Æskan - 01.01.1990, Page 8
Nína átti
heima á næsta
bæ. . .
„Nína og Geiri" í Æskuviðtali
Margir ungir lesendur Æskunnar
munu eiga hljómplötu eða snældu
með lögum sem Rokklingarnir
flytja. Sjálfsagt hafið þið öll séð
myndbandið með laginu um Nínu
og Geira - og sungið með hinum
bráðungu flytjendum! Þau eru
yngstu íslendingarnir sem hafa
fengið platínuplötu. Hana fengu
þau, og allir hinir Rokklingarnir, af
því að hljómplatan - og snældan -
seldust í meira en 7500 eintökum.
„Nína og Geiri“ heita Ástrós og
Gunnar Örn. . .
Gunnar Örn Ingólfsson er sex ára;
fæddur 28. september 1983. Hann á
heima við Vesturgötu í Hafnarfirði. í
húsinu var áður verksmiðja en nú hafa
verið gerðar þar m.a. þrjár íbúðir.
„Við erum fyrstu íbúðareigendurnir
sem hafa átt þetta hús,“ segir Gunnar
Örn.
Hann er skýrleiksdrengur og full-
orðinslegur í tali.
- Áttu systkini?
spyr ég og býst við að hann hafi alist
upp einn með foreldrum sínum.
„Ég á eina systur. Hún er ekki einu
sinni eins árs, fæddist núna í desemb-
er. I3.desember 1989.“
- Hvað heitir hún?
„Sigrún Ósk. Hún var skírð á spít-
8 Æskan
alanum sama dag og hún kom heim.“
- Heimsóttir þú hana þar?
„Já. Það var gaman að fá að sjá
hana.“
- Hefðir þú heldur viljað eignast
,bróður?
„Mér var bara alveg sama hvort það
var systir eða bróðir."
- Er ekki skemmtilegt að eiga lít-
ið systkini?
„Jú. En hún er alltaf vakandi á næt-
urnar og sefur á daginn. Það er það
skrýtna við hana!“
- Þú ert byrjaður í skóla. . .
„Já, ég ætlaði fyrst í Öldutúnsskóla
og fór þar í forskóla í nokkra daga en
svo fór ég í Víðistaðaskóla af því að
við fluttum af Suðurbrautinni. Við höf-
um bara átt heima á tveimur stöðum."
- Þekktirðu nokkurn í bekknum
þínum?
„Nei, ég þekkti engan en ég kynnt-
ist öllum.
Bestu vinir mínir eru Ingvar og
Hörður og stelpa sem heitir Sara.“
- Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum?
„Mér finnst skemmtilegast að læra
stærðfræði."
- Ertu líka í tónskóla?
„Já, ég er að læra á blokkflautu.
Kennarinn minn heitir Edda Borg.
Hún spurði mig hvort ég vildi syngja
fyrir Birgi.“
- Kunnir þú lagið um Nínu og
Geira?
„Nei, ég lærði það bara.“
(Móðir Gunnars Arnar segir að hann
hafi verið fenginn til að syngja til
reynslu. Hann hafi hvorki kunnað lagið
né textann en lært það á staðnum.
Undirbúningi og upptöku hafi verið
lokið á fimm klukkustundum!
„Hann er lagviss og fór eiginlega að
syngja áður en hann lærði að tala. Það
var mikið sungið með honum sem
ungbarni," segir hún)
Hann heitir Svartfreskja
- Áttu gæludýr?
„Ég á gullfiska. Ég átti áður kött.
Hann hét Depill. Þegar hann var
þriggja mánaða dó hann úr einhverri
veiki. - Jú, ég hef skírt fiskana. Ekki
alla samt. Einn er svartur og Ijótur og
vill vera í dimmunni. Ég lét hann heita
Svartfreskju. Já, mér finnst hann eins
og ófreskja. Ég á annan svartan, hann
heitir Svartskeggur. Svo er einn
óskírður sem er alltaf inni í húsinu.
Það voru þrír litlir í húsinu; þeir eru
allir dauðir. Ég var ekki búinn að
ákveða hvort ég ætti að láta þá heita
Kasper, Jesper og Jónatan - þeir voru
ræningjar en eru það ekki lengur
- eða Rip, Rap og Rup - þeir eru dá-
litlir hrekkjapúkar. Ég var ekki viss um