Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1990, Page 7

Æskan - 01.01.1990, Page 7
vorum á vellinum langt fram á dag. Þegar ég kom heim alveg dauðþreytt- ur lauk ég við forsíðuna, horfði á sjón- varpið og fór snemma að sofa. Ég skilaði ritgerðinni með bros á vör. Nokkrum dögum síðar fékk ég hana aftur. A henni stóð A++ og kennarinn hafði skrifað: Miklar framfarir, haltu áfram á þessari braut. Ég var í sjöunda himni. Gamla konan kom upp í huga mér. Ég varð að muna eftir að segja henni frá þessu. Ég mundi ekki eftir henni fyrr en mánuði síðar þegar ég var að blaða í Morgunblaðinu. Þar sá ég andlit sem ég kannaðist við, það var með minn- ingargrein. Hún hafði þá heitið Matt- hildur. Ósvikið dæmigert ömmunafn, hugsaði ég. Hún hafði dáið úr hjarta- slagi í strætisvagni. Ég gat ekki gert að því en ég skammaðist mín. Af hverju hafði ég ekki farið til hennar á afmælisdaginn, eins og ég hafði lofað? Hún hafði áreiðanlega bakað pönnukökur og beðið eftir mér allan daginn. Ég hafði ekki einu sinni haft rænu á því að þakka henni fyrir að hjálpa mér með ritgerðina. Ég ætlaði aldrei að geta sofnað um kvöldið, svo mikið hugsaði ég um þetta. Strax eftir að skóla lauk daginn eftir fór ég og keypti blómvönd fyrir alla vasapeningana mína og fór í kirkju- garðinn. Ég ráfaði um í klukkutíma áð- ur en ég fann leiðið. Á litlum krossi stóð: Matthildur Sigurðardóttir. Megi hún hvíla í friði. Ég lagði blómin á leið- 'ð, kraup niður og spennti greipar. Ég vonaði heitt og innilega að hún heyrði til mín. Ég fann eitthvað heitt renna niður hægri kinnina. Það var tár. Les allt sem ég næ í Verðlaunasagan, Samviskubit, er eftir Gretu Jessen, 16 ára nemanda í Mennta- skólanum í Hamrahlíð. í umsögn dómnefndar sagði: „Kostir sögunnar eru margir - hún er aðgengileg fyrir lesandann, hún er á eðli- legu máli og lesandinn fylgist með henni frá upphafi til enda, þ.e. hún nær að grípa athygli hans. Efnistökin eru mjög góð og efni sög- unnar - sambandsleysi fólks og félagsleg einangrun gamals fólks - er efni sem á fullt erindi til nútímans. Stundum heyrir maður sagt að fólk sé hvergi jafneinmana sem í fjölmenninu því að í fámenni gefi fólk sér frekar tíma til að veita öldruðum athygli og félagsskap. Kannski verður þessi saga til þess að einhver börn eða unglingar gefi einmana fólki gaum og leit- ist við að veita því það sem því þykir kannski dýrmætast af öllu, félagsskap." Greta var í Hólabrekkuskóla þar til hún lauk 7. bekk en þá fór hún í Álftamýrar- skóla. Móðir hennar kennir þar. I haust hóf Greta nám á náttúrufræðibraut í MH. Ég spurði hana hvort hún hefði gert mikið að því að semja sögur. . . „Nei, ekki mikið. Ég hef helst átt við það þegar ritgerðarefni í skólanum var frjálst. - Nei, ættingjar mínir hafa ekki fengist við skáldskap en raunar hefur syst- ir mín samið enn meira en ég. Hún er að verða þrettán ára. Það skilur enginn hvað- an við höfum þetta.“ - Lestu mikið? „Já, ég les allt sem ég næ í nema ástar- sögur. íslensk skáldrit og þýdd, líka Ijóð. Öll fjölskyldan hefur mjög gaman af að lesa. Við erum vikulegir gestir í bókasafn- inu í Gerðubergi. Ég hef mest dálæti á sögum Einars Kárasonar. Mér finnst frá- sagnarstíll hans afar skemmtilegur. Ég kann best við Þórberg Þórðarson af þeim höfundum sem gengnir eru eða komnir á efri ár. Það er líka vegna frásagnarhæfi- leikans. - Ég á ekki eftirlætis-ljóðskáld. Það er ekki langt síðan ég sneri mér að þeirri grein. Ég byrjaði á Ijóðum skálda af eldri kynslóðinni en kann jafnvel að meta rímuð Ijóð og órírnuð." - Heldur þú að algengt sé að ungling- ar lesi eins mikið og þú? „Nei, ég held ekki. Margir horfa frekar á sjónvarp og myndbönd en að líta í bók. En vinkonur mínar lesa allar mikið. - Já, þær voru í Álftamýrarskóla með mér. Ég | þekkti nokkrar stelpur í þeim skóla áður 1 en ég fór þangað og kynntist öðrum. Nú 1 hef ég kynnst stelpum í MH en besta vin- I kona mín fór í Verslunarskólann." I Greta Jessen | - Eftirnafn þitt virðist danskt. . . „Já, faðir minn er danskur. Mamma 1 kynntist honum í Danmörku og ég er | fædd þar. Þau fluttust hingað þegar ég var | eins árs. Pabbi ætlaði að dveljast hér tvö | eða þrjú ár en þau hafa verið hér síðan. 1 Við erum þrjú, systkinin. Ég á líka átta ára 1 bróður.“ | - Áttu önnur áhugamál en lestur? 1 „Já, ýmis. Ég á nokkra pennavini og 1 skrifast oft á við þá. Þeir eru til að mynda I í Danmörku, Englandi, Þýskalandi, ísrael | og Malasíu. Ég hef hitt danska pennavin- | konu mína. Fjölskyldan fer næstum á | hverju sumri til Danmerkur. Við höfum | ekið þaðan suður um Evrópu, lengst til ít- 1 alíu. Mér þykir líka gaman að horfa á kvik- I myndir og hlusta á tónlist, alls konar tón- | list. Ég var þrjú ár í fiðlunámi þegar ég var | á barnsaldri. - Nei, ég stunda ekki íþróttir núna en 1 hef æft bæði sund og handknattleik. Ég | var fyrst í sundi í þrjú ár en hætti þegar | að því var komið að æfa á morgnana, fyrir | skólatíma. Ég æfði handknattleik í tvö ár.“ = - Hefur þú ákveðið nám eftir | menntaskólann - og framtíðarstarf? „Nei. Líklega fer ég í Háskólann og læri | einhverja grein náttúrufræði." | - Þú hyggst ekki snúa þér að ritstörf- | um? „Nei, ég á ekki von á því. Það er þó | aldrei að vita nema ég fáist við eitthvað | slíkt í tómstundum. . .“ Æskan 7

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.