Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 22

Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 22
& FERDIST Um „Heimskt er heimaalið barn" segir máltækið, og víst er svo, að okkur er nauðsynlegt að hafa glugga og dyr opnar og líta til annarra landa. En til þess að meta að verðleikum það sem við sjáum og kynnumst erlendis verðum við að þekkja okkar eigið land. Samanburðurinn er þarna mikilvægt grundvallaratriði, sem á að víkka sjóndeildarhringinn og forða okkur frá blindu og órök- studdum fullyrðingum. Slíkan samanburð má einnig viðhafa milli staða eða héraða innanlands. Enn sem fyrr er þá mikilvægt að forðast þröngsýni og reyna að sjá það jákvæða hverju sinni. Það hefur oft verið sagt, að við búum á mörkum hins byggilega heims, og er þá yfirleitt litið heldur neikvætt á hlutina. Okkar breytilega veðrátta, stundum vot, stund- um vindasöm, er bannfærð og sögð vond. Samt verður að viðurkenna, að nístandi kuldar eru sjaldgæfir og sömuleiðis þjakandi hitar. Ef við lítum fullkomlega já- kvætt á veðurfarið hér getum við sagt, að veðrið sé aldrei vont, aðeins mismunandi gott. Til þess aö svo megi verða skulum við vera rétt búin að heiman sérstaklega í lengri ferðir, og hafa meöferðis réttan hlífðarfatnað og annan útbúnað. Ef við erum þurr og okkur er hlýtt, getum við tekið undir fyrrnefnda jákvæða fullyrðingu og sagt, að veðrið sé aldrei vont. Svo langorður hef ég nú gerst um veðrið, eða öllu heldur viðhorfið til þess, vegna þess aö það hefur gagn- ger áhrif á viðhorf til landsins okkar, og hvort við njótum þess að ganga á vit þess eða ekki. Þá komum við að því að ganga á vit landsins, og reyn- um eftir bestu getu að líta jákvæðum augum á það, sem við sjáum og upplifum. Ekki eru allir með sama marki brenndir, og því hentar ekki öllum að skoða landið 'a sama hátt. Höfum þá í huga, að ferðavenjur annarra eru ekki endilega verri, þótt þær séu eitthvað öðruvísi en okkar sjálfra. Sumir kjósa helst að hverfa einir eða fáir saman upp til fjalla út úr skarkala lífsins og daglegu þrasi, og mega varla heyra þar vélarhljóð, hvað þá meira. Nóg er af krókum og kimum á öræfum landsins fyrir þá, en þeir verða þá sjálfsagt að forðast fjölförnustu leiðirnar. Aðrir kjósa að aka um öræfin og ganga þá þeim mun minna, og reyna sig og farartækið við margvíslega erfiðleika, sem á vegi kunna að verða. Nógir möguleikar eru fyrir þessa ferðalanga á fjölmörgum öræfaslóðum. Þeir verða þó að gæta þess að hlífa viðkvæmum gróðri öræfanna og aka sem minnst utan slóða. Þegar við ferðumst um landið, skulum við hafa hug- fast, að epgan stað er hægt að afgréiða í eitt skipti fyrir öll. Árstíðirnar eru mismunandi, birtan og skoðunarskil- yrði breytileg og við sjálf mismunandi næm fyrir áhrifum umhverfisins. Þannig getum við komið margsinnis á sömu staði, og í hvert sinn uppgötvað einhverja nýja hlið á umhverfinu, eöa eitthvað sem við höfum ekki veitt at- hygli áður. Við getum þjálfað meö okkur aukna hæfileika til náttúrunautnar og ferðagleði, öðlast nýja reynslu og nýja ánægju í hvers konar útivist á landinu. Þá munum við komast að raun um, að hvergi er Ijótt á íslandi heldur alls staðar fallegt, aðeins mismunandi fal- legt eftir hugarfari okkar sjálfra og ferða- og útivistar- þroska. Farið vel og farið heil um landið. Einar Þ. Guðjohnsen. Suövestur- land ÝMSIR MERKISSTAÐIR Á Bessastöðum á Álftanesi er að- setur forseta íslands. Fyrst þegar Bessastaða er getið í fornum heim- ildum, eru þeir í eigu Snorra Sturlu- sonar, en síðan kemst jörðin í kon- ungseign og verður brátt að höfuð- setri æðstu valdsmanna konungs á Islandi. Síðar var þar um nokkurt skeið æðsta menntastofnun landsins, en forsetasetur hefur staðurinn verið allt frá stofnun lýðveldisins. Forsetabústaðurinn á Bessastöð- um er í röð elstu húsa á landinu, — byggður árið 1763. Kirkján á Bessastöðum er einnig mjög gömul bygging, lítið yngri en forsetabústaöurinn, og er fyrir marga hluti mjög sérstæð og falleg. I henni eru margir fagrir litglergluggar með myndum úr kristnisögu landsins. Heiðmörk er friðland Reykjavíkur og nágrennis og þar er mikil náttúru- fegurð. I Krísuvík er mikið jarðhitasvæði, og 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.