Æskan - 01.01.1979, Qupperneq 36
Eainu sinni bjó í Hollandi, landinu þar sem vindmyll-
urnar mala hveiti allan daginn, fátækur malari, sem Vil-
hjálmur hét, og kona hans, sem hét Katinka.
Þau strituðu allan daginn, og á kvöldin, þegar þau
komu heim, borðuðu þau kvöldverðinn sinn og fóru
síðan að hátta, því að þau voru svo þreytt.
,,Ef yið fengjum bara svolitla hjálp!“ andvarpaði
veslings malarinn.
,,Já,“ svaraði Katinka. „Kannski að dvergarnir hjálpi
okkur, ef við óskum þess nógu innilega."
Eins og þið vitiö, búa litlu dvergarnir í hólunum. Þeir
eru ósköp litlir, en hafa sítt skegg, alveg eins og gamlir
menn, og ganga alltaf með stórar topphúfur. Ef þeim er
hlýtt til mannanna, koma þeir á nóttunni allir í hóp og
hjálpa þeim við vinnu sína. Þeir sópa gólfin, strokka
rjómann og bæta fötin.
Og nú vildi svo til, að einmitt þegar Vilhjálmur og
Katinka voru að tala saman um þetta, var lítill dvergur á
gægjum fyrir utan gluggann. Veslings malarinn, hugsaði
hann með sjálfum sér. Hann hefur svo ósköp mikið að
gera. Ég ætla að kalla á alla bræður mína og biðja þá að
koma og hjálpa honum.
Svo hljóp hann upp í hólana og sagði bræðrum sínum
frá því, sem hann hafði heyrt. Um nóttina fóru þeir svo
allir heim til malarans. Þeir möluðu allt kornið og settu
hveitið í poka, og röðuðu svo pokunum vandlega í eitt
hornið á myllunni. Síðan þvoðu þeir og skúruðu gömlu
mylluna, þangað til hún var alveg hvít á lit. Þegar þeir |
höfðu lokið við þetta, héldu þeir heim til sín upp í hólana.
Þegar malarinn kom til vinnu sinnar um morguninn, I
gat hann naumast trúað sínum eigin augum. Allt kornið |
var malað og komið í pokana, og myllan var hvítskúruð.
„Katinka, Katinka," hrópaði hann til konu sinnar.
„Dvergarnir hafa hjálpað okkur.“
Gömlu hjónin voru himinlifandi og hugsuðu nú um
ekkert annað en hvernig þau gætu launað dvergunum.
„Við skulum setja brauð og smjör á disk út í mylluna, ef |
þeir skyldu koma aftur í nótt,“ sagði Katinka. Og um
kvöldið, áður en þau fóru að hátta, smurði Katinka mikið I
af brauði handa dvergunum, og Vilhjálmur fór með það J
allt út í myllu.
Um morguninn, þegar þau komu út í mylluna, var allt |
brauðið horfið og allt kornið malað. Og þannig hélt þetta
áfram lengi, og gamla malaranum og konu hans vegnaði
vel, og nú gátu þau gefið sér tíma til að heimsækja ná-
granna sína og vini á kvöldin.
30