Æskan - 01.01.1990, Qupperneq 15
Langar til að stunda
sjóinn og gera út bát
Stefán Karl er 14 ára, fæddur 10. 7.
1975. Hann hefur leikið eitthvað á hverju
ári í Oldutúnsskóla og lék í sýningu ungl-
ingadeildarinnar í fyrra. Hann segir að
ýmsir í ættinni hafi áhuga á leiklist; þekkt-
astur sem leikari sé Magnús Ólafsson
móðurbróðir sinn. Hann segist vera í
leikstarflnu af lífi og sál; það sé aðal-
áhugamál sitt. Hann leikur líka í Hróa
hetti sem sýndur verður í febrúar svo að
hann hefur nóg við að fást á þessu sviði!
Eftirlætisleikarar Stefáns eru Laddi
- „hann er alveg frábær, æðislegur,"
- og Pálmi Gestsson. Hann hefur mest
dálæti á Eddu Björgvinsdóttur af leikkon-
um.
„Já, ég er hrifnastur af gamanleikritum,
vil hafa fjör í þessu,“ segir hann og iðar
allur.
- Hver eru önnur áhugamál þín?
„Mér þykir ofsalega gaman að fara út á
sjó á trillu og veiða. Ég var á vappi niðri á
bryggju í sumar og hitti mann sem heitir
Sigurður. Það er þrælfínn náungi. Ég
kynntist honum og hef fengið að fara með
honum á sjóinn. Hann gerir út bát og
stundar veiðar með línu, færi og öðru.
- Jú, ég var sjóveikur í fyrstu ferðunum,
alveg grænn, maður. Ég varð að fara inn
°g leggja mig - svo vaknaði ég aftur í
landi. .
- Hefur þú fengist við veiðar áður?
„Já, ég hef farið á hverju sumri til Seyð-
isfjarðar. Systir pabba á heima þar. Ég hef
íarið á sjó á trillu með manni sem heitir
Unnar. Ég hef líka veitt af bryggjunni. Þar
'fer maður golþorska, næstum því. . .,
- svona stóra."
Stefán teygir svo mikið úr handleggjun-
um að við Þórunn undrumst þessa stærð'
og drögum í efa að hann veiði metra langa
þorska fyrir austan. . .
„Nei, þeir eru kannski ekki alveg svona
stórir en vænir samt! Ég flakaði nokkra á
hryggjunni einu sinni og reyndi að selja
útlendingum sem komu með ferjunni.
~ Nei, mér tókst ekki að selja neitt.“
- Við hvað langar þig til að starfa að
loknu námi?
„Ég gæti vel hugsað mér að fara í Stýri-
ftiannaskólann og gera síðan út bát. Einu
sinni ætlaði ég að verða flugmaður en það
er flogið úr höfðinu á mér.“
- Fleiri áhugamál. . .?
„Mér þykir gaman að fara á skíði. - Jú,
ég æfði einu sinni knattspyrnu með Hauk-
um en hætti af því að ég var svo tapsár.
Stefán Karl og Þórunn Eva - leikendur í sýningu Leikfélags Hafnarfjaröar, Þú ert í
blóma lífsins, fíflið þitti
Við töpuðum einu sinni 0-16! Þá lét ég
mig hverfa. . .“
- Hefur þú farið til útlanda?
„Ég fór til Ítalíu fyrir þrem eða fjórum
árum. Það var fínt! Gott veður allan tím-
ann nema einn dag; þá var rok og rigning.
Ég hef aldrei vitað eins heitt regn og heit-
an vind.“
- Áttu gæludýr?
„Ég hef átt kött - og páfagauk. Það
varð að lóga kettinum; hann var orðinn
eins og ég, trylltur og brjálaður út og
suður.
Bræður mínir áttu froska og skjaldbök-
ur þegar ég var lítill. Ég gerði víst út af
við skjaldbökurnar þegar ég sullaði í búr-
inu; ég hvolfdi þeim á bakið. . .“
- Hefur þú gaman af tónlist?
„Já, já. Ég hef mest dálæti á HLH-
flokknum, Sálinni hans Jóns míns og Geir-
mundi Valtýssyni."
Skólabjallan gleymdist
Stefán og Þórunn segja að æfingar hafi
ekki komið niður á skólasókn nema síð-
ustu vikuna fyrir frumsýningu. Kennarar
hafi þá verið liðlegir og séð í gegnum fing-
ur við þau og aðra leikendur.
- Hafa sýningar gengið snurðulaust?
„Það vill gleymast að taka hluti með inn
á sviðið. Ég átti að koma með skólabjöll-
una en steingleymdi henni þó að leikstjór-
inn væri búinn að minna mig hundrað
sinnum á þetta! Ég varð bara að skipa
krökkunum að koma inn,“ segir Stefán.
„Við höfum verið með kex og vatn við
fermingarathöfn í staðinn fyrir oblátur og
messuvín. Einni stelpunni fannst þetta svo
viðbjóðslegt að hún hljóp út og kastaði
upp.“
- Vel á minnst: Um hvað fjallar leik-
ritið?
„Það fjallar um stúlku - frá getnaði og
þar til hún tekur stúdentspróf og fer út á
vinnumarkaðinn. í því eru mörg stutt at-
riði og skiptingar eru örar. Auk stúlkunn-
ar koma við sögu foreldrar hennar, skóla-
systkini og kennarar."
Að lokum skal nefnt að Þórunn leikur
stúlkuna en Stefán Karl túlkar fimm kenn-
ara. . . k.H.
Æskan 15
S
i»l;
LjósmMyndsköpun / Guðmundur Viðarsson