Æskan - 01.01.1990, Síða 10
fossi. Ég hef oft komið þangað og ver-
ið ein eða með Nonna og pabba og
mömmu. Amma kennir þar í skólan-
um. Afi á hesta. Já, ég hef farið á hest-
bak en það er teymt undir mér. Ég
fór einu sinni ein á bak á hesti. Hann
var inni í hesthúsi. Það var líklega Lýs-
ingur. Annan kölluðum við Hristing,
hann hossaðist svo mikið. Ég held að
hann heiti Geisli. Afi á líka hryssu,
Perlu, og tvö folöld, jaa, annað er nú
orðið stórt; þau heita Búri og Iri.
Við höfum oft farið til þeirra á
páskunum. f fyrra fékk Svana Kristín
frá þeim brúðu í staðinn fyrir páska-
egg. Þau gáfu Nonna líka einu sinni
fjóra bíla og mér Bangsa bestaskinn á
páskunum."
- Getur þú sagt mér eitthvað frá
ferðalögum sem þú hefur farið í?
„Við fórum til Vestmannaeyja í
sumar. Við heimsóttum Ingu frænku.
Við fórum á báti til að skoða helli en
við Nonni urðum bæði sjóveik."
- Hvað gerirðu þegar þú ert ekki
í skólanum?
„Ýmislegt. Ég er til dæmis að læra
ballett í Ballettskóla Sigríðar Ármann.
Ég byrjaði í haust. Já, mér finnst það
mjög gaman. Ég er líka að læra á
blokkflautu. Það eru tímar í skólan-
um.“
Við þökkum kotrosknum og kank-
vísum krökkum fyrir spjallið og óskum
þeim alls góðs. . .
K.H.
- Fannst þér ekki erfitt að læra lög-
in og textana?
„Nei, nei. Ég gat lesið textana. Sum
lögin kunni ég. Ég hef nefnilega sungið
voða mikið í sumarfríinu uppi í
Skorradal, í bústaðnum hjá afa og
ömmu. Já, amma syngur oft með mér
og stundum kemur frænka með söng-
bókina sína. Jú, hún er fullorðin kona
- sem á stelpu sem er fullorðin kona
sem á lítinn strák! Hann er þriggja
ára.“
- Ertu orðin vel læs?
„Já, ég er alveg læs. Ég var orðin
læs þegar ég fór í sex ára bekk. I sum-
ar las ég bókina um Pollýönnu. Ég var
tvö kvöld og einn morgun að lesa
hana. Hún er svona þykk,“ segir Ást-
rós og sýnir þykktina með höndunum.
- Kynntistu krökkunum sem
sungu með þér?
„Jaaá, ég kynntist Söru best. Hún er
átta ára. Hún syngur lagið, Kántríbæ, á
plötunni. Ég hef komið heim til henn-
ar. Ég kynntist líka dálítið Sædísi,
Dröfn og Boggu. Þær eru allar ellefu
ára.“
- Hverjar eru bestu vinkonur þín-
ar?
María - og Sigga Jóna, Diljá, Silja og
Lára. Lára fluttist til Svíþjóðar í sum-
ar.“
- Áttu systkini?
„Já, ég á bróður og systur. Bróðir
minn er fimm ára. Hann heitir Jón en
„Hundarnir hlupu óskaplega hratt, á hundrað eða tvö hundruð. . . “
10 Æskan
„Hún er fullorðin kona - sem á stelpu sem er fullorðin kona sem á lítinn strák!"
er oftast kallaður Nonni. Systir mín
heitir Svana Kristín. Hún verður eins
árs á morgun.“ (18. janúar. . .)
(Svana Kristín hefur komið með
mömmu sinni og systur og hlær oft til
okkar. Þess vegna spyr ég Ástrós:)
- Er hún alltaf svona kát?
„Já, hún er oftast kát. Hún segir
„æ“ við krakkana. Það er „hæ“. Hún
getur líka sagt „gúkka“ um dúkkuna
sína.“
Kölluðum hann Hristing
- Hefur þú komið á sveitabæ?
„Já, afi og amma eiga heima að íra-