Æskan - 01.01.1990, Page 26
Um félagslíf og fleira
Ég er 13 ára stúlka úr Vesturbæn-
um og mig langar til að segja þér frá
félagslífinu þar. Ég er í Hagaskóla og
það er mjög góður skóli. Þar eru allt-
af haldin diskótek, spilakvöld og
fleira á fimmtudögum, t.d. stefnu-
mótaball. A föstudögum er farið á
skemmtistaðinn Frostaskjól. Ein-
staka sinnum koma þangað hljóm-
sveitir eins og Greifarnir.
Mig langar til að spyrja nokkurra
spurninga:
Hve margir fá verðlaun í þættin-
um, Lestu Æskuna?
Væri ekki hægt að hafa eina síðu
með nótum vinsælla laga?
Hvert er heimilisfang aðdáenda-
klúbbs Tomma Cruise? Gaman væri
að fá veggmynd með honum.
Tommi Krútt
Svar:
Oftast fá þrír verðlaun en stundum
fimm. Beiðni um nótur verður athug-
uð. Heimilisfang er birt á bls. 59
Nöfn 30 pennavina
Kæra Æska!
Mig langar til að biðja þig að segja
mér heimilisfang aðdáendaklúbbs
Ricks Astleys og Timothys Daltons.
Ég dái þá mjög.
Ég vildi líka gjarna að þú birtir
nöfn 30 pennavina sem skrifa á
ensku, 15 drengja og 15 stúlkna, víðs
vegar að úr heiminum. Mig sárvantar
þessa pennavini fyrir enskuu'ma í
skólanum.
Kleó.
Svör:
Heimilisföng - sjá bls. 59.
Flestir útlendinganna, sem senda
Æskunni nöfn sín til biríingar, ríta á
ensku. Lestu pennavinadálka í þessu
tölublaði og öðrum.
Bréfaskipti
Kæra Æska!
Ég vona að þú birtir þetta. Ég ætla
að spyrja hvort þú getir hjálpað mér
til að eignast bandaríska pennavini á
Keflavíkurflugvelh. Ég fór með
skátafélaginu mínu, Ægisbúum, í
heimsókn til skáta þar. Ég vildi
gjarna kynnast þeim betur en í þess-
ari stuttu ferð.
Laufey Ósk G.
Svar:
Við sendum beiðni þína til skátafé-
lagsins á Keflavíkurflugvelli. . .
Bréf frá Noregi
Kæra Æska!
Ég heiti Arnbjprg og er níu ára. Ég
á heima í Bergen í Noregi. Ég sendi
þér ljóð og mynd.
Getur þú birt veggmynd af The
BengeUs?
Skrýda:
Einu sinni voru tveir tómatar á
göngu. Allt í einu kom bifreið og ók
yfir annan þeirra. Þá sagði hinn:
„Komdu, tómatsósa!"
Mót Ijósinu
Ég sé svartan fugl
sem flýgur gegnum dyr lífsins.
Hann lætur sig dala eins og svala.
Ég sé hvernig hann breiðir
vængina sína og flýgur
mót ljósinu í suðri.
Arnbjórg Danielsen.
Nordásvegen 184; 5094 Nordás,
Bergen, Norge.
Svar:
Þökk fyrir sendinguna. Það er
gaman að fá bréf frá öðrum löndum
til birtingar í Æskupóstinum.
Við sjáum til með veggmynd - en
líklega ert þú sú eina sem hefur beðið
um mynd af þessari hljómsveit.
Eigum Æskuna
allt frá 1976
Elsku, besta Æska!
Ég þakka gott blað.
Systir mín var áskrifandi en nú er
ég tekin við af henni. Við eigum öU
Æskublöðin síðan 1976, hvert einasta
blað. Mér finnst alltaf jafngaman að
lesa hana.
Berglind Bergvinsdóttir,
Áshóli, Grýtubakkahreppi, S-Þing.
Lýsið var ekki vont. . .
Ágæta Æska!
Ég sendi þér tvær skrýtlur:
KaUi: Mamma! Mér fannst lýsið ekk-
ert vont í dag.
Mamma: Tókstu fulla skeið?
KaUi: Ég fann enga skeið. Ég tók
bara gaffal. . .
Einu sinni voru tveir menn. Þeir
hétu Barði og Björn. Þeir fóru í bíó.
Þá sagði Björn:
„Það er hlé, Barði!“
Þá sagði Barði:
„Viltu kaupa ís, Björn!“
Pýska frímerkið
Góða Æska!
Ég sendi þér lida sögu:
Ég er lítið, þýskt frímerki. Ég var
sett á bréf sem áttí að fara til Islands.
Það var kalt að koma tíl íslands og
mér fannst landið miklu minna en
Þýskaland. Ég var orðið þreytt á að
vera í kassa inni í flugvél í þrjá
klukkutíma. En ferðin var ekki nærri
því búin. Ég var nefnilega fyrst flutt
tíl pósthúss. Síðan fór ég til telpu sem
heitir Dísa.
Dísa var átta ára. Hún safnaði frí-
merkjum. Hún leysti mig af umslag-
inu og settí mig inn í frímerkjabókina
sína. Þar er ég með öðrum frímerkj-
um sem hún á.
Sigríður Edda Bergsteins,
Lóurima 4, Selfossi.
26 Æskan