Valsblaðið - 01.05.1989, Side 26
SUMARBÚÐIR í BORG
Torfi Magnússon skrifar
Iþróttaskóli Vals
Magnús Blöndal heitinn og Ingvar Guömundsson í limbó með krakkana á lokahátíð 4. námskciös.
Síðastliðið sumar var annað starfsár
„Sumarbuða í borg” — íþróttaskóla Vals,
sem félagið starfrækir fyrir börn á aldrinum
5—13 ára. íþróttaskóli er nafn sem valið hef-
ur verið fyrir námskeið þar sem kenndar eru
margar greinar íþrótta. Haldin voru fimm
hálfsmánaðar námskeið síðastliðið sumar og
alls sóttu yfir fimm hundruð börn sumarbúð-
irnar. Skipulögð dagskrá var frá níu á morgn-
ana til klukkan fjögur. Flest börnin voru hjá
okkur allan daginn en nokkur aðeins hálfan
daginn. Þeim var skipt í hópa eftir aldri og
hverjum hópi fengin verkefni við hæfi. Elstu
krakkarnir fengu mikia kennslu í íþrótta-
greinunum, sem eru stundaðar hjá Val, auk
þess sem þau fengu að kynnast öðrum grein-
um. Hjá yngri börnum var lögð meiri áhersla
á fjölbreytni og leik. Við reynum ekki að
troða íþróttum fullorðinna inn á börnin held-
ur aðlögum þær að börnunum, frekan en að
aðlaga börnin að íþróttunum. Við stefnum
að því að börnin fái að kynnast íþróttum á já-
kvæðan hátt, drögum úr keppni en látum leik
og gleði ráða ríkjum. Til þess að þetta sé hægt
verða allir, sem starfa við sumarbúðirnar, að
leggjast á eitt og vinna að þessu marki. Við
höfum verið svo heppin að til okkar hafa að-
eins ráðist úrvals leiðbeinendur, sem lagt hafa
sig fram um að gera „Sumarbúðir í borg” að
íþróttaskóla sem stendur undir nafni.
Það er vel við hæfi að gefa yngstu kynslóð
Reykvíkinga kost á að nýta hina glæsilegu
íþróttaaðstöðu sem Valur hefur byggt upp að
Hlíðarenda. Til þess höfum við einungis get-
að boðið upp á íþróttaskóla á sum rin en gam-
an væri að geta einnig haft slíka starfsemi í
gangi að vetrarlagi — þá að sjálfsögðu með
öðru sniði.
„Sumarbúðir í borg” voru fyrstu heilsdags
íþróttanámskeiðin sem voru haldin af
íþróttafélagi í Reykjavík og fyrsta námskeið-
ið þar sem boðið var upp á heitan mat í há-
deginu. Þetta hefur gefist mjög vel og verið
vinsælt, sérstaklega eftir að við fengum mat-
inn skammtaðan á staðnum.
Drengir hafa hingað til verið miklu dug-
legri við að sækja sumarbúðirnar en stúlkur
en þær, sem hafa komið, virðast njóta sín al-
veg til jafns við strákana. Við vonumst því til
að fleiri stúlkur komi til okkar næsta sumar.
Eins og áður sagði er lögð mest áhersla á að
kenna íþróttirnar sem Valur keppir, hand-
bolta, fótbolta og körfuboita. Við kynnum
auk þess aðrar greinar, t.d. frjálsíþróttir,
hafnabolta og bandy. Farið er í ýmsa leiki,
við förum í sund, heimsækjum skíðaskála
Vals og siglum í Nauthólsvík. Aðrir íþrótta-
skólar koma stundum í heimsókn til okkar
eða við heimsækjum þá. Hvert námskeið
endará veglegri lokahátíð, þarsem ríkirglens
og gaman.
26
Bjarni Kolbeinsson sótti öll 5 námskeiöin síöast-
liðið sumar.
Óli við Valsskálann.
Hressir krakkar á Valssvæðinu í Hamragili í júlí
á 3. námskeiðinu.
Limbódans af innlifun.