Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 11

Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 11
sömu ungu mönnum hafi þótt þetta vís- bending til þeirra að hefjast handa um stofnun félags, og vafalaust hefur Guð- jón útskýrt þetta á sinn hátt. Var nú vaknaður almennur áhugi meðal drengjanna um að stofna knatt- spyrnufélag innan KFUM. Portið var orðið of þröngur leikvangur til knatt- spyrnuiðkana og eins hitt að það var kostnaðarsamt fyrir piltana að þurfa að greiða hvað eftir annað úr léttri pyngju fyrir brotnar rúður. Það þurfti því að leita út fyrir portið að nothæfum bletti til að sparka á. Það var því boðað til stofnfundar hinn 11. maí og mun Guðbjöm Guð- mundsson hafa haft aðalforgöngu þar um, ásamt Guðmundi Kr. Guðjónssyni. Um þetta segir Guðbjörn í grein í 25 ára afmælisriti Vals m.a.; „Ég minnist enn vel dagsins, þegar við nokkrir drengir úr unglingadeild KFUM komum saman í lestrarstofunni til að ræða um að stofna knattspyrnufélag innan KFUM. Mig minnir að ég hafi boðið 12 stráka á fund- inn en aðeins 9 mættu og þar af vildu 6 þeirra taka þátt í slíku félagil’ Þessir strákar eru: Filippus Guð- mundsson síðar múrarameistari, Guð- björn Guðmundsson síðar prentari, Hallur Þorleifsson síðar bókari, Jó- hannes Sigurðsson siðar prentari, Páll Sigurðsson síðar prentari og Stefán Ól- afsson síðar vatnsveitustjóri á Akureyri. Og vitanlega Guðbjörn Guðmundsson. Á framhaldsfundi sem var haldinn 28. maí bættust þessir við: Guðmundur Guðjónsson síðar verslunarstjóri, Kristján Gíslason síðar járnsmiður, Loftur Guðmundsson síðar konungleg- ur hirðljósmyndari, Ottó Jónsson síðar múrari, Sveinn Þorkelsson síðar kaup- maður, Björn Benediktsson síðar prent- ari, Helgi Bjarnason og Einar Einars- son. Mátti þetta varla minna vera — eitt lið og þrír til vara! Fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð: Loftur Guðmundsson formað- ur, Hallur Þorleifsson gjaldkeri og Jó- hannes Sigurðsson prentari. Það merkilega var að séra Friðrik Friðriksson var ekki hvetjandi til stofn- unar félagsins og meira að segja tregur til að gefa samþykki sitt. Það fékkst þó því honum fannst strákarnir hafa gott af því að hlaupa úti í góða veðrinu eftir kyrrstöðu og setu inni. Annað gat hann ekki séð við leik þeirra þá. Vafalaust hef- ur hann ekki komið auga á að í þeim leik sem strákarnir sýndu í portinu í KFUM væri neinn tilgangur annar en hlaup og spörk út í bláinn. Síðar átti hann eftir að komast að annarri niðurstöðu. Eftir því sem næst verður komist hét félagið Fótboltafélag KFUM fyrstu vik- urnar og mánuðina og minnast stofn- endur þess einnig. Síðari hluta júli 1911 var félaginu gefið nafnið Valur. Filippus Guðmundsson mun hafa átt tillöguna að nafninu sem var samþykkt af félags- mönnum og séra Friðrik. FYRSTI KNÖTTUR VALS Guðbjörn Guðmundsson prentari, einn af stofnendum Vals, segir eftirfar- andi sögu um fyrsta knöttinn sem Valur eignaðist. (Valsblaðið 1961). Um þessar mundir var Guðbjörn við prentnám í ísafoldarprentsmiðjunni. Ólafur Rósen- kranz fimleikakennari vann þá á skrif- stofu prentsmiðjunnar jafnframt því að vera fimleikakennari Menntaskólans. Eitt sinn bar svo til að við Ólafur vorum að taka til í prentsmiðjunni, en í þessu herbergi var þá geymt skrifborð Jóns Sigurðssonar forseta. Þegar við vorum að laga til í kringum borðið og undir því, kom allt í einu fótknöttur veltandi und- an borðinu. Átti Ólafur knöttinn og var hann allslitinn en þó sæmilegur. Falaðist ég þegar eftir knettinum og varð úr að Ólafur seldi mér hann fyrir 2 krónur. Utan um þennan knött, sem valt upp í fangið á mér undan skrifborði J óns Sigurðssonar forseta, hópuðust svo fyrstu áhugamennirnir i KFUM í knatt- spyrnu. Má rekja þangað vísinn til þess að Valur varð til. Ekki er ósennilegt að hinum áhuga- Verðlaunahafar í minnibolta 1988—89. Frá vinstri: Vigfús Þór Árnason, fyrir framfarir, Steindór Að- alsteinsson, besti varnarmaðurinn, Guðmundur Björnsson, besti 11 ára ieikmaðurinn, Kjartan Orri Sigurðsson, besti 10 ára leikmaðurinn, Undór Egill Jónsson, fyrir mætingu og Þorgeir Símonarson, fyrir mætingu. Reykjavíkurmeistarar 8. flokks 1989. Aftari röð frá vinstri: Geir Brynjólfsson, Karl Jónsson, Gunnar Zöega, ísólfur Ásmundsson, Ágúst Ágústsson, Svaíi Björgvinsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Ámundi Ámundason, Guðmundur Brynjólfsson, Álfgeir Kristjánsson, Jörundur Kristinsson, Ólafur Brynjólfsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.