Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1992, Blaðsíða 28

Æskan - 01.10.1992, Blaðsíða 28
Leikfélag Reykjavíkur frum- sýndi í október nýlegt banda- rískt leikrit. Það heitir HEIMA HJÁ ÖMMU og er eftir Neil Simon. Tíðindamaður Æskunnar varð for- vitinn. Það spurðist út að leikritið fjallaði um tvo stráka. Bræður á fjórt- ánda og sextánda ári. Þeim er kom- ið í fóstur hjá kaldlyndri og strangri ömmu sinni. Þeir þekkja hana ekki og hún ekki þá. Þeir hafa nýlega misst móður sína. Faðir þeirra á í peningakrögg- um. Hann finnur ekki önnur ráð en koma strákunum fyrir hjá móður sinni. Þar er líka til heimilis mis- þroskafrænka þeirra, Bella. Hún er rúmlega þrítug en eins og krakki. Þá kemur líka við sögu frændi þeirra, Louie, sem vinnur hjá mafí- unni. Þar eru þeir Gunnar Helgason og ívar Örn Sverrisson sem leika bræð- urna. Ég leit inn á æfingu, tæpri viku fyrir frumsýningu, og náði tali af þeim. fvar stendur fyrir framan búnings- herbergi leikaranna í Borgarleikhús- inu. Hann ersléttgreiddur, klæddur í gamaldags pokabuxur og jakka og með bindi (Leikritið gerist fyrir fimm- tíu árum). (var er að tala við Steinþór leik- myndateiknara um skyrtur. „Getur þú farið í aðra skyrtu eft- ir hlé?“ spyr Steinþór. „Ég er kominn með hana,“ segir ívar. Hann er einbeittur á svipinn. Æfingin er rétt að hefjast. Ég færi mig nær og nefni erindi okkar. „Viðtal," segir hann þungur á brún og snýr sér frá okkur með föt- in sín undir hendinni. Ég kemst ekki lengra. Hann er far- inn inn á svið. Ég sný mér að Gunnari sem þýt- inu er mikil leikmyndi: Gamaldags stofa með borðstofukrók, sófa og hægindastólum. Allt í gömlum stíl. Ég mæti ívari í göngunum. „Bróðir þinn segist vera viðkvæm- ur drengur. Ert þú þá töffarinn?" „Frá hvaða blaði ertu? Æ, ég get ekki talað núna ... Hvar verða fötin mín?“ kallar hann til Ástu leikmuna- varðar. Hún leiðbeinir honum inn á svið- ið og sýnir honum fatahengið. Hallmar leikstjóri kemur svífandi. Þeir ívar setjast og tala saman í hálf- um hljóðum. Ég heyri orðið „upp- götvun“ og ívar kinkar kolli, alvar- legur og einbeittur á svip. Hallmar hefur yfir setningu: „Þú ætlar þó ekki að stela" og fvar endurtekur hana. Ég færi mig um set og reyni að finna Gunnar aftur. Það er kallað í hátalarakerfið: Leikarar í Heima hjá ömmu. Æf- ing hefst eftirtíu mínútur!" Gunnar stendur inni í hárg reiðslu- stofu og greiðir sér vandlega. Ósk gengur hratt hjá með krullur í hári. Hún leikur Bellu, einföldu frænkuna sem þykir mest gaman að sitja í bíó alla daga. Margrét Ólafsdóttir, sem leikur hörkutólið ömmu, er brosmild að spjalla við Gunnar. Það er kallað aftur í hátalarakerf- ið: „Rennsli hefst eftirfimm mínút- ur.“ Ég er bara fyrir. Kannski ég laum- ist út í sal og sjái hvernig fer fyrir þeim, Gunnar og ívari - Kobba og Túra-Bellu sem er svoddan kjáni, Gert frænku sem talar með sogum, Louie frænda og öðrum heima hjá ömmu. SJ ur hjá. „Upp á herbergi," segir hann. í búningsherberginu skipta leikar- ar um föt, klæða sig í búninga og búa sig undir sýningar. Gunnar er að stússa við speglaborðið. „Hvernig er að leika ungling?" spyrég. „Það er erfitt." „Af hverju?" „Ég er svo þroskaður sjálfur,“ svarar hann. „Sérðu ekki að ég er að raka mig?“ Hann leikur eldri drenginn. „Er strákurinn, sem þú leikur, ekki komin á gelgjuskeiðið?" „Jú, hann er kominn á gelgjuna.“ „Með bólur og allt?“ „Nei, bara fullur af mótþróa. Það er skiljanlegt miðað við aðstæður." „Er hann ekki vælukjói?" „Nei, en tilfinningaríkur og við- kvæmur drengur, alinn upp hjá ást- ríkum foreldrum en lendir svo hjá þessari hörðu konu.“ Dyrnar opnast og leikstjórinn, Hallmar Sigurðsson, birtist með blöð. Þeir fara að tala saman um vissa þætti í leiknum. Ég læt þá eina. Á stóra sviðinu í Borgarleikhús- Gunnar Helgason og ívar Örn Sverr- isson Harald G. Haralds og ívar Örn UM LEIKRITIÐ HEIMA HJA ÖMMU TVEIR STRÁKAR í KLÍPU 2 8 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.