Æskan - 01.10.1991, Side 10
og flugsund."
- Hvenœr kepptir þú fyrst?
„1987 - á íslandsmóti fatl-
aðra. 1988 keppti ég á móti í
Hollandi til undirbúnings Ólymp-
íuleikunum í Seúl. Eg tók einnig
þátt í þeim. Ég var aubvitað ekki
með þeim fremstu þar en reynsl-
an var ómetanleg."
- Þess var ekki langt ab bíba
ab þú bœttir árangur þinn
verulega ...
„Þetta hefur komið smám
saman. Ég keppti á Opna
sænska meistaramótinu í fyrra
og gekk þar mjög vel. Ég fékk
bikar fyrir aö bæta árangur minn
mest allra þátttakenda.
Á Heimsleikum fatlaðra í
Hollandi varð ég í 2. sæti í 100
m flugsundi og 3. sæti í 200
metra bringusundi. Þó var ég
meö yngstu keppendum þar.
Þetta var mjög fjölmennt mót.
Þar var keppt í flestöllum grein-
um Ólympíuleika og 3500 í-
þróttamenn tóku þátt í því."
Evrópumeistari í
flugsundi - heimsmet-
hafi í baksundi
- Hvernig gekk á mótum í
sumar?
„Ég keppti á Norðurlanda-
móti fatlaðra í Noregi í maí. Ég
sigraði í 100 m flugsundi og varð
önnur í fjórum greinum.
Á sundmeistaramóti íslands í
júlí setti ég heimsmet í 200 m
baksundi. Ég synti á 3,02,8 mín.
í ágúst var haldið í Barselóna
undirbúningsmót fyrir Ólympíu-
leika fatlaðra. Þar varö ég fyrst í
100 metra flugsundi en þriðja í
50 og 100 m skriðsundi. Þetta
var jafnframt Evrópumeistara-
mót fatlaðra í sundi."
- Hefur þú sett þér markmib
fyrir Ólympíuleikana?
„Já, ég stefni að því að kom-
ast á verðlaunapall í baksundi og
flugsundi."
- Þú leggur þá hart ab þér
vib œfingar...
„Já, þetta hefst ekki nema
meö sífelldum æfingum. Við fé-
lagarnir í Óðni æfum átta sinn-
um í viku - sex daga en tvisvar
tvo dagana - tvær eða tvær og
hálfa klukkustund í senn."
,,/ó, ég stefni oð
því oð komast á
verölaunapall í
baksundi og
flugsundi á
Olympíuleikun-
um."
"Er alveg búin að
sœtta mig vib þab '
Rut á tvö systkini, Sif og Þór,
tólf og nítján ára. Á heimilinu er
líka hundurinn Tumi; þriggja
mánaða verður hann orðinn
þegar viðtalið birtist.
Sif æfir einnig með Óðni.
Stundum fara þær systurnar
saman á æfingar.
Rut tekur dálítinn þátt í félags-
starfi Akurs, leikur þar til að
mynda boccia að gamni sínu,
en oftast er hún með félögum
sínum í sundfélaginu. Tólf elstu
krakkarnir halda mikið hópinn.
Hún er á sautjánda ári, fædd
29. mars 1975. Á því tímabili
ævinnar bíöa flestir unglingar
með óþreyju eftir að taka bílpróf.
Hvað segir Rut um það?
„Nei, ég fæ ekki að taka bíl-
próf. Þaö er orðið Ijóst. En ég er
alveg búin aö sætta mig við
það."
- Getur þú fylgst meb sjón-
varpsefni?
„Ég horfi sjaldan á sjónvarp.
Sjónsviðið er svo þröngt að ég
sé ekki bæði mynd og texta í
einu. En ég hef líka svo mikið að
gera við námið, æfingar og að
skemmta mér með krökkunum
að ég hef lítinn tíma til þess."
- Ferbu þá nokkurn tíma í
kvikmyndahús?
„Já, það kemur fyrir. Ég skil
orðið nóg í ensku til að fylgjast
sæmilega með og sé myndina
óljóst. En ég fer aðallega til að
vera með krökkunum."
Ég heyri á öllu að Rut lætur
engan bilbug á sér finna þó að
fötlun hennar geri henni oft erfitt
fyrir. Ef til vill hljómar einkenni-
lega að inna hana eftir hvort hún
líti björtum augum á framtíbina
- þar sem þab er ónóg sjón sem
háir henni. Samt hlýt ég ab
spyrja þannig því að hressileg
framkoma hennar og glaölegt
bros kallar þá spurningu fram.
Þab stendur ekki á svari:
„Já, ég er mjög bjartsýn. Það
dugar ekkert annað."
7 0 Æ S K A N