Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 5

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 5
FRIÐRIKS-KAPELLA RÍS Á HLÍÐARENDA Pétur Sveinbjamar- son skrifar Þann 29. nóvember síðastliðinn var hald- inn í Hallgrímskirkju stofnfundur „samtaka um byggingu minningarkapellu séra Friðriks Friðrikssonar”. Kappellan verður reist að Hlíðarenda, væntanlega gegnt gamla félags- heimilinu. Það voru vinir séra Friðriks og félagsmenn í samtökum, sem séra Friðrik stofnaði, er höfðu forgöngu um fundinn. í ár eru 90 ár síðan KFUM í Reykjavík var stofnað en fjór- ar öflugar hreyfingar eiga beina rót í frum- kvæði hans: KFUM og KFUK, Knattspyrnu- félagið Valur, Skátafélagið Væringjar (fyrsta skátafélag Islands) og Karlakór KFUM, nú Karlakórinn Fóstbræður. Það er því erfitt að meta það til fulls hversu víða áhrif þessa ást- sæla æskulýðsleiðtoga og mannvinar gætti og hversu víða áhrifa hans gætir enn í dag. Áhugamenn úr þessum félögum vilja stuðla að því að halda á lofti um ókomin ár vitneskju um þetta frumkvæði séra Friðriks, með því að reisa minnismerki, sem jafnframt yrði notað til starfsemi í þeim anda er hinn látni leiðtogi lagði drög að. Kapella séra Frið- riks verður notuð fyrir helgistundir, kristilegt starf og tilbeiðslu og til að halda uppi því merki sem séra Friðrik hóf með starfi sínu. Á stofnfundinum í Hallgrímskirkju voru saman komnir um 60 manns. Pétur Svein- bjarnarson, fyrrverandi formaður Vals, setti fundinn og kynnti mönnum fyrir hönd undir- búningsnefndar aðdraganda málsins. Ekki er gert ráð fyrir að félögin fjögur standi sem slík að fjárhagsskuldbindingum heldur eingöngu áhugamenn innan þeirra, auk annarra sem málinu vilja leggja lið. Komið verður á fót sérstöku gjafakerfi, þannig að minnst 300 einstaklingar leggi mánaðarlega fram 1000 krónur. Opnaður hefur verið tékkareikning- ur í Iðnaðarbanka íslands, Lækjargötuúti- búi, sem ber nafnið „Minningarkapella séra Friðriks”, reikningurinn er númer 1811. Stefnd er að því að framkvæmdir hefjist á afmælisdegi séra Friðriks, 25. maí 1990. Þeir, sem ganga í samtökin fram að þeim tíma, telj- ast stofnfélagar. Áætlaður byggingartími er þrjú ár. Fundarstjóri á stofnfundinum var séra Val- geir Ástráðsson, formaður Prestafélags Is- lands, fundarritari var Óðinn Helgi Jónsson. Til máls tóku: Jóhann Albertsson, sem flutti fundarmönnum kveðju Alberts Guðmunds- sonar sendiherra og afhenti hann framlag frá Alberti til þriggja ára. Sigurbjörn Einarsson, biskup, Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra og biskup íslands, Hr. Frá stofnfundi „samtaka um byggingu minningarkapellu séra Friðriks FViðrikssonar”. Hér eru saman- komnir áhugamenn úr nokkrum félagasamtökum. Ólafur Skúlason. Jón G. Zöega, formaður Vals las gjafabréf frá stjórn Vals fyrir lóð undir kapelluna úr landi Hlíðarenda. í stjórn samtakanna voru kjörnir: Formaður: Gylfi Þ. Gíslason Aðrir stjórnarm. Ágúst Bjarnason Árni Sigurjónsson Ástráður Sigursteindórsson Helgi Elíasson Jónas B. Jónsson Kristinn Hallsson Sigurbjörn Einarsson Úlfar Þórðarson Þórir Kr. Þórðarson I framkvæmdanefnd voru kjörnir: Formaður: Pétur Sveinbjarnarson Aðrir nefndarm. Bjarni Bjarnason Jón Daibú Hróbjartsson Ólafur Gústafsson Sigurður Pálsson Valgeir Ástráðsson Framkvæmdanefndin er skip- uð eftirtöldum: Frá vinstri: Bjarni Bjarnason, Valgeir Ástráðsson, Pétur Sveinbjarn- arson, formaður, Ólafur Gústafsson, Sigurður Pálsson. Á myndina vantar Jón Dalbú Hróbjartsson. Stjórn samtakanna um byggingu minningar- kapellu séra Friðriks er skipuð eftirtöldum mönnum: Standandi frá vinstri: Ástráður Sig- ursteindórsson, Kristinn Hallsson, Ágúst Bjarnason, Jónas B. Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Þórir Kr. Þórðarson, Gylfi Þ. Gísla- son, formaður, Sigurbjörn Einarsson, Árni Sigurjónsson. Á myndina vantar Helga Elias- son og Úlfar Þórðarson. 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.