Æskan - 01.01.1979, Síða 42
/ UNCLINGARECLUSÍÐAN )
1
Unglingaregluþingið
Unglingaregluþing hið 46. í röðinni
var haldið í Templarahöllinni mið-
vikudaginn 7. júní. 55 félagar, gæslu-
menn og gestir sóttu þingið.
Eftirtaldir voru skipaðir í embætti:
Æ.t.: Sveinn Kristjánsson.
U.t.: Sigrún Oddsdóttir.
R.: Karl Helgason.
Kap.: Sigrún Sturludóttir.
F.æ.t.: Ölafur Jónsson.
D.: Guðjóna Albertsdóttir.
Ad.: Ingibjörg Johnsen.
Gj.: Kristinn Vilhjálmsson.
Fj.m.r.: Arnfinnur Arnfinnsson.
Ár.: Sigurlaug Jónsdóttir.
Vörður: Gunnar Þorláksson.
Útr.: Skafti Helgason.
Söngstj.: Ólafur F. Hjartar.
Stórtemplar Indriði Indriðason ósk-
aði þinginu heilla og blessunar. I
skýrslu stórgæslumanns, Hilmars
Jónssonar, kom fram að starfandi eru
nú 30 barnastúkur með um 2.800 fé-
lögum. Kvað hann það álit sitt að
staða unglingareglunnar væri nú öllu
betri en verið hefði. Margir tóku til
máls og flestir lýstu ánægju yfir góðri
fundarsókn, einkum yljaði það
gæslumönnum að sjá svo mörg börn
á fundinum.
Stjórn unglingareglunnar var end-
urkosin, en hana skipa: Arnfinnur
Arnfinnsson, Kristinn Vilhjálmsson og
Sigrún Sturludóttir.
Á stórstúkuþingi var Hilmar Jóns-
son endurkosinn stórgæslumaður
með 34 atkvæðum. Sigrún Sturlu-
dóttir fékk 18 atkvæði. Er þingstörfum
lauk kl. 3 fóru fulltrúar og gestir í
ferðalag. Farið var í Þjórsárdal og
Sögualdarbærinn skoðaður. Flestir
unglingarnir fóru í sund í lauginni og
komið var við í Eden í Hveragerði á
heimleiðinni.
Eftirfarandi tillögur voru samþykkt-
ar á þinginu:
I. Unglingaregluþingið gleðst yfir
þeim árangri, sem náðst hefur með
áróðri gegn tóbaksnautn og telur að á
sama hátt ætti að beita fjölmiðlum
hins opinbera gegn neyslu áfengis og
annarra eiturlyfja.
Árshátíð barnastúkunnar í Keflavík
Yngrl dansflokkurlnn skemmtlr.
Barnastúkan Nýjársstjarnan í
Keflavík hélt sína árlegu árshátíð í
samkomusal Gagnfræðaskólans í
Keflavík 31. marz.
Mikið fjölmenni var á skemmtun-
inni. Þar voru á dagskrá heimatilbúin
skemmtiatriði svo sem dans og tísku-
sýning. Ennfremur komu Halli og
Laddi og sögðu brandara við mikla
hrifningu.
Meðfylgjandi myndir eru frá árshá-
tíðinni í Keflavík.
36