Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1983, Page 25

Æskan - 01.01.1983, Page 25
GOTT RAÐ Margir eru fæddir með skíði á fótum en kunna þá ekki fjalla- og útivist- arreglurnar. Styrkjum Rauða krossinn Plastpokar á 3 krónur teppi. (Nú fást líka víða álpokar sem hægt er að klæða fólk í). Gefið honum heitt að drekka - þó ekki áfengi. Látið hann fara í heitt bað ef hægt er (40°). Ef hinn ofkældi er meðvitundar- laus: Veitið markvissa skyndihjálp við meðvitundarlausa,“ en um það fjallar næsta grein okkar í þessu blaði. (Þessi kafli hér á undan er úr bókinni Skyndihjálp eftir Uffe Kirk lækni bls. 41. RKÍ gefur út). Margir íslendingar hafa dáið á liðnum öldum vegna ofkælingar, orðið úti, eins og sagt er. Það get- um við að nokkru leyti skilið. Þá voru ekki veðurfregnir í útvarpi og sjónvarpi, þá þurfti að fara vegi og vegleysur gangandi eða á hestum, ár voru óbrúaðar og þá voru ekki til þau góðu skjólföt sem við höfum nú á dögum. Nú á tímum má oftast kenna það fyrirhyggju- eða hugs- unarleysi ef við búum okkur ekki nógu vel. Er sorglegt til þess að vita að fólk lendi í lífshættu af þeim sökum. Gætið ykkar á skautum og skíðum þegar þið eruð orðin þreytt. Margir fá slæmar byltur þegar þeir skreppa „bara eina ferð í viðbót.“ „Einu sinni á hverjum tveimur vik- um berst okkur hjálparbeiðni utan úr heimi vegna jarðskjálfta, flóða, fellibylja, styrjalda og annarra hörmunga. Jarðskjálftar og eldgos geta einnig dunið yfir okkur ís- lendinga." Svo segir m. a. á veggjspjaldi sem Rauði krossinn hefur látið útbúa og mun setja upp í matvöruverslunum til að minna á nýstárlega aðferð til að afla félaginu tekna. í verslunum eru til sölu innkaupa- pokar úr plasti, merktir Rauða kross- inum. Hver poki verður seldur á 3 krónur og verður tekjum af sölunni varið til hjálparstarfa innanlands og utan. Til marks um útgjöld Rauða kross- ins má hafa að árið 1981 keypti fé- lagið átta nýjar sjúkrabifreiðar sem kostuðu tæplega 1.6 milljónir króna. Plastpokar á 3 krónur 25

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.