Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1990, Side 16

Æskan - 01.01.1990, Side 16
Mætti koma oftar út Sæl, Æska! Ég þakka gott blað en finnst að það ætti að koma oftar út en nú er raunin. Getur þú sagt mér heimilisföng að- dáendaklúbba Richard Marx og Guns n’ Roses? ÉG. Svar: Heimilisföng aödáendaklúbba eru á bls. 59. Límmiðar og frægt fólk Kæra Æska! Það eru um það bil þrír mánuðir síðan ég gerðist áskrifandi. Ég hef því fengið tvö fylgiblöð með límmiðum. Ég safna slíkum miðum og þess vegna langar mig til að fá senda alla límmiða sem hafa fylgt Æskunni. Er það unnt? Má senda Æskunni sögur til birt- ingar? Mér þykir Æskan vera mjög gott blað en finnst þó að í því mættu vera aðeins fleiri myndir af frægu fólki en verið hefur. Binna. Svar: Við munum reyna að verða við beiðnum sem þessari meðan birgðir endast. Að sjálfsögðu má senda sögur til blaðsins - en ekki er unnt að birta allt sem berst. Nýlokið er smásagna- samkeppni og hefði verið tilvalið að taka þátt í henni. Margar sögur úr samkeppninni btða birtingar. Hvemig lítur höndin þá út. ..? Kæra Æska! Ég er mikill aðdáandi hljómsveitar- innar, Guns n’ Roses, og yrði fegin ef þið birtuð veggmynd af henni. Hvað heita hljómsveitarmenn? Hvert er heimilisfang aðdáendaklúbbs þeirra? Ég þakka fyrir mjög gott blað. Lítil skrýtla að lokum: Óli: Mamma, hvað er ég gamall? Mamma: Þú ert jafngamall og fing- urnir á annarri hendi. Óli: Vá! Hvernig ætlin höndin líti út þegar ég verð sjötugur? Rabba. Ég vona að þú verðir ánœgð með myndina. Frá hljómsveitarmönnum er sagt í poppþœttinum. Heimilisfang er á bls. 50. Æskuveggmynd af dáðum dreng Sæl, kæra Æska! Þökk fyrir skemmtilegt blað. Ég yrði mjög glöð ef einhver gæti sent mér næstelstu Æsku-veggmyndina, af Michael J. - eða þið birtuð hana aftur. Aðalheiður, Laugarbrekku 8, 640 Húsavík. Svar: Birtar hafa verið tvcer veggmyndir af Mikjáli og fleiri verða ekki prentað- ar að sinni. Eflaust segjum við frá honum fljótlega og sjálfsagt verður mynd af honum á límmiða sem blað- inu fylgir í ár. Stallaklipptur - með „dúllunef Kæra Æska! Ég þakka kærlega fyrir allt sem birst hefur í Æskunni um Tomma Cruise (þó að það mætti auðvitað vera meira!). Mér finnst hann afar aðdá- unarverður. Ég skrifa þó aðallega til að lýsa draumaprinsinum mínum! Hann er í Grunnskóla Bolungarvíkur; hefur dökk-, dökk-, dökkbrúnt hár og er stallaklipptur sem kailað er. Hann hefur dökkbrún, yndisleg augu, dökkar augabrúnir; er 155-160 sm hár, mjög vel vaxinn, ætíð vel klædd- ur og hefur sannkallað „dúllu“nef. Það hæfir honum vel því að sjálfur er hann „algjör dúlla“ eins og við stúlk- urnar tökum stundum til orða. . . Er hætt að haga þannig til að skrifa megi bréf til þeirra sem svara aðdá- endum og bera upp spumingar? Hvar fær maður að vita hver svarar í hverju tölublaði? Ég óska öllum starfsmönnum Æsk- unnar og öllum á landinu (líka draumaprinsinum, auðvitað!) far- sældar á nýja árinu. . . Aðdáandi Æskunnar, Tomma Krútts og Hans! Svar: Við tilkynnum ekki lengur hverjir svari aðdáendum þar sem of langur tími líður frá birtingu þess þar til okk- ur berast spurningar. Ef við tilkynn- um í 1. tbl. hver svara á fáum við spurningar ekki nógu snemma til þess að geta birt þœr og svör við þeim í 2. tbl. Það verður að bíða 3. tbl. og þá getur hvort tveggja verið - að úr vin- sœldum hafi dregið eða að aðrir séu þegar búnir að segja frá þeim sem um er að rœða. . . Öllum er þó frjálst að senda okkur bréf með spumingum til þess sem þeir dá. Ef til vill verður sá fyrir vali. Að minnsta kosti eykur bréfið líkur á því. Við fáum iðulega sendar spumingar og notum þœr þegar að hinum dáða kemur. 16 Æskan

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.