Æskan - 01.10.1981, Síða 19
Kvikmyndir eru mikilvægari heldur en nokkur
önnur listgrein sem fræðslu- og þekkingarmiðill.
Barnið byrjar að horfa á skjáinn iöngu áður en það
lærir að lesa bækur eða skilja táknmál málverka,
höggmynda eða tónverka. Af þessum sökum eru
andleg heilbrigði, skírleiki og hreinleiki langana
framtíðarborgaranna mjög undir því komin, hvað
þeir sjá á skjánum.
Það er miklu meiri munur á viðbrögðum unglinga og
fullorðinna gagnvart atferli aóalpersóna í kvikmynd
heldur en almennt er álitið. Þessi munur stafar einkum af
skorti unglingsins á reynslu og áhrifagirni hans. Ungur
áhorfandi getur hrifist af þorparanum, sem verið er að
elta, og einnig af þeim, sem elta hann.
Jafnvel kvikmyndir (að jafnaði spennu-myndir) með
rómantískum og mjög ,,jákvæðum“ hetjum, geta ósjálf-
rátt og óháð tilgangi höfundarins alið á grimmd, fyrir-
Hinn vinsæli leikari Rolan Bikov.
litningu á einstaklingnum og jafnvel heilum þjóðum. Allt
er þetta komið undir því, hversu hetjan, sem er aðlað-
andi, glæsileg og ósgirandi, er mannleg.
Vart þarf að taka það fram, að hirðuleysi um og jafnvel
Barn! Hugsaðu þig tvisvar um!
Vandamál og sjónarmið varðandi kvikmyndagerð fyrir börn
Eftir Gennadi Rozental. — Samantekt úr safninu Kino-Detjan
19