Valsblaðið - 01.05.1989, Side 19
— Hvernig sérðu næsta sumar fyrir þér?
„Mér finnst engin ástæða til annars en að
vera bjartsýnn. Á síðasta keppnistímabili
fengu margir ungu strákanna tækifæri til að
sanna sig og haldi þeir áfram að réttri braut
er framtíð meistaraflokks björt. Mér finnst
ánægjulegt að fá inn sannan Valsmann sem
þjálfara því það er gífurlegt happdrætti að
ráða óþekktan útlending til starfa hér. Samt
Sævar Jónsson ásamt félaga sínum Þorgrími Þráinssyni í síðasta leik Vals á íslandsmótinu 1989. Sigur-
leikur gegn KR 1:0.
Eins og flestum er enn í fersku minni var
árangur Vals síðastliðið sumar vonbrigði ein
og var Sævar inntur álits á því hvað hefði far-
ið úrskeiðis?
„Ég verð að segja alveg eins og er að ég
bjóst við einum titli síðastliðið sumar. Von-
brigðin voru gífurleg því við höfðum góðum
leikmönnum á að skipa. Liðið hreinlega
rumpaðist niður um mitt mót en við lukum
þó tímabilinu á jákvæðan hátt. Það er enda-
laust hægt að velta sér upp úr því hvað fór úr-
skeiðis en ástæðurnar eru margar. Það er
ósanngjarnt að segja að Hörður hafi einn átt
sök að máli því margir samtvinnaðir þættir
osökuðu skipbrot.”
höfum við Valsmenn almennt verið heppnir
með erlenda þjálfara í gegnum tíðina . þó
með örfáum undantekningum?
— Hver hefur verið besti þjálfarinn að þínu
niati?
„Allir hafa sína kosti og galla en ég hlýt að
meta þann þjálfara mest sem kom mér í mitt
besta form og náði að laða fram allt það
besta. Sá þjálfari starfaði hjá Brúgge í Belgíu.
Ungverjinn Nemes, sem þjálfaði mig 1978,
var góður að mínu mati enda talar árangur
liðsins það ár sínu máli. Markatala okkar var
45:8. Menn töluðu um að Nemes hafi flotið á
því að vera með góðan mannskap sem var
skólaður hjá Júrí Ilitchev en reynslan hefur
5. flokkur Vals árið 1970. Aftari röð frá vinstri: Jón Einarsson, Ingólfur, Hilmar Hilmarsson, Hörður
Harðarson, Atli, Friðrik Egilsson, Gunnar Finnbjörnsson, Brynjar Níelsson. Fremri röð frá vinstrí:
Hilmar Sighvatsson, Sævar Jónsson, Pétur Ormsiev, Guðmundur Ásgeirsson, Albert Guðmundsson,
Guðmundur Kjartansson og Hafsteinn Andresson.
sýnt að góður mannskapur er ekki alltaf lyk-
illinn að velgengni. Ég lærði líka mjög margt
hjá Ian Ross en hann gerði sömuleiðis marga
stórfurðulega hluti.”
Fæstum er kunnugt um starf Sævars dags
daglega en hann flytur inn úr frá Sviss sem
eru í háum gæðaflokki. Þótt úrin séu ekki
hvað þekktust merkja hér á landi eru þau
mörgum gæðaflokkum ofar en flest þeirra
sem liggja hér í búðargluggum. Úrin hafa ver-
ið framleidd af nokkrum af reyndustu úra-
framleiðendum í heimi í yfir 200 ár. „Mér
finnst ágætt að vera sjálfs míns herra. Ég
stjórna vinnutímanum sjálfur og tek sjálfan
mig á teppið ef þess þarf með. Ég hef prófað
að vinna hjá öðrum eftir stimpilklukku frá
klukkan 9-5 — það á hreinlega ekki við mig.”
— Hvað er framundan hjá Sævari Jónssyni?
„Ég hugsa mjög takmarkað um það. Ég
hugsa varla lengra en fram að næsta keppnis-
tímabili. Undanfarin ár hef ég fengið þjálf-
aratilboð frá 4-5 liðum á hverju hausti og ég
reikna með að taka að mér þjálfun í framtíð-
inni. Ég tel minn tíma sem þjálfara ekki kom-
inn og vil spila áfram á íslandi í toppliði. Sá
tími kemur að ég breyti algjörlega til.”
— Hver eru þín áhugamál utan fótboltans
og bíla?
„Ég hef einstaklega gaman af að ferðast en
það reynist vitanlega erfitt að sumarlagi.
Núna fer ég oft til Sviss vegna úraviðskipt-
anna en þangað er mjög gaman að koma því
ég þekki orðið svo marga þar.”
— Hvernig sérðu þig fyrir þér í ellinni?
„Það er alveg á hreinu að ég ætla ekki að
kaupa 500 fermetra einbýlishús til þess eins
að standa skil á afborgunum og vöxtum
næstu 30 árin. Ég ætla að búa þokkalega
þægilega og gera meira fyrir sjálfan mig í
staðinn — t.d. ferðast.”
— Verður þú ekki á siglingu um Karíbahaf
um jólin?
„Það er víst. Ég og unnusta mín ætlum að
sigla ásamt sjö öðrum á níu manna skútu um
Karíbahaf. Þetta verður vonandi draumaferð
og það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.
Ég vænti þess að flatmaga á þilfarinu, horfa
upp í bláan himininn, láta sólina sleikja mig,
fá nudd annað slagið og hlusta á vasadiskó
eða lesa hina stórskemmtilegu bók; Með fiðr-
ing í tánum. Það verður nefnilega eitthvað að
vega upp á móti skemmtilegheitunum!”
ég er tilbúinn að leggja á mig. Að mínu mati
hlýtur Guðni Kjartansson að vera inni í
myndinni sem næsti landsliðsþjálfari því
hann hefur gert góða hluti bæði með
A-landsliðið og landsliðið skipað leikmönn-
um 21 árs og yngri. Ég þekki vel til Guðna og
er viss um að hann valdi verkefninu. Ég lék 7
leiki með 21 árs landsliðinu, sem eldri leik-
maður, og hafði mjög gaman af. 1 því liði eru
nokkrir framtíðarleikmenn íslands. Nægir
þar að nefna Rúnar Kristinsson, Eyjólf
Sverrisson, Steinar Adolfsson og Ólafur
Gottskálksson svo einhverjir séu nefndir.
Varðandi það hvort næsti landsliðsþjálfari
ætli að yngja upp landsliðið sé ég ekki ástæðu
til þess að svo stöddu. Það yrði mjög slæmt
að ýta 5—6 mjög reyndum landsliðsmönnum
til hliðar á einu bretti bara vegna þess að þeir
eru um þrítugt. Þessir ungu verða að sanna
sig rækilega áður en þeirra tækifæri kemur. í
hverju landsliði verður að vera fastur kjarni
og góð landslið breytast nánast aldrei frá leik
til leiks þótt eitthvað bjáti á. I mesta lagi eru
gerðar ein til tvær breytingar. Það kann ekki
góðri lukku að stýra að vera sífellt að stilla
upp nýju landsliði. Sumir segja að það sé erf-
iðara að detta út úr landsliði heldur en að
komast í það. Ég geta aðeins svarað fyrir
sjálfan mig og segi að ég hef ætíð lagt mig all-
an fram í hverjum leik — hitt er undir þjálfar-
anum komið.”
19