Valsblaðið - 01.05.1989, Side 8

Valsblaðið - 01.05.1989, Side 8
KÖRFUBOLTINN ÁRSSKÝRSLA KÖRFUKNATT- LEIKSDEILDAR VALS Rcykjavíkur- og Islandsmeistarar Vals í unglingaflokki (2. flokki) í körfuknattleik 1989. Aftari röð frá vinstri: Torfi Magnússon þjálfari, Arnar Guðmundsson, Aðalsteinn Jóhannsson, Hannes Har- aldsson, Bjarki Guðmundsson, Hörður Gunnarsson, umsjónarmaður. Fremri röð frá vinstri: Bárður Eyþórsson, Hlynur Stefánsson, Ragnar Þór Jónsson fyrírliði, Arí Gunnarsson. Á myndina vantar Jón Bender og Bjarka Leifsson. Lárus Hólm skrifar Sigurður I.árus Hólm. Greinarkorn þetta fjallar um körfuboltann í Val árið 1989 eða frá þeim tíma að síðasta Valsblað kom út í lok ársins 1988 og fram að yfirstandandi keppnistimabili. Á aðalfundi félagsins í apríl síðastliðnum var Jón Stein- grímsson kosinn formaður körfuknattleiks- deildar og tók hann við af Sigurði Lárusi Hólm sem gegnt hafði því starfi frá árinu 1982. Aðrir í stjórn voru kosnir. Helgi Gústafsson, varaformaður J óhann Georgsson, ritari Valdimar Olsen, gjaldkeri Hörður Gunnarsson, meðstjórnandi Sigfús Ólafsson, meðstjórnandi Eftir tvö keppnistímabil með erlenda þjálf- ara var ákveðið að ráða íslenskan þjálfara til deildarinnar að nýju. Fyrir valinu varð Torfi Magnússon, sem verið hafði leikmaður með Val svo lengi sem elstu menn muna, en hann hafði lagt keppnisskóna á hilluna að loknu keppnistímabilinu 1987-1988. í grein um körfuboltann í síðasta Valsblaði stóð eftirfar- andi, þar sem verið var að fjalla um stöðu meistaraflokks þá; “Það keppnistímabil sem nú stendur yfir er um það bil hálfnað. Upphaf þess var okkur Valsmönnum gott. Við unnum Reykjavíkur- Guömundur Brynjólfsson, besti leikmaður 7. og 8. flokks. mótið og þó að staða okkar á íslandsmótinu sé ekki sú sem við væntum, er engin ástæða til að örvænta. Liðið hefur sýnt að þegar mest á reynir spilar það best og minnast menn í því sambandi vetrarins ’83-’84 þegar staða liðsins á jólum var svipuð og hún er nú, en eftir ára- mót vann liðið síðan níu leiki í röð og keppti til úrslita bæði á íslandsmótinu og í Bikar- keppninni. Eins og staðan er í dag verður bar- áttan eftir áramót hörð við Grindvíkinga um að komast í úrslitakeppnina. Eitt er víst að Valur hefur allar götur fá því að úrslitakeppn- in var tekin upp verið þátttakandi í henni og í þeirri baráttu verður ekkert gefið eftir í ár.” Það voru orð að sönnu að keppnin við Grindvíkinga var hörð og hafði Valur þar bet- ur í miklum uppgjörsleik sem fram fór í Grindavík. Hinsvegar bjó ekki þaðafl í liðinu sem þurfti til að fylgja þeim leik eftir í úrslita- keppninni, og féll Valur út eftir tveggja leikja keppni viðlBK, og endaði því í 3.-4. sæti í ís- landsmótinu. Það verður ekki skilið við um- fjöllun um leikinn i Grindavík öðruvísi en að minnast sérstaklega frábærs leiks Tómasar Holton, en hann átti af öðrum ólöstuðum stærsta þátt i þeim sigri. Reyndar átti Tómas eitt sitt allra besta keppnistímabil á síðasta vetri og var því stórt skarð sem hann skildi eftir, þegar hann ákvað að fara utan til náms. Honum fylgja góðar óskir frá deildinni með 8

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.