Valsblaðið - 01.05.1989, Page 12
„MÓRALSKIR“
ÍSLANDSMEISTARAR
— Old-boys punktar Vilhjálmur Kjartansson skrifar
Bruna-
slöngu-
hjól
MARGAR STÆRÐIR
OG GERÐIR. EINNIG
í SKÁPUM.
'/2", 3/4", 1"
15-20-25-30-35-40-45-50
Mtr slöngur
Allar gerðir
eldvarnatækja. Pjónustum
slökkvitæki.
HAGSTÆTT VERÐ.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
□ ELDVAHNMHIflSIdfllN H(
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. HF.
SUNDABORG 22 SlMI 91-84800
„Móralskir Islandsmeistarar „Old-boys” 1989 — með og án kæru. Aftari röð frá vinstri: Grímur Sæ-
mundsen, Guðmundur Sigurgeirsson, Róbert Eyjólfsson, Dýri Guömundsson, Guðmundur Kjartans-
son, Sigurður Þór Jónsson, Úlfar Hróarsson. Neðri röö frá vinstrí: Úlfar Másson, Óttar Sveinsson,
Ólafur Guðjónsson, Hilmir Elísson, Kristján Ágústsson, Gunnar Svavarsson. Á myndina vantar Guð-
mund Þorbjörnsson, Jóhann Jakobsson, Sigurö Dagsson, Alexander Jóhannesson, Lárus Ögmunds-
son, Bjöm Guðmundsson aö ógleymdum Vilhjálmi Kjartanssyni „manager” sem er öfugum megin
við myndavélina.
Starfsemin í eldri flokki félagsins í knatt-
spyrnu var með líflegra móti síðastliðið sum-
ar. Að vísu á það aðallega við um þátttöku
flokksins ílslandsmóti öldunga, frekaren að
æfingasókn og félagsstarf hafi verið til sóma.
Einsogáðursagði var keppnin ímótinu lífleg
og jöfn og fleiri en 20 leikmenn spreyttu sig
með Valsliðinu í sumar. Valur lék í riðli með
Reyni Sandgerði, ÍA og Víði úr Garðinum.
Allt em þetta bráðskemmtileg og teknísk lið
og leikmenn þeirra búa yfir ótrúlegri yfirferð.
Það er skemmst frá því að segja að Valur
vann riðilinn og lék til úrslita við IBK og IBV.
Fyrst var ÍBK rúllað upp í Keflavík 0:2 en ÍBK
hafði áður sigrað IBV í Vestmannaeyjum.
Staða Vals var því nokkuð sterk fyrir leikinn
gegn ÍBV sem fór fram á Hlíðarenda. Það fór
samtsvo að við töpuðum leiknum 1:2 en stóð-
um samt uppi sem íslandsmeistarar með hag-
stæðustu markatölu liðanna þriggja.
Nú víkur sögunni til Keflavíkur. Sumir í
eldri flokkiÍBK ogaðrirsem standa að liðinu
hafa gleymt því að aðaltilgangurinn með
stofnun eldri flokksins var m.a. sá að hafa
gaman af og hitta fyrrverandi andstæðinga
fyrri ára, frekar en að sigra með lúmskum
brögðum. Þessir ágætu menn fundu það út
að okkar ástsæli endurskoðandi og eitilharði
varnarmaður, Dýri Guðmundsson, hafði ver-
ið ólöglegur með Val frá því hann lék með FH
árið 1986 því láðst hafði að ganga frá félaga-
skiptum hans. Það skal tekið fram að þetta
var þriðja sumarið sem Dýri lék með félag-
inu. Á þessum forsendum kærðu Keflvíking-
ar leikinn og var dæmdur sigur í mótinu. Til
hamingju ÍBK!
Starfsemin, sem fer fram í eldri flokkum
félaganna, er félaginu mjög mikilvæg eins og
sést vel á stuðningi svokallaðrar mulningsvél-
ar við handaknattleiksdeildina. Því miður
hefur ekki náðst sama stemmning innan
knattspyrnudeildarinnar og er það miður.
Það á vonandi eftir að breytast á næstunni og
vonandi komamenn sem oftastá Hlíðarenda
til léttra æfinga eða félagsstarfa.
Þess má að lokum geta að Róbert Eyjólfs-
son var valinn knattspyrnumaður flokksins í
sumar. Þá var Ólafur Guðjónsson valinn
efnilegasti leikmaður liðsins.
12