Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1979, Page 19

Æskan - 01.01.1979, Page 19
Heim frá Luxemborg tll Keflavfkur flugu þær Gyða og Hólmfríður í DC-8 þotunni Snorra Þorflnns- syni. Flugsfjórinn Skúli B. Steinþórsson sem situr hér til vinstri bauð þelm að koma frammí flugstjórnarklefann og skoða sig um. Aðrlr á myndinni eru Jóhannes Víðir flugmaður og Einar Guðmundsson flugvélstjóri. bændur væru félagslyndari í Frakklandi en heima á Fróni en kannski hafa aðstæður gert það að verkum að fólk þyrpist saman og byggir hús sín í þorpum. Lestin hélt áfram með miklum hraða norður á bóginn og það gladdi þær stallsystur þegar piltur í brúnum jakka kom með vagn eftir lestargangin- um. Hann seldi appelsínusafa, súkkulaði og margt fleira. Það var ekki laust við þreytu frá því daginn áður, en við appelsínu- safann hresstust þær og nutu nú ferðarinnar vel. Þær áttu að skipta um lest í borginni Metz því lestin sem þær voru í mundi halda áfram til Frankfurt am Main. Eftir u.þ.b. þriggja klukku- stunda ferð rann lestin inn á brautarstöðina í Metz. Hún hafði farið gegnum margar minni stöðvar en ekki var stansað og áfram haldið, aðeins hægt á meðan farið var framhjá stöðvun- um. Þær Hólmfríður og Gyða veittu samfarþegum sínum nána athygli. Þarna var fólk af ýmsum þjóðum og litarhætti. í Metz var klukkustundar stans meðan beðið var eftir lestinni sem færi til Luxemborgar. Þær notuðu tækifærið og fóru út í borgina, gengu um nágrenni stöðvarinnar og lituðust um. Þarna voru stórhýsi og eitt bar þar af öðrum sakir mikilleika en heldur var dimmt og drungalegt yfir húsinu. Gyða áleit að þetta hlyti að vera fangelsi. í Ijós kom reyndar að í þessu mikla húsi höfðu borgaryfirvöld starfsemi sína. Veitingasalurinn á brautarstöð- inni í Metz var mesta gersemi, hátt til lofts og vítt til veggja. Þetta var gamalt hús en innréttingar voru nýjar og þegar þau ferða- félagarnir settust við borð ( veitingasalnum var líkast því að maður væri kominn í tívolí. Stólarnir sem voru á járnstöngum sem festar voru í gólfið voru mjög liðugir og var hægt að snúa þeim í allar áttir. Þær fengu kaldan drykk við þorstanum og að því búnu var haldið upp á brautarpallinn. Innan skamms brun- aði önnur lest inn á stöðina. Þessi járnbrautarlest var enn fínni en hin, enda stóð utan á henni að þar væri komin ,,Mið-Evrópu hraðlestin". Þau fóru um borð og eftir litla stund var haldið af stað. Einu sinni var stansað á leiðinni en síðan var komið til Luxemborgar. Tollverðir höfðu komið og skoðað farangurfólks og vegabréf. Ekki gerðu þeir mikla leit í töskum manna en litu vel framan í fólk og báru saman við myndir í vegabréfum. Ekki var veðrið betra í Luxemborg en í París. Það rigndi töluvert og er þau gengu frá brautarstöðinni yfir að skrifstofu Flugleiða í borginni hellirigndi og fólkið hljóp í skjól. Það var mikil bílaumferð um göturnar fyrir framan skrifstofur Flugleiða og Alfa hóteliðer þau komu inn og vartekið þarforkunnarvel af starfsfólkinu. Þau ákváðu að ganga um þó rigning væri úti og skoða í búðarglugga. Þau fóru inn á veitingastað og fengu sér hamborgara og urðu þá öll glöð. Verslanir voru á næstu grös- um og í Luxemborg er mikið úrval góðra búða með úrvalsvör- um. Verðlag er svipað og á (slandi, þó kannski heldur lægra. Þarna keyptu þær Gyða og Hólmfríður sitt af hverju, en tíminn var naumur og brátt var kominn tími til að halda út á flugvöll. 17

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.