Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 43

Æskan - 01.01.1979, Blaðsíða 43
Hilmar Jónsson stórgæslumaður II. Unglingaregluþingið þakkar heilbrigðisráðherra Matthíasi Bjarna- syni framlög úr gæsluvistarsjóði til starfsemi unglingareglunnar. III. Unglingaregluþingið þakkar öll- um þeim sem starfað hafa að erind- rekstri og öðru fyrir unglingaregluna á liðnum árum. Væntir þingið þess að fjárhagur Góðtemplarareglunnar verði það rúmur að hægt verði að sinna erindrekstri meira en verið hef- ur. Telur þingið mikilsvert að unnt sé að styðja barnastúkustarfið með ýmsu móti og koma á heimsóknum og mannaskiptum milli stúkna meira en verið hefur. Miklu skiptir að skrifstofa stórstúkunnar sé virkur og vakandi tengiliður milli æðstu stjórnar og gæslumanna. IV. Unglingaregluþingið ályktar að þörf sé breytinga á siðbók barna- stúkna og leggur til að stórstúkan skipi nefnd til þeirrar endurskoðunar og hafi nefndin samráð við gæslu- menn. V. Unglingaregluþing þakkar Ingi- mar Jóhannessyni, Ólafi F. Hjartar og Sigurði Gunnarssyni mikil störf í þágu unglingareglunnar á liðnum árum, einkum og sér í lagi ritstjórn Vor- blómsins. Vormót unglingareglunnar og Um- dæmisstúkunnar nr. 1 var haldið á Galtalæk dagana 1. og 2. júlí. Rúm- lega 200 unglingar og fullorðnir sóttu mótið. Á dagskrá var reiptog, poka- hlaup, knattspyrna og boðhlaup. Um kvöldið var diskótek og varðeldur. Það þótti tíðindum sæta að stúlkur drógu stráka í reiptogi. RICHARD STRAUSS Tónskáldið, sem m. a. samdi „Rósariddarann" — sem kom út 1911, Richard Strauss, fæddist í Munchen, Þýskalandi, 1864. Faðir hans var tónlistarmaður og mjög íhaldssamur, en það hafðl áhrif á tónlistarkennslu sonarins. Þegar hann var í gagnfræðaskóla var 1. sinfónía hans frumflutt, og hann vann enn einn tónlistarsigur- inn 1885. Hans von Bulow skipaði Strauss, sem enga æfingu hafði, til að stjórna Serenaði sinni, og eftir það var Strauss strax ráðinn sem að- stoðarhljómsveitarstjóri við hljóm- sveitina. Hér kynntist hann m. a. fiðiuleikaranum Alexander Ritter, frábærum tónlistarmanni, sem Strauss bast vináttuböndum. Ritter var einnig menntaður gáfumaður og fékk Strauss til að kynna sér tónskáld á borð við Berlioz, Liszt og Wagner. Strauss var mjög raunsær maður og sótti þangað kraft í verk sín, sem hann notaði til að tjá það, sem honum lá á hjarta. í tónlistinni beitti hann dirfsku, hugarflugi og visku. Kímni- gáfa hans kemur einnig fram í verkum hans, ekki síst í „Uglu- spegli", sem er sinfónískt Ijóð. Mannþekking og umhyggja finnst í verkum hans. Margir söngvar og rómönsur hans eru vinsælar og alþekkt, ekki síst „Zueignung". Og í „Rósariddar- anum" kynnumst við glaðværu lífi á rókokkó-tímabilinu og létt tónlist hans er oft leikin af nútímahljóm- sveitum. Hann samdi eina af þeim fáu óperum þessarar aldar, sem enn eru leiknar. Hann varð æ frægari bæði í Evrópu og Ameríku sem stjórnandi og var fastráðinn hljómsveitarstjóri við Ríkisóperuna í Berlín, og síðar í Vín. Hann var líka þekktur píanóleikari, og lék oft undir fyrir frægar söng- konur á hljómleikum, og hann gerði mikið til að bæta kjör tónlistarmanna. Richard Strauss lést í Garmisch árið 1950. NÝTT ÓLYM- PÍUMERKI Búið er að teikna merki Ólympíu- leikanna í Moskvu 1980. Það var teiknarinn Victor Chizhikov sem teiknaði þennan skemmtilega bangsa. Og vonandi verður and- inn á leikunum jafn skemmtilegur og svipur rússneska bjarnarins. 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.