Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 4
ASKRIFTARGETRAUN
ÆSKUNNAR
Það er gaman að vera áskrifandi
að Æskunni - ekki síst þegar tæki-
færi gefst til að vinna glæsilega vinn-
inga fyrir rétt svör í getraun!
FJÖLSKYLDUFERÐ
er aðalvinningurinn. Glöggur og
heppinn áskrifandi má bjóða foreldr-
um sínum og einu systkini með sér í
flugferð til einhvers af áfangastöðum
Flugleiða á Norðurlöndum - í Fær-
eyjum, Danmörku, Noregi eða Sví-
þjóð.
LEIKJATÖLVA
af gerðinni „Sega Mega Drive“ er 2.
vinningur í getrauninni. Henni fylgja
tveir stýripinnar, einnig leikur með
hinum vinsæla. broddgelti „Sonic“
og Aladín-leikurinn eftirsótti.
ÆFINGAGALLAR
í tegundinni „Russell Athletic" koma í
hlut þeirra sem hreppa 3.-7. vinning.
BOLI
af sömu gerð hljóta þátttakendur
sem fá 8.-12. vinning.
TÓLF SPURNINGUM
þarf að svara. Sex þeirra birtast hér
á blaðsíðunni - aðrar sex í 2. tölu-
blaði Æskunnar 1994 (sem kemur út
10. mars nk.)
SVÖRIN
má flest finna í þessum tveimur tölu-
blöðum! Önnur veit eflaust einhver í
fjölskyldunni. Sjálfsagt er að leita
aðstoðar foreldra eða systkina ef
með þarf.
SENDIÐ
svörin tólf öll í einu til Æskunnar eftir að
2. tbl. kemur út.
Merkið bréfin þannig:
Áskriftargetraun Æskunnar,
pósthólf 523, 121 Reykjavík.
FYRRI HLUTI ASKRIFTARGETRAUNAR ÆSKUNNAR 1994
1. Hver var kjörinn íþróttamaður ársins 1993 á íslandi?
2. Hver hlaut 1. verðlaun í uppfinningakeppninni 1993?
3. Hvað heita systkinin í teiknimyndasögunni, Það er þjóðráð!?
4. Hve mörg ár verða liðin frá stofnun íslenska lýðveldisins þegar við höldum þjóðhátíð 17. júní í
sumar?
5. Hver reyndist vinsælasti íslenski íþróttamaðurinn í könnun Æskunnar í fyrrahaust?
6. Hvað nefnist verðlaunasagan í samkeppni Æskunnar 1993?
4 Æ S K A N