Valsblaðið - 01.05.1989, Page 42
Texti: Þorgrímur Þránsson
Hann þolir ekki að tapa — segist vera gríð-
arlega tapsár. Hann hefur aldrei orðið ís-
landsmeistari með Val en segir að brátt sjái
fyrir endann á því titlaleysi. í yngri flokkun-
um var hann minnstur allra en þótti þó laginn
við að skora. Hann rifjar upp sinn fyrsta leik
með Val. „Við lékum gegn KR í Reykjavíkur-
mótinu og töpuðum með 50 stiga mun. Ég
man að ég skoraði eina körfu í leiknum og
hún var alveg gullfalleg. Auðvitað var um al-
gjöra tilviljuna að ræða. Ég var svo stressað-
ur að ég skaut út í bláinn og boltinn villtist of-
an í körfuna.”
Það er hann Svali Björgvinsson, leikmaður
með meistaraflokki Vals í körfubolta sem
lýsti sinni fyrstu körfu fyrir Val. Hann er 22
ára og stundar sálarfræði og líffræði í Há-
skóla Islands. Ef hann er ekki að lesa leikur
hann sér í körfubolta og hann segist fátt ann-
að taka sér fyrir hendur þessa stundina.
Svali segist vera eldrauður Valsari og á bágt
með sig næstu dagana eftir tapleiki. „Það er
alveg sama hvort Valur tapar í handbolta, fót-
bolta eða körfubolta, ég þoli það hreinlega
ekki. Stundum á ég það til að ráðast á veggi
til þess að fá útrás fyrir svekkelsinu.”
Svali hefur ætíð búið í Hlíðunum, nánar
tiltekið í Eskihlíð. „Ég ólst nánast upp hérna
á Hlíðarenda því ég dundaði mér hér frá
morgni til kvölds hvenær sem tækifæri gafst.
Ef ég var ekki að æfa sjálfur fylgdist ég með
aðdáunaraugum á stjörnurnar í Val þegar
þær æfðu hér.”
— Hefur þú aldrei stundað aðrar greinar en
körfubolta?
„Jú, ég var í öllu sprikli á mínum yngri ár-
um. Ég keppti síðast í handbolta og fótbolta
með 3. flokki. Mér fannst handboltinn alitaf
hálf-duttlungafullur og líkaði sú íþrótt aldrei
fyllilega. Satt að segja fannst mér það til-
gangslaus íþrótt þótt það sé ljótt að segja
það.”
— Hvernig gekk þínum árgangi í yngri
flokkunum?
„Við unnum Reykjavíkurmót en aldrei
neitt meira. Þótt ég hafi aldrei orðið íslands-
meistari kemur að því innan tveggja til
þriggja — það er alveg á hreinu.”
Svali Björgvinsson.
Svali hefur leikið sem bakvörður frá því
hann byrjaði að æfa fyrir alvöru og náð góð-
um árangri þrátt fyrir skort á íslandsmeist-
aratitlum. Hann hefur verið valinn besti leik-
maðursíns flokks íöllum flokkum og jafnan
verið iðnastur við að setja boltann í körfuna.
Fyrsta meistaraflokksleikinn lék Svali árið
1984, þá 16 ára gamall. Valur lék þá gegn ÍR
í úrvalsdeildinni og skoraði hann eina körfu
í leiknum. Síðan hélt Svali til Bandaríkjanna
— þó ekki sem upprennandi stjarna í
NBA-deildinni þrátt fyrir eina körfu gegn IR
— heldur til þess að breyta um umhverfi og
leika körfubolta. Hann nam fræðin í
high-school og handlék körfubolta þess á
milli.
„Það verður að segjast eins og er að ég
lærði mikið í körfubolta á þessu ári. Ég lagði
líka aðeins stund á hlaup og varð fylkismeist-
ari 800 metra hlaupi. Ég hafði gaman af
hlaupum á mínum yngri árum og vann ein-
hvem tímann víðavangshlaup ÍR.”
Þegar Svali var að stíga sín fyrstu spor í
meistaraflokki átti hann erfitt með að vinna
sér sæti í liðinu eins og gengur. „Það voru svo
margir gamlir refir í Iiðinu að það var erfitt að
slá þeim. Ég vann mér sæti í liðinu smám
saman en 4. október 1988 sleit ég krossbönd
í hnénu i leik gegn Njarðvík.”
Svali er búinn að j afna sig á þessum meiðsl-
um og er nú einn lykilmaðurinn í meistara-
flokki. En liðinu hefur ekki vegnað vel í vetur
og var Svali inntur eftir ástæðu þess.
„Það er best að vera ekki að afsaka neitt en
við höfum einfaldlega ekki leikið nógu vel í
vetur. Við höfum verið að tapa tvísýnum
leikjum sem hefðu getað farið á hvorn veginn
sem var og það skiptir sköpum. Liðiðer skip-
að ungum leikmönnum og á því framtíðina
fyrir sér.”
— Finnst þér tilkoma útlendingana hafa
breytt einhverju í körfuboltanum hér?
„Já, það bættist alla vega einn góður leik-
maður í hvert lið. í dag er miklu meiri breidd
en áður í íslenskum körfubolta og þess vegna
eru þessir menn ekki eins áberandi. Þessar
SvaJi Björgvinsson,
leikmaður með
meistarafiokki í
körfubolta
42