Æskan - 01.01.1979, Side 17
Lag: Nú litlu blómin litast um á grund.
A vorin, já á vorin, er brosa blómin smá
og blítt um loftið fuglasöngvar hljóma,
þá gleðjumst vér böniin og glaða söngva þá
á gleðinnar hörpu látum óma.
A sumrin, já á sumrin, er skrýdd er jörð i skart
og skcerum sólin stafar geisla röðum,
i stöfum þeim sjáum vér lífsins letur bjart
og lesum á náttúrunnar blöðum.
A haustin, já á haustin, er húmið þekur grund,
þá horfum upp til Ijóssins fögru sala,
þar stjarnanna sveitir í Ijósum himinlund
um Ijósanna föður þöglar tala.
A vetrin, já á vetrin er hörð er úti hríð
og hjúpar jörðu nœturmyrkrið svarta,
þá inni vér kveikjum Guðs orða Ijósin blíð.
Þeir englar Guðs lýsa og verma hjarta.
Valdimar Briem.
Stundum hef ég matað sama strákinn tvisvar, segir Brian hlæjandi — það er
mikilvægt að hafa þá í réttri röð.
Tveir eiga fullt í fangi með að mata þrjú börn og skipta á þeim í tvær klukku-
stundir í hvert skipti. Þar sem þetta þarf að gerast þrisvar sinnum á dag, sjö
daga vikunnar, hafa hjónin nóg að gera.
— Ég tala stöðugt við þá til að bæta þeim upp það sem þeir hafa misst, segir
Pat. — Ég skýri allt fyrir þeim og reyni að vera jafnnákvæm og ég get. Um
daginn fékk ég blinda stúlku í heimsókn og við gengum um húsið að barna-
herberginu. Ég sagði, að nú kæmurri við að tröppum. Hún hélt að ég ætti við
tröppum upp, því að ég gleymdi að segja niður á við. Svona nákvæm verðum
við að vera.
Bréf streymdu að frá öllum héruðum Ástralíu þegar menn vissu hvernig
komið var. Vinnuveitandi Brians stofnaði sjóð fyrir drengina, og þau mega fara
ókeypis með þá í strætisvögnum, því að þau eiga ekki bíl.
Margar gamlar konur hafa prjónað föt á þríburana. Tíu ára drengur seldi
miða sína á popptónleika á uppboði til ágóða fyrir þá og sendi Roles pening-
ana. Heill skóli safnaöi saman öllum vikupeningum barnanna og sendi ná-
kvæmar leiðbeiningar með því hvernig ætlast væri til að notkun þeirra væri
háttað.
Kona, sem vann háa upphæð í happdrætti sendi þeim peninga og skrifaði
með: ,,Ég á sjálf tvíbura, svo að ég veit hvað það er erfitt að eiga tvo — og þeir
eru báðir sjáandi."
En peningar og gjafir gylla aðeins hversdagslíf Roles-hjónanna. Þríbura-
drengirnir þrír gleðja þau mest. — Ég segi svo oft við þá ,,En hvað mér þykir
vænt um ykkur,“ og þeir skilja það allir, segir Pat. — Sumir segjast ekki skilja,
hvernig við getum verið syona róleg. Þeir eru allir blindir að vísu, en við unnum
hvort öðru og unaöslegu drengjunum okkar þremur, svo aö við erum þakklát.
15