Æskan - 01.06.1987, Page 50
FORVITNILEGT
OG FRÓÐLEGT
í okkar hluta heimsbyggðarinnar
liggja fuglarnir á eggjunum til að halda
hita á þeim en í heitari löndum þurfa
þeir að sjá til þess að halda hitanum í
skefjum.
Hvítvængjaða dúfan, sem gerir sér
hreiður úr greinum efst uppi á kaktus í
Arizona eyðimörkinni, liggur á eggjum
sínum til þess að koma í veg fyrir að hit-
inn á þeim fari yfir 39.5 stig. Þetta tekst
vegna þess að hreiðrið er laust í sér og
loft kemst auðveldlega að eggjunum en
jafnframt heldur dúfan eggjunum rök-
um og við uppgufunina lækkar hitinn á
þeim.
Lóan í Egyptalandi notar sér líka
uppgufun til kælingar. Hún verður oft
að unga út eggjum sínum í 50 stiga hita
og þegar hitinn stígur hæst grípur hún
til þess ráðs að bleyta eggin. Vatnið
sækir hún í brjóstfjaðrir sínar.
Rauði ofnfuglinn líkir eftir afrísku
leirkofunum. Fuglinn verður að fljúga
svo sem 1400 ferðir til að byggja sér
hreiður! Hreiðurveggirnir eru þykkir,
gerðir úr leðju blandaðri með stráum,
hárum og taði. Á daginn gleypa þeir
Fuglarnir kæla eggin!
Margir vefarafuglar gera hreiður sín þannig úr garði að rándýr komist ekki að þeih1-
Sumirgerasért.d. neyðarútgang til notkunar ef slanga skyldi birtast við aðaldyrnar.
Einstætt geimlistaverk
Frakkar ætla að halda 100 ára bygg-
ingarafmæli Eiffel turnsins hátíðlegt
með því að koma upp fyrsta minnis-
merkinu í geimnum. Árið 1989 á Ari-
ane-eldflaug að skjóta á loft gervitungli
sem frá jörðu mun sjást sem lýsandi
hringur á stærð við fullt tungl.
Ummál hringsins verður ríflega 24
kílómetrar. Gervitunglið verður gert
úr örþunnu plasti og mun því ekki vega
nema 500 kg þrátt fyrir stærðina.
Tunglið á ekki að flytja með sér tækja-
búnað af neinu tagi — tilgangurinn er
sá einn að það verði fyrsta listaverkið
Á
eða minnismerkið úti í geimnum.
hringnum verður komið fyrir 100 lo
belgjum og verður hver þeirra 6 metraf
í þvermál. Þeir verða festir við hringin11
með 240 metra löngum plastþráðuim
Gert er ráð fyrir að Eiffel-hringuriU1
verði settur á braut um jörð í 800 k111
100 loftbelgir á24 kflómetra hring verða fyrsta minnismerkið úti í geimnum. Það mun keppa við tunglið um dýrðina.