Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1979, Síða 51

Æskan - 01.01.1979, Síða 51
barnatími sjónvarpsins Svar til Sigurðar, Bíldudal: Á þessum vetri hefur Sigríður Ragna Sigurðardóttir kynnt í sunnudagsbarnatíma sjónvarps- ins. Sigríður er vel þekkt, því hún var ein af fyrstu sjónvarps- Þulunum og starfaði við sjónvarpið í sex ár. Þá kenndi hún um leið við Álftamýrarskóla í Reykjavík. Sigríður er nú gift kona og maðurinn hennar er Hákon Ólafsson, yfirverkfræðingur. Þau hjón búa að Einarsnesi 16 í Skerjafirði. Börnin eru tvö, Kristín Martha á sjötta ári og Sigurður Óli þriggja ára. Sigríður er bara kynnir í barnatímum sjónvarpsins á sunnudögum, og hefur enga hönd í bagga með efni þeirra, það starf er í umsjón sjón- varpsins undir stjórn Andrésar Indriðasonar. Vinsælustu per- sónurnar í þáttunum til þessa nú í vetur hafa verið skemmtifí- gúrurnar Glámur og Skrámur. HAFRAGRAUTUR Svar til Siggu í Hafnarfirði: afragrautur er góð og holl fasða, og ættu börn og ungl- ln9ar að borða hann oft. Hér kemurein uppskrift um góðan hafragraut. V21 vatn 2 dl haframjöl 1 tsk. salt 1- Setjið kalt vatnið í pott. 2- Hrærið haframjöl saman við. 3- Látið suöuna koma vel UPP, setjið saltið í, hrærið í á meðan, látið sjóða í 1 mín. A Hellið grautnum í súpu- ská' °9 berið fram með mjólk °9 sykri. TUNGUMALANAM Svar til Höllu, ísafirðl: Þú gætir skrifað til Hljóðfæra- húss Reykjavíkur, Laugavegi 96, og fengið upplýsingar um tungumálanámskeið á hljóm- plötum eða segulböndum til heimanáms. Sagt er að hægt sé að læra af Linguaphone- námskeiði nýtt tungumál á 60 tímum. Námskeið munu vera til á ensku, þýsku, spænsku, ítölsku, dönsku, sænsku, norsku, finnsku, rússnesku, grísku og japönsku. HAUKUR MORTHENS Svar til Jósefínu, Garðabæ: Sá dægurlagasöngvari sem á hvað lengstan og vinsælastan feril er Haukur Morthens. Það mun hafaveriðárið 1944, sem hann kom fyrst uppá pallinn sem söngvari, og enn í dag syngur hann og ekki er að heyra að stjarna hans sé nokkuð að fölna. Haukur mun hafa sungið yfir hundrað lög inn á hljómplötur; flestar hafa þetta verið svokall- aðar 78 snúninga plötur, síðan fjögurra og tveggja laga plötur og breiðskífur (LP). Sú fyrsta mun hafa komið út fyrir 15 árum. Það var 16 laga plata sem var vel tekið. í vetur hefur Haukur ekki haft hljómsveit, en hefur fjóra hljómsveitarmenn í sinni þjónustu og hafa þeir mikið sungið og leikið í einkasamkvæm- um. Fyrir síðustu jól kom út nýjasta plata Hauks, sem hann nefnir ,,Nú er Gyða á gulum kjól". Ekki er að efa að þessi nýja plata muni ná miklum vinsældum eins og allar hans fyrri plötur hafa gert. Það má segja um Hauk, að hann er þægilegur, lítil- látur, háttprúður og kurteis maður. Hann hefur aldrei reykt og því síður smakkaö vín og það er enginn vafi á því að velgengni hans er mikið því að þakka. 45

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.