Æskan - 01.01.1983, Page 9
Tríó Finns Eydal í Þjóöleikhúskjallaranum 1962. Frá vinstri: Finnur, Helena, Gunnar Reynir Sveinsson og Edwin Kaaber.
um. En þetta er að því leyti erfiðara að
það þarf að ferðast um með hljóðfærin,
stilla þeim upp fyrir hvern dansleik og
þeytast um í bíl.“
- Nú er sjálfsagt erfitt að finna út
hvað þau lög sem þú hefur sungið
inn á plötur um dagana eru orðin
mörg. En er eitthvert lag sem þú
heldur meira upp á en önnur?
„Það er ekki hægt að segja að ég
haldi meira upp á eitt lag en annað, en
það eru ákveðin lög sem ég er ánægð-
ari með en önnur. Ég hef ekkert dálæti
á neinu því sem ég sjálf hef gert á
plötu. Ég er hinsvegar ánægð með lag
á plötunni „í sól og sumaryl" sem heitir
„Skín sól“. Mér fannst þetta lag vel
heppnað en það heyrist mjög lítið. Ann-
að lag var á plötunni „Kátir dagar" sem
heitir „Komdu til mín“ og mér fannst
það mjög vel heppnað, en það er sama
sagan með það, það er lítið spilað."
- Það fer sem sagt ekki alltaf
saman að þið séuð ánægð með eitt-
hvert ákveðið lag og að það nái vin-
sældum og sé mikið spilað?
„Nei, alls ekki, þetta er svo mikið
happdrætti og það renna allir blint í
sjóinn hvað þetta varðar, allir plötu-
útgefendur og flytjendur. Ef plötuútgef-
andi vissi hvað yrði vinsælt þá myndi
hann fá einhverja til að koma því á
plötu og viðkomandi plötuútgefandi
væri orðinn margmilljóneri."
- En finnst þér það ekki undar-
legt að lag sem þið eruð mjög
ánægð með, finnst að vel hafi tekist
til við, skuli ekki ná athygli fólksins?
„Jú, mér finnst það, og þetta er eigin-
lega bara sorglegt. Ég held að allir
hljómlistarmenn hafi þessa sögu að
segja. Það er búið að leggja mikla
vinnu í eitthvert lag og allir eru ánægðir
með útkomuna, en lagið heyrist aldrei,
þetta er leiðinlegt."
Hef mjög gaman af
bítlalögunum
- Nú hafa gengið yfir ákveðin
tímabil í tónlistinni á meðan þinn
ferill hefur staðið, t. d. bítlatímabilið
fræga. Hefur ekki verið erfitt að að-
laga sig þessu hverju sinni?
„Nei, ég get ekki sagt það. Við tókum
t. d. bítlalögin upp um leið og þau
komu, enda hefur alltaf verið reynt að
vera með það sem hefur verið vinsælt
hverju sinni. Ég hafði mjög gaman af
bítlalögunum þá, og enn meira gaman
af þeim í dag. Mér finnst þetta yfir höfuð
frábær lög.“
- En á hvaða tónlist hlustar þú
aðallega, hvað er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Ég hef mjög gaman af fallegum
dægurlögum. Ég hef líka gaman af
sumum lögum sem ganga í dag, ég
hlusta á vissa tegund af jass og hef
gaman af mörgum klassiskum verkum.
Annars hlusta ég yfir höfuð ekki mikið á
tónlist, ég má hreinlega ekki vera að
því eins og er. Ég á mikið af plötum en
hlusta yfirleitt ekki mikið á þær nema
þegar ég þarf þess vegna æfinga.
Þetta á vonandi eftir að breytast."
9
BBI