Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1979, Page 4

Æskan - 01.01.1979, Page 4
 Afmælisár blaðsins er nú hafið. — Allir þeirp kaupendur ÆSKUNNAR, sem eru 10 ára ogl yngri og eiga afmæli í janúar 1979, geta sentl blaðinu nöfn sín ásamt fæðingardegi, fæð-| ingarári og heimilisfangi fyrir 25. febrúar næstkomandi. Utanáskrift: ÆSKAN (Afmæl- isbörn), Box 14, Reykjavík. Úr þeim nöfnum, sem berast, verða svol dregin 10 nöfn, sem hljóta bækur í afmælis-l gjöf frá ÆSKUNNI. Nú er það spurningin; hve j margir kaupendur ÆSKUNNAR eiga afmæli í| janúar 1979, og hverjir verða þeir heppnu sem [ hljóta afmælisgjafabækur í þetta skipti. í næsta blaði kemur svo röðin að þeim börnum, | sem eiga afmæli í febrúar. Þar var margt furðulegt að sjá fyrir forvitinn strák. Búið var að leggja járnbita yfir ána milli stöpla. Ég skildi ekkert í því, hvernig hefði verið farið að koma þessum ógurlega löngu bitum yfir ána, hátt yfir vatnsborðinu. Og þarna við brúarstæðið var mikið af þungum járnbitum, járnplötum, járnstrengjum og fleira. Hafði þetta allt verið dregið á ísum frá Eyrarbakka veturinn áður. En þangað hafði það komið með skipum frá útlöndum um sumarið á undan. I mínum augum var allt þetta furðuverk, enda var Ölf- usárbrúin langstærsta mannvirkið, sem ráðist hafði verið í hér á landi til þessa. Lítið timburhús hafði verið reist austan við ána. Þar bjó Tryggvi, erlendi verkfræðingur- inn, sem stjórnaði brúargerðinni, og fleiri. Þá var ekki til neinn lærður íslenskur verkfræðingur. Þetta hús hefur verið stækkað síðan og gengur enn undir nafninu Tryggvaskáli. Við vorum boðin inn í húsið. Ræddust þeir við, Tryggvi, pabbi og erlendi verkfræðingurinn, á máli, sem ég skildi ekkert í. En ég góndi hugfanginn á verkfræð- inginn, því að ég hafði hugboð um, að hann væri galdrakarlinn, sem hefði komið löngu járnbitunum yfir ána, — hvernig sem hann hefði farið að því. Þegar við höfðum dvalið þarna nokkra klukkutíma og skoðað allt í krók og kring, var hugsað til heimferðar. En nú var farið á ferju rétt fyrir neðan brúna. Hestarnir höfðu verið sendir á undan og biðu hinum megin. Þarna var allt fullt af hringiðum í ánni. Var mér sagt, að róa þyrfti prammanum af mikilli list. Ef hann snerist oftar en einu sinni í hverri hringiðu, þá væri ekki hægt að stöðva snúninginn. Hann mundi að lokum sogast niður í hring- iðuna. Ég var hálf hræddur og feginn í hvert skipti, sem | við komumst úr hringiðu eftir aðeins einn snúning. Þegar vestur yfir kom, var stigið á bak og haldið aftur I að Reykjakoti. Við komum þangað seint um kvöldið. Ég átti að sofa í rúmi hjá vinnumanni í baðstofunni. En hann fór illa í rúmi og hraut hátt. Það gerðu fleiri í baðstofunni. Af þessu varð mér ekki svefnsamt. Á fjórða tímanum um morguninn gerðist nokkuð, sem vakti alla í baðstofunni, enda skyldi haldið af stað til Reykjavíkur kl. 4. Pabbi vildi ekki eyða meiri tíma í ferðalagið en þetta. Opin rúða var á baðstofuglugganum. Maríuerla kom fljúgandi inn um gluggann. Hún fann ekki opið til að komast út aftur. Af | þessu trylltist aumingja fuglinn og vakti alla í baðstof- unni. Þegar tekist hafði að koma erlunni litlu út aftur, var | búist til ferðar og haldið til Reykjavíkur. Við komum þangað kl. 11 árdegis á mánudag. Ég var þreyttur og ósofinn. Man lítið eftir feröinni. Þó | man ég, að pabbi hleypti Skjóna á Sandskeiði. Ég gerði allt, sem ég gat, til að fá Póstrauð til að fylgjast með | Skjóna. En það gekk illa. Er í bæinn kom, hafði ég hangið eins og drusla frammi á faxinu á Póstrauð. Og áður en ég var búinn að hátta mig í rúmið valt ég út af og steinsofn- aði. Mér var strítt með þessu. Verst þótti mér, að systir | mín, stelpan, sem að vísu var tveim árum eldri og hafði sofið, stóð sig betur. En mikið var ég þakklátur pabba fyrir að hafa tekið mig með sér í þessa ferð, þótt hún endaði svona. Sveinn Björnsson, forseti.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.