Valsblaðið - 01.05.1989, Page 21
erlendu félögin þegar þau föluðustu eftir
leikmönnunum. Drengirnir komu þar óneit-
anlega mikið við sögu því hugsa varð um hag
allra. En nýir menn leysa leysa hina brott-
förnu af hólmi og bjóðum við þá velkomna í
félagið. Þjálfaraskipti hafa orðið hjá báðum
meistaraflokkunum. Þorbjörn Jensson þjálf-
ar meistaraflokk karla og óskar stjórn hand-
knattleiksdeildar hinum heilla í starfi. Jón
Hermannsson lét af störfum sem þjálfari
meistaraflokks kvenna og þakkar stjórnin
honum ánægjuleg ár. Við starfi hans tók
Margrét Theodórsdóttir og bjóðum við hana
velkomna í hópinn. Vonumst við til að vistin
hjá Val verði henni til ánægju og afreka.
Stelpunum hefur sömuleiðis bæst liðsauki og
er sá liðsauki boðinn velkominn ásamt nýjum
þjálfurum.
Pétur Guðmundsson þjálfar mulningsvél
Vals í 2. deild en eins og öllum er kunnugt
vann liðið sigur í 3. deild í fyrra. Staða muln-
ingsvélarinnar í 2. deild er sterk — liðið er í
3. sæti og geri aðrir betur.
Handknattleiksdeildin réði til sín starfs-
mann í vetur sem heitir Hrönn. Og nú sjáum
við að án hennar getum við ekki verið. Hrönn
hefur fallið algjörlega inn í félagið og starf
þess og fórnar sér fullkomlega í sín störf.
Vertu velkomin Hrönn og við vonum að við
göngum ekki alveg frá þér og þínum.
Bjarni GHmsson „leikmaður S. flokks 1989“.
$ i,l |« tl»
Hu. Æ im f ' ÁM Ár-.
3. flokkur Vals í handbolta 1989. Aftari röö frá vinstrí: Tryggvi Kornclíusson, Óskar Óskarsson, Theo-
dór Hjalti Valsson, Dagur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson, Gústaf B. ísaksson, Valgarð Thoroddsen,
Jóhann Þórarinsson og Theodór Guöfinnsson þjálfari. Fremri röö frá vinstri: Fídel Gunnarsson, Þór-
arínn Ólafsson, Sveinn Sigfinnsson, Hallgrimur lndríðason, Halldór Halldórsson, Stefán Stefánsson
og Valur Árnason.
5. flokkur Vals i handbolta 1989. Aftari röð frá vinstrí: Sigurður Valur Jakobsson, Guömundur Ág-
ústsson, Bjarki Már Hafþórsson, Öm Árnason, Hrólfur Sigurðsson, Snorrí Thors, Walter Geir
Grímsson, Þórhallur E. Þorsteinsson, Þorvaldur Már Stefánsson, Halídór Gunnarsson og Valdimar
Grímsson þjálfarí. Fremri röð frá vinstrí: Arnör Gunnarsson, Kristján L. Pálsson, Hafsteinn Gunnar
Sigurðsson, Árni Guðmundsson, Ingimar Jónsson fyrirliði, Sigurgeir T. H öskuldsson, Jón Brynjólfs-
son, Ingvar Þorsteinn Sverrisson, Breki Johnsen.
Þjálfarar á vegum handknattleiksdeildar
Vals í vetur eru eftirtaldir:
Mfl. k.: Þorbjörn Jensson
2. fl. : Jakob Sigurðsson
3. fl. : Theodór Guðfinnsson
4. 11. : Magnús Blöndal
5. fl. : Valdimar Grímsson
6. fl. : Sigurður Sigurþórsson
Mfl. kv: Margrét Teodórsdóttir
2. og 3. fl. kv: Katrín Friðriksen
Lokaorðum mínum mínum beini ég til eig-
inkvenna leikmanna i meistaraflokki karla.
Nokkrum þeirra vil ég þakka fyrir frábært
starf í okkar þágu en þær sjá um kaffi og
meðlæti í hálfleik í heimaleikjum Vals og
taka þar með þátt í því sem við erum að að-
hafast. Þær létta okkur róðurinn verulega.
Stelpur! Þúsund þakkir fyrir hjálpina.
Með Valskveðju!
Þórður Sigurðsson
21