Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1971, Page 42

Æskan - 01.02.1971, Page 42
Eitt og annað um Ijósmyndun Þegar skipt er um linsu Á fullkomnarl myndavélum er hægt að skipta um linsur. Algengt er að þeir, sem taka mikið af myndum, eigi a. m. k. þrjár linsur — venjulega linsu eða „Normal" linsu, gleiðhornslinsu og aðdráttarlinsu. Hér á síðunni eru þrjár myndir, sem allar eru teknar frá sama stað, en með mis- munandi linsum, og þið sjáið myndirnar nákvæmlega eins og linsurnar skiluðu þeim. Á mynd 1 er notuð venjuleg linsa (55 mm), á mynd 2 er notuð gieiðhorns- linsa (28 mm) og á mynd 3 er notuð að- dráttarlinsa (135 mm). Það er að sjálfsögðu heilmikið verk að kynna sér til fullnustu linsurnar og mögu- leika þeirra. i verðskrá, er fylgir fullkom- inni japanskri myndavél, er getið um hvorki meira né minna en 23 mismunandi linsur, og er verð þeirra frá kr. 4.897 upp ( kr. 69.206. Af þessu sjáið þið, að það er alls ekki ódýrt sport að taka myndir með „fínum“ vélum. Myndavélin, sem þessar myndir eru teknar á, kostar um 17 þúsund krónur með venjulegri linsu, en gleiðhornslinsan kostar um 9 þúsund krónur og aðdráttarlinsan um 8.400, eða alls kostar útbúnaðurinn um 35 þúsund krónur. Blaðaljósmyndarar nota gjarnan gleið- hornslinsur, þegar þeir þurfa að taka myndir af mörgu fólki, sem er saman- komið i þröngum húsakynnum, t. d. mynd- ir af fundahaldi. Þelr nota aðdráttarlinsur t. d. til að taka myndir á Iþróttamótum, og þær eru líka góðar til að taka myndir af fóLKi, þvi að þá getur Ijósmyndarinn staðið alllangt frá og tekið myndirnar, án þess að viðkomandi taki eftir honum. Aðdrátt- arlinsur breyta veruleikanum dálitið — þjappa öliu saman, og ættu myndirnar hér á slðunni að sýna breytinguna sem verður, þegar notaðar eru mismunandi llnsur. sj Svar til Stefáns á Seyðisfirði: Það sem þú spyrð um kostar frá kr. 700 til 1000. Þú getur sent pantanir til Ijósmyndavöru- verzlananna hér f Reykjavik og fengið sent i póstkröfu. Helztu verzlanirnar eru: Fótó- húsið, Bankastræti; Hans Petersen, Banka- stræti; Týli, Austurstræti; og Gevafoto, Austurstræti. Allar þessar verzlanir hafa fjölbreyttan Ijósmyndavarning á boðstól- um. Svar til Hauks f Breiðagerði 4: Þegar þú færð þetta hefti ( hendurnar, á að vera komin út Ijósmyndabók á (slenzku, Þar sem rætt er um allt sem þig vantar a® vita. Þú ættir að byrja I klúbb hjá Æskú' lýðsráði og reyna siðar að fá inngöng11 í Félag íslenzkra áhugaljósmyndara. segjum síðar frá þvl félagi. 42

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.