Valsblaðið - 01.05.1989, Blaðsíða 64
/ minningu látinna Valsmanna
Sveinn
Zoéga
fæddur: 08.10.1913
dáinn: 04.12.1989
Kveðja frá knatt-
spymufélaginu Val
Sveinn Zoéga, heiðursfélagi Knattspyrnu-
félagsins Vals andaðist 4. desember á 77. ald-
ursári. Með Sveini er genginn merkur for-
ystumaður sem af ást og áhuga fórnaði
íþróttunum og þá sérstaklega Val stóran hluta
af ævi sinni. Sveinn Zoega stóð í fremstu ví-
glínu félagsmála Vals oftar oglengur en flest-
ir aðrir og gaf Valg og Valsmönnum með
starfi sínu líf og lit. Sveinn gekk í Val árið
1923, þá 10 ára gamall. Faðir Sveins, Jón J.
Zoega, trésmíðameistari og síðar kaupmaður
var náinn vinur sr. Friðriks Friðrikssonar og
í strákahópnum sem stofnaði KFUM fyrir 90
árum.
Sveinn keppti með Val í 3. flokki, 2. flokki
og um skeið í 1. flokki (meistaraflokki).
Meiðsli í baki ollu því að hann varð að hætta
æfingum og keppni. Það var á sviði félags-
mála í Val og í forystustörfum fyrir íslensku
íþróttahreyfinguna sem Sveinn skoraði flest
mörkin og vann marga stóra sigra. Þegar
Sveinn var í öðrum flokki var sá háttur hafð-
ur á í Val að kosnir voru tveir ungir knatt-
spyrnumenn til að sitja alla stjórnarfundi og
kynnast stjómarstörfum í félaginu, svo þeir
yrðu hæfari til að taka við þegar þeir eldri
hættu. Sveinn var af félögum sínum einróma
kosinn til að ganga í þennan „félagsmála-
skóla Vals.” Þar með hófst farsæll stjórnar-
og félagsmálaferill Sveins í þágu íslenskra
íþrótta, samanlagt í um 50 ár.
24 ára var Sveinn fyrst kosinn í stjórn Vals
með þeim Frímanni Helgasyni, formanni,
Grimari Jónssyni, Sigurði Ólafssyni og
Andreasi Bergmann. Þessi menn voru þá og
síðar í hópi merkustu forystumanna Vals. Ári
síðar var Ólafur Sigurðsson, náinn vinur og
samstarfsmaður Sveins, kosinn formaður
Vals. Ólafur og stjórn hans stóð fyrir kaup-
unum á Hlíðarenda, félagssvæði Vals sem
mörkuðu tímamót í sögu Vals. Til þessara
kaupa þurfti kjark, áræði og óbilandi trú á
framtíð Vals.
Sveinn var fyrst kjörinn formaður Vals
1939 og 1940, þá 1943 og síðar 1957 til 1960.
Hann var því þrívegis kjörinn formaður og
gegndi því starfi í samtals 7 ár.
Á aðalfundi Vals 1945 var samþykkt sú
skipulagsbreyting á stjóm félagsins að fram-
vegis skyldi kjósa fulltrúarða fyrir félagið.
Sveinn Zoega var sjálfkjörinn fyrsti formað-
ur fulltrúaráðsins og gegndi hann for-
mennsku fyrstu 10 árin að einu undanskildu.
Sveinn var ekki eingöngu fylkingarbrjósti
þeirra áhugasömu og dugmiklu manna sem
lögðu grundvöllinn að því félagi sem Valur er
í dag. Hann var jafnframt í forystu fyrir ís-
lenska íþróttamenn, gegndi fjölda trúnaðar-
starfa á þeim vettvangi og naut mikils trausts.
Sveinn var með glæsilegri mönnum, ein-
harður málfylgjumaður og kunni vel að
sækja og verja málstað sinn . en var ávallt
sanngjarn.
Nú þegar Valsmenn kveðja heiðursfélaga
sinn Svein Zoega eiga ef til vill best við þau
orð stofnanda félagsins, sr. Friðriks Friðriks-
sonar, er hann flutti Valsmönnum í upphafi
fyrsta leiks Vals:
„Valsmenn þakka Sveini Zoéga langa og
góða samfylgd um leið og þeir votta Frú Guð-
rúnu Sigríði, börnum og fjölskyldunni allri,
innilega samúð.
Minning um góðan dreng lifir.
Pétur Sveinbjarnarson.
ii*
Magnús Blöndal
Sigurbjömsson
fæddur: 06.09.1965
dáinn: 13.12.1989
Kveðja frá hand-
knattleiksdeild Vals
í dag er til moldar borinn, góður Valsmað-
ur og félagi okkar Magnús Blöndal kornung-
ur að árum.
Okkur verður orða vant þegar dauðinn ber
að dyrum hjá svo ungu fólki. Þótt ljóst væri
að hverju stefndi er erfitt að trúa því að
Magnús skuli ekki vera meðal okkar.
Magnús gekk snemma til liðs við Val og
félagið átti hug hans allan. Hann lék með
yngri flokkum Vals bæði í handbolta og fót-
bolta og var þar hvers manns hugljúfi, enda
drengur góður.
Snemma fékk Magnús áhuga á að leið-
beina þeim sem yngri voru og við þá þjálfun
lagði hann mikla rækt. Fórnaði hann ómæld-
um tíma með „strákunum" sínum í æfingar
og fundi. Hann gerði sér grein fyrir mikilvægi
þess að þeir yngri þurfa góða tilsögn og mikla
umönnun til að verða afreksmenn. Það er
táknrænt að Magnús kvaddi þetta líf daginn
eftir að flokkurinn hans, 4. flokkur Vals varð
Reykjavíkurmeistari í handknattleik. En
honum auðnaðist að sjá bikarinn sem dreng-
irnir hans færðu honum að skilnaði.
Þeir menn eru vandfundnir nú sem eru
reiðubúnir að fórna tíma sínum til leiðtoga-
og félagsstarfa í þágu íþróttanna.
Magnús var undantekning. Þegar hand-
knattleiksdeild Vals átti hvað erfiðast upp-
dráttar var Magnús sá sem gekk fram fyrir
skjöldu og tók við formennsku deildarinnar
kornungur og í erfiðu háskólanámi.
Hann stofnaði þá og gerði virkt foreldra-
félag handknattleiksdeildarinnar og þegar
Valur hélt námskeið fyrir hina yngstu, Sum-
arbúðir í borg, var hann þar í forystuhlut-
verki.
Þannig átti Valur ómetanlegan bakhjarl í
Magnúsi þegar á reyndi. Slíkt hugarfar er
okkur hinum leiðarljós og til eftirbreytni.
Megi minning Magnúsar lifa innan Vals
um ókomin ár.
Við kveðjum okkar góða vin og félaga með
miklum söknuði. Mestur er þó missir unn-
ustu hans, systur og foreldra. Handknatt-
leiksdeild Vals sendir þeim sínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Magnúsar Blöndal.
Fyrir hönd H.K.D. Vals.
Þórður Sigurðsson.
64