Valsblaðið - 01.05.1989, Síða 23
RÆÐA SÉRA FRIÐRIKS
FYRSTA VALLAR VALS
Tæpum þremur mánuðum eftir að
knattspyrnufélagið Valur var stofnað
var búið að ryðja fyrir knattspyrnuvelli
við Suðurgötu. Það hefur verið mikill
dagur í lífi þessara brautryðjenda þegar
svæðið var fullrutt og tilbúið 6. ágúst
1911. Við þetta tækifæri flutti séra Frið-
rik ræðu sem mótar eftirminnilega
stefnu knattspyrnustarfsins í KFUM.
Þar lagði hann ungum drengjum lífsregl-
urnar, ekki aðeins á leikvellinum heldur
einnig á leikvelli lífsins. Ræðan er lær-
dómsrík og á ekki síður erindi í dag til
drengja og manna í Val og öðrum félög-
um. Hér eru nokkrir hlutar ræðunnar:
„Vér vinnum allt með því að helga það
guði. Enginn þarf að halda að hann verði
daufingi við það að helga leik sinn eða
iþrótt sína guði, öðru nær. Leikurinn
verður við það fegurri og nautnaríkari.
Það er fagurt að sjá unga menn með
stælta vöðva, fagran limaburð og þrek-
mikinn vilja keppa í siðsömum leik. Ef
vér helgum guði þennan leik vorn, má
ekkert ósæmilegt eiga sér stað á leikvelli
vorum. Leikurinn óprýkkar við allt
ósæmilegt. Hér á þessum velli má aldrei
heyrast ljótt orðbragð, ekkert blótsyrði,
engin keskni, engin særandi orð, engin
gárungaháttur og háreysti!
Þér ungu menn sem standið nú í röð-
um tilbúnir að ganga inn á hið nýja
svæði til leiks, sýnið að þér getið leikið
með kappi og fjöri og þó sem göfugir
ungir menn, sem fullkomlega hafið vald
yfir yður. Náið þessu valdi hvað sem það
kostar. Náið valdi yfir limum yðar, æfið
augun fljótt í að sjá hvað gjöra skal, æfið
fæturna til þess að þeir geti gefið mátu-
legt spark eftir því sem augað reiknar út
að með þurfi. Æfið hendurnar til þess að
fálma ekki út í bláinn. Látið hendur og
handleggi verða svo sjaldan sem unnt er
fyrir knettinum, æfið tungu yðar svo að
engin óþarfa orð heyrist.
Leggið alla stund á að leggja fegurð
inn í leik yðar, látið aldrei kappið bera
fegurðina ofurliði. Látið ekki líkamann
vera í 18 hlykkjum, heldur látið hvern
vöðva vera stæltan og allan líkamann í
þeirri stellingu sem fegurst er. Verið þar
á svæðinu sem hverjum yður ber að vera
samkvæmt skyldu sinni og varast blind-
an ákafa og fum. Allur þjösnaskapur
veri langt frá yður.
Kærið ykkur ekki um að vinna með
röngu eða ódrengilegu bragði. Þeir
sterkari boli aldrei hinum yngri og linari
frá í réttum leik. Segið ávallt satt og venj-
ið yður á að segja til ef yður verður á og
játa það.
Hælist aldrei yfir þeim sem tapa og
gleðjist líka með velleiknu sparki hjá
mótleiksmönnum yðar. Látið aldrei
ófagurt pex eða þráttanir skemma leik-
inn. Verið fljótir að hlýða þeim sem leik
stjórna, einnig þótt þeir séu yngri. Leið-
réttið og segið til með hógværð þeim sem
óæfðari eru og kallið engan klaufa, þótt
örðugt gangi í fyrstu. Sérhver ykkar leggi
á alúð inn í sitt hlutverk eins og leikslok-
in væru undir trúmennsku hans eins
komin.
öll mikilmennska, mont og yfirlæti sé
langt frá yður, en hógværð og lítillæti sé
VIÐ VÍGSLU
prýði og aðalsmerki hinna bestu. Þjón-
ustusemi og veglyndi einkenni alla fram-
komu vora, bæði á leiksvæðinu og utan
leiks. Leikurinn á að vera uppeldismeðal
til þess að ná meiru og meiru valdi yfir
sjálfum sér. Hann á að hafa styrkjandi
áhrif á líkamann og göfgandi áhrif á sál-
ina.
Sá, sem temur sjálfan sig og reynist
trúr í hinum minnstu atriðum leiksins,
undirbýr sig með því til þess að geta lifað
í trúmennsku og prettleysi í skyldustörf-
um lífsins. Sá, sem hagar sér óheiðarlega
í leik, verður varla fastur fyrir í ráð-
vendni lífsins.
Sá, sem leikur af sannri íþrótt, still-
ingu, kappi og fegurð, vinnur sér til
sóma, þótt annar verði yfirsterkari.
Gætið þess við hverja hreyfingu. Hafið
markið fyrir augum, gjörið ekkert út í
bláinn en vitið ávallt hvað þér viljið og
hvers vegna þér gjörið þetta eða hitt.
Munið ávallt eftir því að leikur vor er
ekki aðeins stundargaman, heldur á
hann að vera til þess að gjöra oss betri,
göfugri, heiðarlegri og karlmannlegri
með hverri æfingu.
I nafni KFUM vígi ég svo þetta svæði
til notkunar, til framfara og yndisauka.
Hér ríki friður, kærleiki, samheldni, feg-
urð og atorka. Hér þrífist aldrei neitt
ósæmilegt eða ljótt. Guð blessi svæði
vort, leik vorn og líf. — Guðs orð segir:
— „Að öðru leyti, bræður, verum glaðir.
Verið fullkomnir, áminnið hvem annan,
verið samhuga, verið friðsamir.”
Og svo allir til starfa! Allir á sinn stað!
Áfram!”
23