Æskan - 01.01.1983, Side 37
imillHIIHIIIIHHII
Hræðsla við myrkur
Eftir Dr. G. C. Myers.
vera aö hughreysta þaö - við þaö
hverfur hræðsla þess ekki. Það verður
að reyna að gera það öruggara - og
leiðin til þess er að vera hjá þeim í
myrkri og segja því fallegar barnasögur
og sömuleiðis að láta hurðina á barna-
herberginu og stofunni, þar sem fólkið
Sum börn fara á vissum aldri allt í
einu að hræðast myrkur - þau verða
hrædd við að ganga í gegnum dimmt
herbergi eða að sofa í myrkri o. s. frv.
Stundum er auðvelt að finna ástæð-
una fyrir þessari hræðslu barnsins.
Eldri börn hafa þá hrætt það, eða full-
orðið fólk sagt því i hugsunarleysi
sögur um drauga, nornir, villidýr og
annað slíkt. En hvers vegna hafa sum
börn aðeins ánægju af þessum sögum,
en önnur verða hrædd og dreymir illa
drauma? Margir myndu svara því á
þessa leið: Þau síðarnefndu eru til-
finninganæmari og huglausari. En þá
vaknar spurningin, hvers vegna eru
þau það?
Það kemur oft í Ijós, að það er ekki í
raun og veru myrkrið, sem þessi börn
hræðast, heldur eitthvað annað - en
þau geta ekki gert sér það Ijóst sjálf.
Kannski eru þau hrædd við að pabbi
og mamma fari frá þeim, hrædd við að
vera ein eða við að vera hegnt fyrir
eitthvert skammarstrik, sem ekki hefur
komist upp um þau. Það má orða það
svo að hræðslan sé svo „ofarlega í
huga barnsins" að það þarf ekki nema
lítilræði, svo sem eina Ijóta sögu, til að
hún brjótist fram. Lítill drengur, sem átti
fráskilda foreldra, var ákaflega myrk-
fælinn. Það sem hann hræddist mest í
raun og veru var það, að mamma hans
færi líka frá honum, eins og pabbi hans
hafði gert.
Nú eru allir hættir að sýna svona
barni hörku og neyða það til að vera eitt
í myrkri. En auðvitað á samt ekki að
er, standa í hálfa gátt. En það er ekki
aðeins á kvöldin og þegar myrkur er
sem á að reyna að gera barnið öruggt
og óhrætt. Það á að láta barnið finna
það allan daginn að ótti þess sé með
öllu ástæðulaus.
Ef hræðsla þessi hverfur ekki og ef
barnið hefur oft illa drauma og gengur í
svefni, er ráðlegt að leita læknis.
HRÆÐSLA VIÐ MYRKUR
VERÐLAUNAGETRAUN
HVER FINNUR SMÁRANN?
Hún Sigga vinkona okkar hefur verið svo hepp-
in að finna fjórblaða smára, þar sem hún var í
garðnum heima hjá sér, en þegar hún ætlaði að
taka hann fann hún hann hvergi. Getið þið nú
hjálpað henni til að finna hann?
Smárann munuð þið finna á einhverri blað-
síðunni í þessu blaði. Þeir sem verða svo heppnir
að finna hann, geta sent blaðinu svör sín fyrir 1.
mars. Tilgreinið stað og blaðsíðu, sem þið hafið
fundið hann. Fimm bókaverðlaun verða veitt fyrir
rétt svör. Skrifið nöfn og heimilisföng greinilega
og takið fram aldur ykkar. Utanáskrift er ÆSKAN,
Box 14, Reykjavík. (Verðlaunagetraun).
37