Æskan - 01.08.1991, Side 50
Umsjón: Nanna Kolbrún Sigurðardóttir félagsróógjafi
Póstfang: Æskan, pósthólf 523, 121 Reykjavik.
Er ég - er ég ekki???
Kæra Nanna Kolbrún!
Ég er nýorölnn 14 ára og
er í dálltilli klípu. Ég er ofsa-
lega ástfanginn og hef veriö
þaö síðan í fyrra. Þó aö þaö
sé hlý og góö tilfinning þá
dauöskammast ég mín fyrir
það. Ég er nefnilega skotinn
í öðrum strák. Hann er í
mínum bekk og viö erum á-
gætis vinir. Samt þori ég
ekki að segja honum frá
þessu af ótta við að hann
vilji ekki tala oftar viö mig.
Ég veit ekki hvort hann er
hommi en hann hefur aldrei
veriö með stelpu. Ég reyni
að láta á engu bera en mér
finnst stundum vera aö liöa
yfir mig af ást þegar hann
snertir mig. Stundum verö
ég svakalega einmana og
græt mig oft í svefn af því
aö mér finnst aö ég muni
aldrei geta sagt neinum frá
þessu, síst mömmu og
pabba. Einhvern tíma þegar
veriö var aö tala um eyöni í
sjónvarpinu sagöi pabbi: „Ég
held þeim sé nær, helvítis
hommunum.“ Mamma er
kannski eitthvaö skárri en
ég held aö þeim finnist báö-
um eitthvaö ógeðslegt viö
þaö aö vera hommi. Ég held
aö þaö yröi hryllilegt áfall
fyrir þau ef þau fengju aö
vita aö þeirra eiginn sonur
væri hommi. Getur þú gefiö
mér ráö fjjótt því aö mér liö-
ur hræðilega illa.
Einn ástfanginn.
Þaö sem þú lýsir er erfitt viö-
fangs. Samkynhneigb er ekki oð
öllu leyti viöurkennd í samfélagi
okkar. Þú segist skammast þín
fyrir tilfinningar þínar og þaö
getur veriö angi af því. Þér finnst
þetta ekki alveg eins og þaö er
hjá hinum.
Viöhorf fööur þíns er ekki óal-
gengt og þaö er yfirleitt mikiö á-
fall fyrir foreldra aö þurfa aö
horfast í augu viö aö sonur eöa
dóttir laöast aö sama kyni.
Maöur œtti aldrei aö skamm-
ast sín fyrir tilfinningar, hvorki
þessar né aörar. Aöalatriöiö er aö
kunna aö fara meö þœr þannig
aö maöur sœri hvorki sjálfan sig
né aöra.
Ég held aö þaö sé alveg rétt
mat hjá þér aö rceöa þetta ekki
viö strákinn enn þá og átta þig
betur sjálfur á viöhorfi þínu og
hans til samkynhneigöar. Margir
finna til kynhrifa gagnvart sama
kyni um tíma á unglingsárum.
Oftast er þar um aö rœöa sam-
bland af vináttukennd og kœr-
leika. Þaö þarf ekki aö tákna aö
einstaklingur sé samkynhneigöur
þó aö þaö geti líka veriö.
Kynímynd er hluti af sjálfs-
mynd einstaklingsins. A þínum
aldri er allt slíkt í mótun. Reyndu
aö rœöa þessi mál viö einhvern
fulloröinn sem þú treystir (e.t.v.
móöur þína?) og átta þig þannig
betur á þessu. Ef þú treystir eng-
um sem þú þekkir getur þú leitaö
til Unglingaráögjafarinnar í
Reykjavík og fengiö ábendingar
um heppilegan aöilja til þess aö
rceöa viö.
Reið og sár
Kæri Æskuvandi!
Ég þakka gott blað og góö-
an þátt. Ég er 18 ára og er
hrifin af strák sem er 13
ára. Besta vinkona min er
líka hrifin af honum. Ég var
komin á góöa leið meö aö ná
honum en þá varð hann allt
í einu hrifinn af vinkonu
minni. Núna eru þau nýbyrj-
uö aö vera saman. Þegar ég
frétti það varð ég rosalega
reið.
Nú veit ég ekki hvaö ég á
aö gera. Á ég að hætta að
vera meö vinkonu minni eða
eitthvað annað?
Viltu hjálpa mér?
NN
vinkonur eru aö keppa um hylli
sama stráksins. Viöbrögö þín eru
í alla staöi eölileg en nú þarftu
aö gœta þín á því aö gera enga
vitleysu.
Reynslan sýnir aö vináttan er
dýrmœtari en skot og sambönd
þegar fólk er á þínum aldri.
Hrifning kemur og fer. Vináttan
endist yfirleitt lengur og þaö er
mikilvœgt aö skilja eöli hennar.
Þú getur ekki stjórnaö því
hvort strákurinn er hrifinn af þér
eöa vinkonu þinni eöa hve lengi
sú hrifning endist. Þess vegna
skaltu athuga þinn gang vel áöur
en þú hcettir aö vera meö henni.
Sumar vinkonur gera meö sér
samning um slík mál, t.d. aö vera
ekki meö strák, sem hin er hrifin
af, eöa hcetta aö vera eins mikiö
saman og áöur á meöan hin er
meö stráknum en halda vinátt-
unni. Ég held aö best vceri fyrir
ykkur vinkonurnar aö rceöa þetta
mál af hreinskilni og sjá hvaöa
árangri þaö skilar.
Vinasnauð
Kæra Nanna Kolbrún!
Ég hef ekki skrifað þér
áöur og ég vona aö þú birtir
þetta bréf.
Ég þrái vini og félagsskap.
Mig langar til aö eignast vini
á aldri við mig.
Einu sinni þegar ég var lít-
il þá eignaðist ég vinkonu.
Hún er einu ári yngri en ég.
Hún er besta vinkona mín.
Fyrir nokkrum árum flutti
hún og ég hef ekki eignast
neina góöa vini síðan fyrr
en núna í ár en sú er
nokkrum árum yngri en ég.
Ég er oftast með henni. Hún
flyst héðan um næstu jól.
Mér finnst ég eiga þaö
skiliö aö vera vinsæl. Ég
hugsa um heimilið og systk-
ini min á meðan mamma og
pabbi vinna eins og hestar.
Ég er falleg. Ég kann aö tala
viö stráka. Ég teikna vel,
stend mig þokkalega í nám-
inu, geng í fallegum fötum,
er hvorki feit né grönn, er
ekki nisk og get verið
skemmtileg.
Hvaö er eiginlega aö mér
sem gerir mig óvinsæla? (Ég
vil taka fram aö þaö er
erfitt aö koma mér í svo gott
skap aö ég veröi skemmti-
leg)
Hvaö lestu úr skriftinni?
Hvaö heldurðu aö ég sé
gömul?
Ein óvinsæl.
Svar:
Þú þráir þaö sama og flestir
krakkar á þínum aldri: Aö vera
5 4 Æ s k a n