Valsblaðið - 01.05.1989, Page 63
ÞÓRIR AÐAL-
STEINSSON
Leikmaður 5. flokks
í fótbolta
Þórir hóf að æfa knattspyrnu með 7. flokki
í Val þegar hann var 6 ára. Hann fór í Val af
þvi hann hélt með Val og ástæða þess er sú að
Hörður Hilmarsson, fyrrum leikmaður
meistataflokks, er frændi hans. „Mér þykir
mjög gaman í fótbolta en einu sinni var ég
markmaður í handbolta. Þegar ég handleggs-
brotnaði hætti ég alveg í handbolta. í fótbolt-
anum hef ég spilað á hægri kantinum, á miðj-
unni og í framlínunni. Mér iínnst eiginlega
skemmtilegast að vera fremstur.”
Þórir, sem er 11 ára, varð Reykjavíkur-
meistari með 5. flokki og skoraði nokkur
mörk síðastliðið sumar. Hann æfir 1 sinni í
viku í vetur en vill auðvitað æfa miklu oftar.
„Þegar ég er ekki í fótbolta æfi ég körfubolta
með IR”
En hvert skyldi Þórir stefna sem knatt-
spyrnumaður? „Auðvitað er það draumurinn
að komast í atvinnumennsku. Uppáhaldslið-
ið mitt er AC. Milan og sá sem er bestur þar
er Frank Rijkaard!’
Auk þess að iðka knattspyrnu og körfu-
bolta æfir Þórir borðtennis í skólanum en
hann segist ekki var búinn að ákveða hvað
hann ætlar að verða þegar hann er orðinn
stór.
FYRSTIFORMAÐUR ÍSLANDSMEIST-
VALS ARAR 1930
Loftur Guðmundsson, hinn konung-
legi hirðljósmyndari, var fyrsti formað-
ur Vals. Hann lék í fyrsta liðinu sem Val-
ur tefldi fram og þótti óvenju lipur með
knöttinn. Loftur segir svo frá í 25 ára af-
mælisriti Vals: „Ég kom því þannig fyrir
að strákarnir létu mig ávallt fá boltann
því þeim þótti ég góður að „plata” sem
þá var kallað. Þegar mér tókst að leika
með boltann fram og aftur fram hjá
strákunum leyndi sér ekki ánægja áhorf-
enda, þótt æfing væri. Var oft hrópað
húrra. Það verkaði auðvitað hvetjandi á
mig, sem hellt væri bensíni á eld og tók
ég upp á einu bragði sem dugði lengi vel.
Ég fékk strákana oft til að detta án þess
þó að mér væri kennt um þaði Ég lét
mótspilarana sparka í skósólann minn í
stað boltans. Þegar mótspilarinn spark-
aði setti ég fótinn fram fyrir. Fyrir þetta
bragð fékk ég þau laun, að ég fékk iðu-
lega sparkið í ökklann í stað sólans.
Þetta endaði með því að ég varð að lok-
um að láta meitla skemmdina úr ökkla-
hnútunni og þar með var ég búinn að
vera sem knattspyrnumaður.
Að endingu skal ég segja frá þeirri nið-
urlægingu sem ég varð fyrir og eftir það
fann ég að enginn leit upp til mín, sem
mér fannst þó sjálfum að gert hafði ver-
ið.
Á íþróttavellinum hér um bil 3 árum
eftir að ég lét gera við fótinn á mér var
kappleikur milli Vals og Fram. Ég var
einn á meðal áhorfenda. Mér fannst
Valsmenn standa sig heldur illa og var
ekki laust við að ég óskaði þess að vera
kominn inn á völlinn svo ég gæti sýnt að
hér væri maður sem væri ekki hræddur
við Arreboe Clausen, sem var í Fram. Því
þegar Clausen fékk boltann var eins og
skotið væri úr fallbyssu. Clausen-spörk-
in voru þau kölluð. Einhver tilviljun var
það að einn maður úr liði Vals varð að
hætta í miðjum leik. Þar sem enginn
varamaður var til staðar brá ég mér úr
jakkanum og var á svipstundu kominn
inn á völl — og á svipstundu borinn útaf
aftur. Svo vildi til að í þeim svifum, sem
ég kom inn á völlinn, var Clausen að fá
boltann. Þar sem mér fannst það nú
ákaflega hentugt, eftir þriggja ára hvíld,
að komast þarna í kapplið og geta sýnt
hvað Loftur gæti, henti ég mér sem kött-
ur á mús á Clausen en varð of seinn.
Hann hafði hleypt af. Ég henti mér því
fram til að skalla boltann en við það
steinlá ég. Það rigndi mikið og var bolt-
inn rennblautur og þungur. Höggið var
það mikið er boltinn kom beint í andlitið
á mér að ég hálf-snérist við í loftinu og
kom niður á höfuð og herðar. Og þar
með endaði mesta montið.
Nítján árum eftir að Valur var stofnað
vannst íslandsmótið í meistaraflokki
(sem hét reyndar 1. flokkur á þessum ár-
um). Valur sigraði KR í úrslitaleik 2:1 í
jöfnum og spennandi leik. Hin liðin sem
tóku þátt í mótinu vann Valur þannig:
Fram 8:0, Víking 5:0 og Vestmannaeyjar
3:1. Með þessum sigri rættist draumur
margra, rúmum 19 árum eftir að félagið
var stofnað.
Frábœr eldavél!
HL66120
5 ólikar hitunaraðferðir:
venjuleg hitun, hitun
með blæstri, glóðar-
steiking m. blæstri,
venjuleg glóðarsteiking
og sjálfvirk steiking.
Keramflchelluborð.
Rafeindaklukka.
s\®
>\*— -t: e'"- I
\riQ°
oQ
t|^
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
63