Æskan - 01.02.1971, Side 50
Þessi grís er sagaður út úr birkikrossviði. Notið
6 mm þykkan krossvið í skrokkinn, en fætur og eyru
mættu gjarnan vera þynnri, t. d. úr 4 mm þykkum
krossviði. Takið eftir punktalínunum. Þar sem þær
eru þarf að saga rifur, 4 mm í skrokkinn en 6 mm í
eyru og fætur. Eyrun (sjá A á myndinni) ganga niður
í rifu A á höfði gríssins, en fæturnir aftur á móti upp
í rifu B. Límið fast með sterku lími. Slípið vel allar
útlínur og málið að síðustu með þekjulitum.
Þessi skúta er um það bil 50 cm á
lengd, 131/2 cm á breidd (þar sem hún
er breiðust) og 9 cm á dýpt. Efnið gæti
verið fura, vel þurr og kvistalaus að mestu.
Þegar búið er að hefla efri flötinn slétt-
an, þarf að strika umlínur þilfarsins á
hann. Ef þið þekkið einhvern, sem á
bandsög, skuluð þið biðja hann að saga
kubbinn, því að mjög mikil vinna spar-
ast við það. Þvi næst þurfið þið að nota
sporjárn, rasp og þjöl til þess að koma
skipslagi á skútuna, einnig er gott að
hafa hefil við höndina. Sandpappírinn er
notaður allra síðast til þess að slétta
skipsskrokkinn að fullu undir málningu
eða lakk. Skútan er þraut-holuð að innan;
þó er rétt að skilja eftir smástykki þar,
sem stýrið gengur í gegn, annars vill
vatn komast inn í skrokkinn meðfram stýr-
inu. Þegar þið hafið lokið við að hola
skipið innan, er kjölurinn festur með tveim-
ur skrúfum, sem ganga niður í gegnum
botninn og niður í kjölinn. Borið hæfilega
fyrir þeim. Þá er næst að sníða til þilfarið
(4 mm krossviður) og það neglt nokkuð
þétt með smánöglum, sem hafa lítinn haus.
Gott er einnig að bera lim á borðstokk-
ana áður en þilfarið er neglt fast, það
Þannig á skútan að vera.
þéttir. Siglutréð er lítið eitt lengra eh
lengd skútunnar, t. d. 60 cm, enda ganga
3—4 cm af siglutrénu niður í gat eða holu
á þilfarinu. Bómuna, eða sigluásinn, serfl
gengur aftur úr siglutrénu, mætti lát®
standa ofurlítið aftur fyrir skutinn (sjá
mynd). Nú, og svo væri e. t. v. fallegra
að hafa bugspjót fram af stafninum, þót*
ekki sjáist það á myndinni; mætti þa®
vera svo sem 10—12 cm á lengd, skrúfað
fast niður í þilfarið í framstafni. Lítið stýris*
hús eða yfirbyggingu getið þið svo smíð'
að eftir því sem ykkur dettur bezt í hug.
gjarnan úr harðviði, t. d. teaktré.
má gleyma því að festa hæfilega stórs
blýþynnu undir kjölinn, svo að skútan hall'
ist ekki mikið út til hliðar, þegar vindur-
inn stendur í seglin. Þó skal varast að
nota svo mikið blý, að skútan verði djúp'
sigld, þá verður hún mjög hægfara. Þilfar
og siglutré þarf að lakkbera vel með
glæru gólflakki eða skipalakki, en sjálfan
skipsskrokkinn er bezt að mála [ tveimuf
litum, t. d. grænum að neðan, en hvltum
að ofan. Litlar skrúflykkjur þarf að setja
út við borðstokkana til hliðar við siglutréð-
I þær og toppinn á siglunni eru strengó
styrktarbönd úr mjóu garni (sjá mynd).
50