Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1992, Blaðsíða 55

Æskan - 01.10.1992, Blaðsíða 55
geta áreiðanlega ráðið fram úr vandamálum sínum sjálfir án þess að þurfa að hafa „lið“ með sér og á móti. Láttu þau sjálf um þetta. Næsta spurning bendir til þess að þú hafir næg verkefni fram undan við að þroskast og velta fyrir þér hvernig á að hegða sér sem unglingur. Að byrja að sofa hjá er ekki ein- göngu spurning um blæðingar, aldur og líkamlegan þroska. Margir fleiri þættir koma til. Þar ber hæst andlegan og sálræn- an þroska og að hafa myndað traust og gott tilfinningasam- band við aðra manneskju. Blæð- ingarnar gefa eingöngu til kynna að vissum líkamlegum þroska sé náð og innan tíðar fer stúlk- an að fá egglos milli blæðinga og getur þá orðið barnshafandi. Þegar möguleikunum á því að sofa hjá er velt fyrir sér er mikilvægt að gera sér grein fyr- ir hvernig hægt er að lifa heil- brigðu kynlífi, koma í veg yfir ó- tímabæra þungun og varast ýmsa sjúkdóma sem tengjast kynlífi. Margir krakkar og reynd- ar fullorðnir líka nenna ekki að hugsa um þessa hliðar málsins. Þetta með sjúkdóma, óléttu, og fóstureyðingar er bara eitthvað sem kemur fyrir aðra ekki þá. Staðreyndin er hins vegar sú að í flestum fjölskyldum eru ein- hver mál sem má rekja til fáfræði eða óþarfa áhættu sem hefur verið tekin í kynlífi. Rannsóknir á fyrstu samför- um unglinga sýna að margir sofa fyrst hjá afalgjörri forvitni, bara til að prófa. Síðan líða oft mörg ár þangað til reynt er næst. Margir unglingar lýsa yfir vonbrigðum með þessar fyrstu „tilraunasamfarir“ og er almennt talið að þau vonbrigði stafi af því að unglingarnir hafi ekki ver- ið nægilega þroskaðir á öllum sviðum til að geta notið reynsl- unnar. Aldur við fyrstu samfarir er þvíyfirleitt ekki tákn um það að persóna sé farin að lifa ábyrgu kynlífi. Fyrir flesta hefur fyrsta kynlífsreynslan mikil áhrif og ætti því að vanda til hennar eins og unnt er en ekki harka sér í þetta af forvitni eða fyrir hóp- þrýsting. Yfirleitt er mælt með að viss þróun og aðdragandi eigi sér stað þar sem samvera, atlot og gælur um einhvern tíma móti þann grunn og það traust sem gerir það að verkum að náin kynni verða báðum til góðs. Strákar og stelpur byrja oft að sofa hjá á svipuðum aldri og þá í tengslum við að fara „á fast“ eins og það er kallað. Skriftin er skýr en nokkuð hroðvirknisleg, gæti borið vott um fljótfærni. NAFNLAUS ÁST Kæra Nanna Kolbrún! Ég á í miklum vanda. Ég flutti fyrir þremur árum. Áöur en ég flutti var ég ástfanginn af stúlku. Eg hef sent henni nafnlaus bréf og alltaf talið mér trú um að ég væri enn ástfanginn af henni en ég er ekki viss lengur. Ég veit næstum allt um hana, afmælisdaginn hennar, allt nafnið hennar og margt fleira. Vin- ur minn segir mér um allt sem ger- ist og varðar hana. Ég forðast all- ar stelpur vegna hennar og ég er ráðvilltur. Viltu gera svo vel að birta þetta? Johnson. Svar: Stundum festist fólk í ein- hverjum hugarórum um vissar persónur. Sérstaklega getur þetta gerst ef ekki er hægt að láta reyna á samskiptin í alvör- unni. Þá fer svo margt fram í huganum eingöngu og mótvæg- ið frá raunveruleikanum vantar. Trúlega ert þú búinn að gera þessa stúlku að allt of miklu máli í huga þínum. Reyndu að koma lagi á til- finningar þínar. Það þarfekki að vera svo bölvað að vera skotinn í stelpunni og er alls ekki tilefni til að forðast aðrar stelpur. Reyndu að hafa eðlileg sam- skipti við jafnaldra þína og taka eftir hvernig krakkar kynnast og ná sambandi sín á milli. Það hjálpar oft í slíkum málum að falla að umhverfinu. Getur verið að þú haldir fast í minninguna um þessa stelpu sem flóttaleið frá því að þurfa að kynnast öðr- um krökkum? Hættu strax að senda stelp- unni nafnlaus ástarþréf. Það spillir bara fyrir þér efþú átt síð- ar að hafa einhverja möguleika á að kynnast henni nánar. Þú getur skrifað bréfin og losað þig þannig við það sem þér liggur á hjarta en þú skalt ekki senda þau. Slík bréf vekja ekki góðar tilfinningar hjá þeim sem fær þau. Þú gætir í stað þess skrif- að henni undir fullu nafni og boðið upp á pennavináttu til þess að kynnast henni nánar. BLÆÐINGAR í VÆNDUM Kæra Nanna Kolbrún! Ég á við vandamál að stríða. Ég er 13 ára og blæðingar eru ekki byrjaðar en það kemur alltaf mikið slím. Ég er búin að spyrja mömmmu mína en hún veit ekk- ert hvort þetta er eðlilegt eða ekki. Ég ætla að vona að þú vitir eitt- hvað um þetta mál. Ég vona að þú svarir mér fljótt því að ég er alveg í rusli. xxxxxx Svar: Þú lýsir þessari útferð ekki nákvæmlega en í fljótu bragði gæti þetta verið undanfari blæð- inga. Slím fra kynfærum getur tekið á sig ýmsar myndir, verið þykkt eða þunnt, hvítt, Ijósbleikt eða brúnt. Einnig getur verið um að ræða mismunandi lykt. Það er góð venja fyrir allar stúlkur og konur að halda dag- bók yfir tíðahringinn. í dagbók- ina er hægt að skrá hvaða daga blæðingar standa yfir og allt annað sem tengist tíðahringn- um, t.d. útferð, verki, krampa eða annað sem kann að eiga sér stað. Slík dagbók hjálpar kon- unni að kynnast sínum eigin lík- ama og getur orðið mjög gagn- leg til þess að fylgjast með lík- amsstarfseminni. Við eig- um bara einn líkama og verðum að hugsa vel um hann. Það er enginn sem getur tekið ábyrgð á honum nema við sjálf. Einn liður í því er að þekkja hann vel og geta gefið greinargóðar upplýsingar um hann, t.d. ef leita þarf lækn- is eða annarra hjálparaðila. Blæðingarnar verða trúlega byrjaðar þegar þetta bréf birtist en sé svo ekki þá hafðu sam- band við skólahjúkrunarfræðing eða skólalækni til að kanna mál- ið nánar. Þökk fyrir bréfin! Munið að rita ávallt rétt nafn og heimilisfang - auk beiðni um dulnefni. Þeir sem gæta þess ekki geta ekki búist við að fá Æ S K A N 5 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.