Valsblaðið - 01.05.1989, Page 33
Reykjavíkur- og íslandsmeistarar 3. flokks í handbolta árið 1980. Aftari röð frá vinstri: Sigmundur
Hermundsson liðsstjóri, Engilbert Sigurðsson, Guðni Bcrgsson, Jtilíus Jónasson, Geir Sveinsson,
Hermundur Sigmundsson, Birgir Örn Guðmundsson, Boris Akbarschev þjálfari. Iremri röð frá
vinstri: Sigurður Sigurþórsson, Vignir Pétursson, Bernhard Petersen, Jakob Sigurðsson, Elías Har-
aldsson, Ingvar Guðmundsson. „Lukkudýrið” heitir Rúnar Sigmundsson.
— Hefur það breytt einhverju fyrir þig að
taka við fyrirliðastöðunni?
„Ég var oft fyrirliði í fótbolta og handbolta
á mínunt yngri árum og því ekki alveg óvanur.
En samt sem áður er töluvert mál að vera fyr-
irliði i meistaraflokki og mér finnst mér vera
sýnt mikið traust. Þessu fylgja ákveðnar
skyldur en það þrúgar mig alls ekki. Ég ein-
beiti mér að spila eins og áður en breyti ekki
um leikstíll þótt ég sé fyrirliði.”
Jakob þjálfar 2. flokk Vals í vetur og er það
frumraun hans á því sviði. „Ég hef virkilega
gaman af að þjálfa því í flokknum eru mjög
efnilegir strákar. En það er dálítið strembið
að vera í fullri vinnu, æfa með meistaraflokki
og landsliðinu þegar þess þarf og þjálfa að
auki. Eflaust á ég eftir að halda áfram að
þjálfa í framtíðinni því ég vil miðla af þeirri
reynslu sem ég hef öðlast.”
— Ertu þá ekki að reyna að búa til einhvern
snilling sem kemur til með að leysa þig af
hólmi í horninu?
„Það er ekki tímabært því síst af öllu vil ég
láta læringinn slá mig út. Annars má vel geta
þess að mér finnst mjög vel staðið að málum
hjá yngri flokkunum og flestir þeirra voru í
úrslitum í Reykjavíkurmótinu. Unglingaráð
hefur verið stofnað og sömuleiðis foreldrafé-
lag og er því allt eins og best verður á kosið.”
— Nú er heimsmeistarakeppnin í hand-
bolta framundan — hvernig er blikurnar?
„Eitt stórt spurningarmerki! Á slíkum
mótum er stutt á milli þess að standa sig vel
og sökkva djúpt niður. Þetta er spurning um
að ná upp stíganda í liðinu og vera á toppnum
á réttum tíma. Auðvitað förutn við í hvem
iandsleik með því hugarfari að vinna hann en
það sem skiptir máli er að vera í sem bestu
formi í Tékkóslóvakíu. Ef það tekst gleymist
allt annað. Þau mót sem virkilega telja í
handbolta eru heimsmeistarakeppnir og
Ólympíuleikar. Árangur okkar á HM skiptir
verulegu máli vegna framhaldsins og þátt-
töku á Ólympíuleikunum á Spáni. Við verð-
um að lenda í hópi 8 efstu þjóða til að komast
til Barcelona.”
— Ertu öruggur í landsliðið?
„Ég tel mig aldrei öruggan fyrirfram og
geng aldrei að neinu vísu í þeim efnum.”
— Reiknarðu með að vera enn í landsliðinu
þegar HM verður á íslandi 1995?
„Ég verð ekki nema 31 árs þá þannig að það
er fræðilegir möguleikar á því,” segir Jakob
og brosir. „Nei annars ætli ég rói ekki á öðr-
um miðum árið 1995. Ég reikna með að fara
út í mastersnám á næstu árum.”
— Hver er þinn eftirminnilegasti lands-
leikur?
,iUrslitaleikurinn í B-keppninni — það er
engin spurning. Það var alveg stórkostlegt að
tuka þátt í þeirri keppni. Sú tilfinning að
standa á verðlaunapallinum er ólýsanlega og
hún mun aldrei líða úr minnum.”
— Finnurðu fyrir því að vera þekktur
■bróttmaður?
Jakob hugsar sig um en svarar svo rólega;
nÞað kemur fyrir að fólk kannast við mig en
mér líður ekki sem þekktum manni. Þá til-
finningu þekki ég ekki”
— Er atvinnumennska í deiglunni hjá þér?
■iNei, ég á ekki von á því. Auðvitað væri
gaman að reyna sig og ég tala nú ekki um ef
maður gætir framfleytt sér í námi samhliða
handboltaiðkun. En það er ekki raunhæft að
reikna með atvinnumennsku hvað mig varð-
ar!’
— Ertu sáttur við Val i dag?
„Þegar á heildina er litið er ég mjög sáttur.
Auðvitað hafa komið upp mál sem ég hef ver-
ið ósáttur við en ég vil ekki ræða það frekar.
í Val er mikill uppgangur og að mínu mati
hefur nýja íþróttahúsið gert gæfumuninn.
Núna eru alltaf fleiri niður á Hlíðarenda,
meiri samkennd er ríkjandi og félagsskapur-
inn er öðruvísi en áður. Núna er menn Vals-
menn — án tillits til hvaða íþrótt þeir stunda!’
□mmn
BORÐ-, PALL-, KRÓK-, TELJARA-
OG GÓLFVOGIR
Margar geröir eða frá 15 kg. að 6000 kg. með
mismunandi nákvæmni. Einnig fáanlegar vatnsvarðar
(IP65) og með ryðfríum palli.
Möguleikar á tengingu við tölvur og prentara.
Viðgerðir á allflestum gerðum voga og breytum eldri
gerðum voga í rafvogir.
HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA.
SUNDABORG 22 SÍMI 91-84800
VOGAÞJÓNUSTA SMIÐSHÖFÐA 10 SÍMI 91-686970
33