Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1983, Side 7

Æskan - 01.01.1983, Side 7
út í það að syngja dægurlög. Fyrsta hljómsveitin sem ég söng með var hljómsveit Riba sem skemmti í Tjarnarkaffi. Ég var rrieð honum í tvo mánuði, en var reyndar búin að ráða mig hingað norður til að syngja með Atlantic kvartettinum. Riba var ekk- ert hrifinn af því og var alltaf að segja: „Ekki fara til Akureyrar, það er ekkert gaman þar.“ Hann hefur sennilega viljað hafa mig áfram. ... og síðan bara Finnur En ég fór samt og var hér eitt sumar. Það var sumarið '58 í Alþýðuhúsinu. Ég fór suður aftur og skemmti þá í Fram- sóknarhúsinu sem síðar varð Stork- klúbbur og loksins Glaumbær. Þar var ég með hljómsveit Gunnars Ormslev. Það var árið sem dönsku skemmtikraft- arnir Nína og Friðrik komu til landsins. Sumarið þar á eftir fór ég norður aftur, næsta vetur var ég á Hótel Borg með hljómsveit Björns R. Einarssonar. Og eftir það var ég með Finni, við erum saman enn og ætlum að verða saman áfram," og nú hlær Helena dátt. - Var Finnur þá með eigin hljóm- sveit? „Nei, það var Atlantic kvartett og þar voru einnig Ingimar Eydal, Óðinn Valdi- marsson, Sveinn Óli Jónsson og Edwin Kaaber. Það má eiginlega segja að þetta hafi verið fyrsta hljómsveit Finns og Ingimars og skemmti í Alþýðu- húsinu, þá var Sjálfstæðishúsið ekki tekið til starfa. Þessi hljómsveit starfaði í fjögur sumur. Að því loknu fórum við Finnur suður, en Ingimar byrjaði með eigin hljómsveit um leið og Sjálfstæðis- húsið opnaði. Við komum ekki inn í dæmið þar við Finnur fyrr en 1966. Síðan spiluðum við stanslaust í Sjálf- stæðishúsinu til ársins 1976 eða 1977 eða þar til Ingimar varð fyrir slysinu. Þá hættum við í eitt og hálft ár eða þar um bil, en að því loknu komum við Finnur þar inn aftur, hljómsveit Finns Eydal, en við vorum hætt þar áður en húsið brann." í Alþýðuhúsinu á Akureyri 1960. Sextán ára söng hún lagið Hvítlr mávar. „Sjallastemmningin" landsfræga - Það tala margir um „Sjalla- stemmningu" sem mun víst vera landsfræg, og það er óhætt að segja að það hafi verið hljómsveit Ingi- mars Eydal sem skapaði hana. „Ég myndi taka undir það, það er ekki síst hljómsveitinni að þakka þegar góð stemmning er á dansleikjum. Það var oft ákaflega gaman í Sjálfstæð- ishúsinu á þessum áum. Það var t. d. opið öll kvöld vikunnar yfir sumar- tímann nema miðvikudagskvöld og mikið um ferðafólk. Mánudagskvöld voru t. d. oft alveg ágæt kvöld, opið til hálf tólf. Fólki fannst tilheyra að fara í Sjallann, þegar það kom til Akureyrar." - Á þeim tíma sem þið eruð á bólakafi í þessu ef svo má segja, eignist þið hjónin þrjú börn. Hvernig gekk að samræma það að ala upp börn og vinna úti á þennan hátt? „Ég held að börnin hafi aldrei beðið neinn skaða vegna þess. Þá vann ég ekkert annað utan heimilisins en þetta. Ég á yndislega tengdamóður sem ævinlega hefur verið boðin og búin til að passa börnin og hún gerði það í mörg, mörg ár.“ — En var það ekki oft erfitt að vera að skemmta fram á nótt og þurfa svo að taka til við heimilis- störfin snemma morguninn eftir ? „Ég neita því ekki að ég var oft syfj- uð. Hins vegar hef ég alltaf haft hestaheilsu og það hefur auðvitað haft sitt að segja. Ég held að ég hefði aldrei getað þetta ef ég hefði ekki verið heilsuhraust." - Eins og alþjóð veit hefur He- lena Eyjólfsdóttir sungið gífuriegan fjölda af lögum inn á hljómplötur. Hún sagðist ekki vita hversu mörg lögin væru orðin eða plöturnar, enda skipti það ekki mestu máli. En hvenær kom fyrsta platan og hvað var á henni? „Ég var 11 ára þegar ég söng inn á fyrstu plötuna, en það voru tveir jóla- sálmar, „Heims um ból“ og „í Betlehem er barn oss fætt". Það var Tage Amm- endrup sem þá var með Islenska tóna sem gaf þetta úr á 78 snúninga plötu. Fimm árum síðar vildi hann gefa þessi lög út aftur, á 45 snúninga plötu og fannst þá að það yrði endilega að bæta tveimur lögum við. Þá var ég 16 ára, og sálmunum „Ástarfaðir himinhæða" og „Jesú bróðir besti“ var bætt við. 7

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.