Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 48

Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 48
Nokkur forpaldardýr sem liðin eru undir lok 1. Cephalaspis Þessi einkennilegi fiskur var uppi fyrir nær 300 milljónum ára. Hann hafðist aðallega við í árós- um, en gekk þó upp í ár og vötn. Hann var um 4-18 þumlungar á lengd og hafði beinkraga á höfði. 2. Plesiosaurus. Þetta var risaeðla, sem hafðist við í vatni á jura- og krítar- tímabilunum, eða fyrir 60-115 milljón- um ára. Nokkrar tegundir af henni eru kunnar, og er stærðin frá 3-30 fet. Hún var með bægsli og á stærstu tegundun- um voru þau allt að 6 feta löng. Hún synti mjög hratt og var snör í snúning- um. - Sumir halda að hið nafntogaða skrímsli í Loch Ness sé afkomandi hennar. 3. Ichthyosaurus eða fiskeðlan, var einkennileg skepna. Hún hafði vöxt sem fiskur, en fram úr hausnum stóð langt nef, líkast fuglsnefi. Hún var með sporð, en auk þess fjóra hreifa líkt og selur. Augun voru stór og umhverfis þau var beinhringur þeim til hlífðar. Hún át allt sem að kjafti kom. Sennilega hefir hún hafst við víða í höfum og var mismunandi að stærð, minnstu tegund- irnar um 2 fet á lengd, en þær stærstu um 40 fet. Að öllum líkindum hefur hún fætt lifandi afkvæmi. 4. Mammút. Heimkynni hans voru á norðurhveli jarðar, og hann var kafloð- inn. Sumir hafa kallað hann „Dýrakon- ung ísaldar", en hann mun þó ekki hafa verið stærri en indverski fíllinn sem honum er skyldastur. 5. Tígrisdýrið „Saxtanni“. Kunn- ugt er að dýr þetta hefur verið uppi á Miocene-öld og fram á Pleistocene-öld (fyrir 28-1 milljón árum). Það var á stærð við Ijón. í efra skolti hafði það tvær ógurlegar vigtennur, 7 þumlunga langar, og af þeim dregur það nafn. Kjálkar voru þannig, að það gat glennt ginið nóg til þess að hafa full not af þessum tönnum. Þetta var eitthvert ógurlegasta rándýrið, sem uppi var á þeim tíma, en það er þó ekki réttnefni að kalla það tígrisdýr. 6. Moa-fuglinn var á Nýja-Sjálandi og er skammt síðan hann varð al- dauða. Maori-menn útrýmdu honum og menn ætla að það hafi verið skömmu áður en Cook kom til Nýja-Sjálands 1769. Fuglar þessir höfðu enga vængi og gátu því ekki flogið, fremur en strút- urinn. Þeir voru skrokkmeiri og stærri en strútarnir, oft 11 fet á hæð. 7. Dodo-fuglinn. Hann var á eynni Mauritius. Portúgalir fundu eyna árið 1505 og var hún þá óbyggð og hafði aldrei nokkur maður átt þar heima. Ekki námu Portúgalir eyna, en Hollendingar settust þar að 1598. Og um einni öld síðar höfðu menn algjörlega útrýmt Dodo-fuglunum, enda voru þeir ófleyg- ir, en þóttu ágætir til átu og mikið búsílag í þeim. 8. Dipiodocus. Þetta var ein af risa- eðlunum og gat orðið 90 fet á lengd og 16 fet á hæð. Hún var grasæta og hafð- ist við í flóum og vötnum, þar sem mikill vatnagróður var. Þungt hefur hún stigið til jarðar, því að hún vó um 30 lestir. Höfuðið var lítið og tennur smáar. Ein- kennilegt var það, að nasaborurnar voru ofan á höfuðskelinni. 9. Triceratops. Þessi skepna var uppi á ofanverðri krítaröld og var jurta- æta, þótt hún væri all-vígaleg ásýnd- um. Hún var um 25 fet á lengd og 19 fet á hæð. Hausinn var 6 feta langur og á honum voru þrjú geysimikil horn, eitt á trjónunni og svo sitt yfir hvoru auga. Aftan á hausnum var gríðarmikill horn- kambur, og trjónan var úr horni. 10. Tyrannosaurus. Leifar af þess- ari risaeðlu hafa fundist í jarðlögum frá jura-timabilinu í Bandaríkjunum. Hún var hið grimmasta rándýr og lifði aðal- lega á þeim eðlum, sem voru grasbítar. Lengd hennar var um 47 fet frá tranti aftur á halabrodd. Hún gekk á afturfót- unum, því að framfætur voru mjög litlir, en á þeim voru þó voldugar klær. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.