Æskan - 01.01.1983, Qupperneq 4
búiö til að veita hverjum og einum þá
þjónustu, sem viö á. Heppilegast er að
velja sér þann tíma dagsins, þegar bú-
ast má við, að sem minnst sé að gera í
versluninni, því að það getur tekið
drjúgan tíma að velja réttan útbúnað.
Fyrst þarf að spyrja um getu viðskipta-
vinarins, svo að hægt sé að gera sér
grein fyrir að valdir séu ekki alltof stórir
skór, en aðalatriðið er, að skórinn falli
mjög þétt að fætinum. Rétt er að taka
fram, að ekki eru allar skótegundir eins
mótaðar og er því nauðsynlegt að máta
fleiri en eina gerð.
Endingartími skíðanna fer svo eftir
ýmsu, til dæmis hve oft er farið á skíði
yfir veturinn, því að skíðin slitna, kantar
og sólar og ýmislegt annað. Að end-
ingu er ráðlegt að kaupa góðar binding-
ar, en það eru til margvíslegar gerðir af
þeim. Fyrst eru bindingarnar settar á
samkvæmt skónum, og síðan eru ör-
yggin stillt eftir því, hversu þungur mað-
urinn er og hver geta hans er. Öryggi
hjá byrjanda eru því ekki eins stillt og
hjá vönu skíðafólki.
Talið var í október síðastliðnum, að
skíðabúnaður, þar með talinn fatnaður
að einhverju leyti, fyrir fjögurra manna
fjölsky'ldu, sem er algerir byrjendur í
skíðaiþróttinni, mundi geta orðið um 19
til 20 þúsund krónur.
Hér kemur miðlungsverð á nauðsyn-
legustu hlutum. Fyrst er það sjálfur
húsbóndinn í fjölskyldunni. Skíði undir
hann kosta um 1860 kr., bindingar um
1000 kr., ásetning 70 kr., stafir 247 kr.,
skór af miðlungsgerð um 1300 kr. Sam-
tals er þetta orðið 4477 kr. Skíðagalli
getur verið á ýmsum verðum eða allt
frá 1500-2000 kr. og upp í jafnvel
5000 kr. En sé tekið miðlungsverð, má
reikna með um 3000 kr.
Verð á útbúnaði kvenna er ósköp
svipað og hjá herrunum. Skíðin eru að-
eins ódýrari, 1280 kr., bindingar 620
kr., stafir 247 kr., ásetningin 70 kr. og
skór 1100 kr. Sama verð er á dömugöll-
um og herragöllum.
Þá eru það börnin. Þá væru skíðin á
1140 kr., bindingar 558 kr., stafir 73 kr.,
ásetning 70 kr. og skór um 600 kr.
Gallar væru á um 2000 kr. Verð á
húfum er um 100-150 kr., hönskum
um 150-350 kr. Lúffur eru ívið ódýrari.
Auðvitað mætti halda lengi áfram að
telja upp til dæmis gleraugu, sokka,
nærföt og eitt og annað, en þetta eru
svona höfuðdrættirnir í útbúnaðinum.
TIL BYRJENDA
í SKÍÐAIÐKUN
Einu sinni var kóngur og drottning í
ríki sínu. Þau áttu eina dóttur for-
kunnarfagra. Kóngi þótt mjög vænt um
dóttur sína og lét smíða handa henni
skemmu. í skemmu sinni geymdi Ýda
(en það var nafn hennar) meðal annars
gimsteina sína. Nú víkur sögunni í kot
karls og kerlingar. Þau áttu einn son
sem Áki hét. Einn dag fréttist það að
gimsteinar prinsessunnar væru horfn-
ir. Kóngur lofaði því að hver sem fyndi
gimsteinana mætti fá prinsessuna fyrir
konu og hálft ríkið að auki. Áki kom nú
að máli við föður sinn og móður og fékk
að fara í leitina. Áki gekk nú lengi lengi.
Loks kom hann að helli einum. Hann
fór inn í hellinn. Sá hann þá hvar tröll
eitt með þrjá hausa var sofandi. Áki var
með sverð með sér og einnig hníf. Tók
hann sverðið upp og hjó alla hausana
af tröllinu. Lyfti hann svo rúmdýnunni
og þar var gimsteinaaskja prinsessunn-
ar. Áki hélt nú til hallarinnar. Þegar
hann kom í höllina fagnaði Ýda honum
vel. Var svo brúðkaup þeirra haldið og
ef þau eru ekki dáin lifa þau enn þann
dag í dag.
Sigurlín Gunnarsdóttir
Álfhólsvegi 19
Kópavogi.
Viöskiptavlnur: Eru eggin ný?
Kaupmaður (við sendilinn): Alfreð,
viltu athuga hvort eggin eru orðin svo
köld að við getum selt þau.
4