gangandi út úr hliðargötu og lék göngulög. Þetta var nú lúðra-
sveit I lagi. Á eftir komu varðmenn gangandi og á hestum. Hóp-
arnir voru tveir, og sem fyrri hópurinn gekk I hlað drottningar og
inn um hliðið, þá birtist sá þriðji, sem blés í lúðra. Það voru
riddarar á svörtum fákum. Allt var þetta hið mesta tilstand, enda
má ekki minna vera, þegar drottningin á I hlut. Fólk stóð her
uppi á girðingum og reyndi að sjá það sem fram fór, en það var
dálítið erfitt vegna þessa mikla mannfjölda, sem hafði safnazt
saman. Búningar lífvarða drottningar eru mjög heitir og fyrir"
ferðarmiklir, og það kemur þrásinnis fyrir við þessa hátíðlegú
varðaskiptingu, að það steinlíður yfir lífverðina. Þeir lyppas'
ekki niður eins og venjulegt fólk, heldur stingast á endann áfram
eða aftur á bak, og af því hafa hlotizt Ijót meiðsli, enda kváðo
mörg nef lífvarðasveitarmanna brotin og brengluð eftir slíkar
byltur.
Þau luku verzlunarerindunum niður I hinni frægu götu Carnabý
Street. Þeim fannst búðirnar þröngar og heldur leiðinlegar, öll*
um nema Sóleyju. Hún kunni prýðilega við sig og kunni vel a®
meta þessi margbreytilegu klæði, sem á boðstólum voru. Verstur
var hávaðinn I verzlununum, því þar sem bítlaklæðnaðurinn er
seldur, er líka óspart spilað á glymskratta og þeir eru ekki lág*
stilltir. Þau höfðu lokið verzlunarerindum og héldu til skrifstofu
Flugfélagsins. Sveinn þurfti að hitta blaðamann, og Grímur f°r
ásamt stúlkunum til hótelsins.
Síðar fóru þau upp I brezka útvarpið, BBC, ásamt Páli
Jónssyni. Páll, sem unnið hefur lengi I London fyrir FlugfélaS
íslands, sýndi þeim inn á þýzkan veitingastað. Einn maður lék
á harmoniku, en aðrir sátu við borð og snæddu pylsur og drukkU
öl. En nú var ekki til setu boðið, því þetta kvöld ætluðu þau
sjá hina frægu og rómuðu kvikmynd „Hello Dolly!" Á tilsettum
tíma komu þau að kvikmyndahúsinu, sem er við Park Lan®-
Myndin er tekin með fullkomnustu tækni, og þriðja víddin nau1
sín prýðilega. Hér verður ekki rakin sagan um Dolly og öll hennar
16