Æskan - 05.10.1987, Page 36
Umsjón Poppþáttar: Jens Kr. Guðmundsson
Kynning á blúsrokksveitinni
KENTARI
Fyrir þremur árum eöa svo var hljóm-
sveitin Kentár nokkurs konar fulltrúi
bárujárnsrokksins á íslandi. 1985 sendi
Kentár-kvintettinn frá sér jómfrúarplöt-
una „Same Places". Þá höfðu þeir
þroskast upp úr bárujárninu og voru
farnir að spreyta sig á metnaðarfullum
rokkballöðum. Enn halda Kentár-pilt-
arnir áfram að þróa músík sína og eru
nú einna fremstir íslenskra blúshljóm-
sveita.
Þar sem Kentár-blúsararnir starf-
rækja ekki aðdáendaklúbb skal hér
svarað nokkrum spurningum er vafa-
laust brenna á vörum íslenskra blús-
unnenda.
Nafn gítarleikara Kentárs: EINAR
Fæðingarár: Sjónvarpsárið mikla, 1966
Hæð: 1. hæð
Áhugamál: Safnar gítarnöglum frá
barokktímabilinu
Ferill: Kenndi sjálfum sérágítarerhann
nam nótnaflett hjá Skúla Scheving,
píanista
Nafn trymbils Kentárs: GUMMI
Fæðingardagur: Lengsti dagur ársins
1965
Hæð: 2. hæð
Sokkanúmer: L
Áhugamál: Líkams- og hrossarækt
Ferill: Lærði húðslátt hjá Bréfaskóla
Báru
Bassaleikari Kentárs: HLÖDDI
Fæddur: Á undan hinum
Hæð: 3ja hæð
Kjörorð: Fjallið er hærra en þú og hóll-
inn lægri en þú heldur
Áhugamál: Kínverskir málshættir og
rannsóknir á frama íslenskra kúreka-
söngvara
Ferill: Kynntist strengjahljóðfærum í
sumarbúðum unglinga hjá Tennis- og
badmintonfélagi Reykjavíkur 1976
Píanóleikari Kentárs: PÁLMI
Fæddur: Fimm árum áður en Bítlarnir
hættu
Hæð: 1. hæð til hægri
Eftirlætishljóð: Barnshlátur í berjamó
Áhugamál: Rannsóknir á förðun leikara
í þöglum dans- og söngvamyndum
Ferill: Hefur haldið fjölda einleiks-har-
mónikku-tónleika, bæði utan og innan
veggja heimilisins
Munnhörpublásari og söngvari Kent-
árs: SIGGI
Fæddur: Og uppalinn
Hæð: Önnur til vinstri
Áhugamál: Söfnun merkimiða á kassa-
gítara og ferðalög með flokknum Tap-
að-fundiö f leit að frægð og frama
Ferill: Útskrifaðist úr tónlistarskóianum
MIBI í Boston. Hefur jafnframt getið sér
góðan orðstír sem munnhörpuleikari
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, auk þess
að hafa verið um eins dags skeið viðloð-
andi þvottahúshljómsveitina Ikúska. . .
'i
36