Valsblaðið - 01.05.1989, Síða 29
Á lyktinni skulið þið þekkja þá! Guðmund
ur Brynjólfsson athugar hvort hann eða
Ólafureigi skóinn. Ólafur á hann greinilega!
55:58. Þar sem úrslitakeppnin var með út-
sláttarfyrirkomulagi var lið 1 úr leik. Þýsku
risarnir í Rist Wedel lentu í öðru sæti á
mótinu.
Lið 2 hjá Valsmönnum lenti í 12 liða úrslit-
um á móti finnsku liði, Honsu. Valsmenn
voru nokkuð þreyttir eftir hörkuleik við Sisu
fyrr um daginn og töpuðu leiknum naumlega
31:35. Bæði liðin féllu því úr keppni í 12 liða
úrslitum, sárir yfir því að hafa ekki komist
lengra í keppninni . en þó stoltir yfir mörgum
leikjum okkar sem flestir voru stórvel leiknir.
Á páskadag sváfum við frameftir vegna
þreytu eftir stórdansleik sem var haldinn
kvöldið áður í matsal Nörrebrohallen.
Danskar stúlkur munu sennilega seint gleyma
liðugum Valsmönnum þegar þeir stigu á fjalir
matsalarins og sýndu danslistir sínar. Þvílík
sjón! Þegar við loksins vöknuðum í dönskum
sumaryl ákváðum við að drífa okkur „pá
Bakken”. Þar var heldur betur skvett úr
klaufunum og voru flestir með hálf-snúinn
maga þegar kvölda tók.
Síðustu nóttina gátum við ekki verið í
Klostervænget skola, sem við höfðum dvalið
í allan tímann, heldur þurftum við að færa
okkur um set yfir í Nörrebrohallen og sofa
þar. (Hótel með öllu) Þar voru fyrir mörg
önnur lið, „drenge og piger” og reyndu mis-
feimnir Valsmenn að beita dönskukunnátt-
unni, eða því máli sem átti við, til að spjalla
við þetta fólk. (Sumir voru þó svo feimnir að
þeir vildu sem minnst við þetta ókunnuga
fólk tala!)
Annan í páskum var svo haldið heim eftir
vel lukkaða ferð. Hefur það frést að danskar
stúlkur á fermingaraldri hafi átt erfitt með
svefn nokkrar vikur á eftir því þær höfðu
horft á eftir þessum hugrökku víkingum, sem
yfirgáfu land þeirra, með stjörnuglampa í
augum. Allirkomu þeirafturogvilég að lok-
um þakka Birni og Hafsteini fyrir ferðina og
strákunum fyrir ógleymanlega daga í Köben.
„Thsund tak”!
Ég meina — menn eru mismiklir töffarar.
29