Æskan - 01.06.1987, Qupperneq 8
SLÆVA
LÍFSÖNGUN
segir
Morten Harket,
söngvari A-Ha
í símaviötali
— Halló, Morten Harket hér.
Þið voruð að biðja um smá-
spjall?
— Já, okkur langaði nú aðal-
lega til að vita hvernig ykkur
A-Ha piltunum hefði líkað hér á
íslandi?
— Alveg þrælvel þakka þér
fyrir. Við fengum frábærar við-
tökur. Við hefðum bara viljað
staldra miklu lengur við. Við
höfðum nánast ekki tíma til að
gera neitt skemmtilegt. Kynnast
landi og þjóð o.s.frv. En ég hef
mikinn hug á að heimsækja ykk-
ur aftur og þá þegar ég á frí svo
að ég geti skoðað mig um í róleg-
heitum. Ég hefímörg ár lagt mig
eftir allrahanda upplýsingum um
Island. Mérfinnst svolítið spenn-
andi að við Norðmenn skulum
eiga þetta nákomna frændþjóð
úti í miðju Atlantshafi. Skyld-
leikinn er það mikill að mér tekst
að stauta mig þokkalega fram úr
'íslenskum lestexta.
— Af hverju gátuð þið ekki staldrað
lengur við á íslandi fyrst þú hefur þetta
mikinn áhuga á landinu?
— Við vorum í vinnunni. í því tilfelli
ráða umboðsmenn, hljómplötuútgef-
andinn, hinir í hljómsveitinni og aðrir
samstarfsmenn ferðinni, reyndarísam-
vinnu við mann sjálfan. Það voru ekki
allir jafnspenntir fyrir íslandsferð í
þessum hópi. Fámennið á íslandi kem-
ur í veg fyrir að landið sé ákjósanlegur
vettvangur fyrir tónleikahald. í Banda-
ríkjunum tekst vinsælum músíköntum
að draga allt upp í hálfa milljón manns
á eina tónleika. Á íslandi náðum við
ekki 1% af þeim fjölda á eina tónleika.
Þó fylltum við stærsta tónleikahúsið
ykkar. Ég vil samt ekki að þið haldið að
innan A-Ha hópsins hafi einhverjir sett
sig alfarið á móti íslandsheimsókn. Það
fannst öllum þetta sniðug hugmvnd að
einhverju leyti. En enginn lagði eins
mikla áherslu á að við samþykktum
þetta og ég. Frumsýning James Bond-
myndarinnar, „The Living Daylights-',
ýtti svo undir ákvörðun umboðsmann-
anna.
— Finnst ykkur sem metnaðarfullri
hljómsveit ekki eins og þið séuð að taka
niður fyrir ykkur að setja músík við lág-
kúrulega klisjumynd?
— Við lítum frekar á það sem viður-
kenningu að vera fengnir til að tón-
skreyta James-Bond mynd. Hvað sem
segja má um klisjur, ofbeldi, karl-
rembu eða annað sem einkennir James
Bond þá hafa framleiðendur þessara
007 mynda ætíð leitað á náðir vinsælla
og viðurkenndra músíkanta. Það er
engin skömm að því að feta í fótspor
Pauls McCartneys, Duran Duran, eða
Preetenders. Að auki er þetta spurning
um fé og frama. Við fengum vel greitt
fyrir þetta, ókeypis myndban
kynningu sem mætti meta á vio
milljóna króna auglýsingaher e
Myndbandið mætti líka meta á m’ J.° j
ir króna sé miðað við fyrri myno 0
A-ha. • nir
— Lagið ykkar í myndinni nnn
óþægilega á Duran Duran? *
- Er það? Svo mikið er þó ví«
við reyndum ekki að stæla Duran
an. Aftur á móti unnum við þetta lag ,
þess að hafa séð myndina eða vl_ta ^
raun nokkuð um hana. Kannski v
höfum þá ómeðvitað verið undir éi 0
um frá James-Bond-lagi Duran u
an?
ÁGE ALEKSANDER'
SEN SELUR BETUR
— Eftir tónleika ykkar á íslandi 'a
haft á orði að þið væruð jafnvel enska^
í máli og músík en flestar enskar h jo
sveitir. .
— Ja. við gerum út frá Englandi- ^
höfum við átt heima undanfarin a
Fyrirmyndir okkar, alveg frá óarm
aldri, eru engilsaxneskar og marka
okkar er engilsaxneskur. Heima i
egi seljum við ekki einu sinni nærri
margar plötur og t.d. Áge Aleksan e
sen. a
- Égáttinúviðaðátónleikunum
íslandi voru allar kynningar á
að við, frændur ykkar, ættum að s 'i J
norskuna jafnvel. . ■
— Já, kynningarnar eru bara e ^
einvörðungu fyrir áheyrendur. Þær
einnig fyrir aðstoðarmenn okkar. -
þeir eru flestir enskir og skilja ekki or
norsku. Við erum ekki haldnir ne!n,_
þjóðarrembu. Við hömpum ekki þjo
erninu þó að við reynum svo sem e
að leyna því heldur. Við segjum hverj-
um sem vita vill að við séum norsk
hljómsveit og við tölum jákvætt um
Noreg og Norðmenn. Hins vegar rek-
um við ekki neinn áróður fyrir Noreg.
— Nema þið komuð hljómsveitinni
Fra Lippo Lippi á framfæri við bresku
pressuna.
— Það var óundirbúið. Við vorum
pumpaðir um skoðun okkar á norskum
hljómsveitum og nefndum Fra Lippo
Lippi sem dæmi um fýsilega norska
hljómsveit. En við teljum okkur ekki
eiga að vera í því hlutverki að vera
blaðafulltrúar annarra hljómsveita,
hvorki norskra né enskra. Þó myndum
við gleðjast yfir velgengni norskra
poppara á alþjóða vettvangi. Áge Al-
eksandersen ætti t.d. skilið að ná hylli
utan Skandinavíu. En hann dæmir
sjálfan sig til einagnrunar með því að
syngja einungis á norsku.
ÁHUGAMAÐUR UM
BINDINDISMÁL
— Áge Aleksandersen er ekki það
þekktur á íslandi að hægt sé að átta sig
á músíksmekk þínum þótt þú segist dá
hann. Á hvaða þekkta tónlistarmenn
hlustar þú af mestri ánægju?
— Allt frá Peter Gabriel til Sade, Ar-
ethu Franklin og Eurythmics. Besta lag
allra tíma tel ég vera „Free Nelson
Mandela" með Special Aka. Ég geri
ráð fyrir því að músík A-Ha beri keim
af því að við hlustum á fjölbreytta mús-
ík. Áður en ég gekk í A-Ha var ég
söngvari í sálarpoppaðri blúshljóm-
sveit sem hét Blái hermaðurinn (Sould-
ier Blue).
— Hvað voru félagar þínir í A-Ha,
Páll og Maggi, að gera þá?
8
Við lítum á það sem viðurkenningu
ð vera fengnir til að tónskreyta James Bond mynd. . .
9